...það verður þjóðaratkvæðagreiðsla!! Sem að ég tel að sé mjög gott, vegna þess að það er jú þjóðin sem að lifir og hrærist í þessu fjölmiðlabraski og þess vegna finnst mér bara rétt að við fáum sjálf að ákveða hvort að sett verði eignarhald á fjölmiðla eða eikki. Þorgerður Katrín var í Ísland í bítið í morgun og talaði eitthvað um að Fjölmiðlar mótuðu skoðanir landans, ég get ekki sagt að það sé rétt hjá henni því að við á Íslandi erum ú alveg FJANDI dugleg að mynda okkar eigin skoðanir. Reyndar skal ég alveg fúslega viðurkenna að Norðurljós hafa nátturulega bara haft eina skoðurn á þessu máli og mér finnst það alveg skiljanlegt, spurningirn er sú hvort að ástæðan fyrir því að fólk er svona mikið á móti frumvarpinu vegna þess að NORÐURLJÓS á og rekur allar helstu útvarsstöðvar landsins og auðvitað svo stöð 2 og sýn OFL. En samt held ég að fólk hafi verið duglegt að kynna sér frumvarpið og svoleiðis.
Æji nóg af þessari vitleysu. Það er búið að vera þokkalega nett veður hérna á klakanum í dag, fyrir ykkur sem ekki vitið. Dagurinn minn var alavega mjög góður. Ég mætti kl 9 í skólann og skilaði bókunum og fékk skápagjaldið endurgreittog svona. Svo var bara labbað uppí Grjótásinn og farið að passa Stefán Atla, og á meðan að hann svaf þá var ég bara úti á svölum í þessari rjómablíðu, og áskotnaðist á því alveg helling af freknum og svona einhverja smá brúnku! Já, það er nú eins gott að vera brúnn og sætur áður en að maður byrjar í sumarfríi..Eða allavega brúnn ég veit nú ekkimeð hitt:P
En Pabbi er víst líka að fara til Krítar á Mánudaginn og þá fær maður ekki að hitta þau skötuhjúin í viku! En ég get nú lifað það af, en það er bara verra að Salka litla verður í pösssun hjá mömmu hennar birnu og ömmu, þannig að ég fæ eitthvað lítið að sjá af henni í þessa viku.
Ég man ekki eftir neinu skemmtilegu sem að ég hef gert núna upás íðkastið þannig að ég kveð bara að sinni, Lífið lífinu Lifandi!!!
kveðja KAS
1 ummæli:
Rosalegar skoðanir hjá þér ;)
Skrifa ummæli