14.4.05

Ég ætla að reyna að hafa þetta glaðlegt blogg, þó svo að það sé langt frá því að ég sé eitthvað glöð í dag. Er meðal annars komin með heimþrá sem er ekki gott, eiginlega alveg hræðilegt, ég má ekki hafa heimþrá!
Jæja förum nú samt yfir "alla" hlutina sem að ég er búin að gera í þessari viku.
Á mánudagin átti nú litli bróðir minn hann Eyjólfur afmæli, og vaknaði greyið barnið (og ég) við þann falskasta afmælissöng sem að hefur verið sunginn í sögu afmælissöngsins, og fékk nokkra feita pakka með.
Um kvöldið bauð krútti litli okkur á Massí dónas, já hugsið nú hvað í Fjandanum það er, en það er McDonalds á eyjólfsmáli. Svo þegar að við komum hiem fengum við íslenskt nammi og það þarf nú ekki að segja neitt um það hvernig það var.
Tja meira gerði ég ekki í vikunni, nema að læra og svona leiðindi einhver.

Langar samt að taka saman hérna smá lista sem að sýnir það að ég þarfnast virkilega íslandsferðar, vegna þess að ég er að breytast í FKN Kristín með Pølse i munden (eða dana)


-Ég á Eastpak skólatösku
-Ég borðaði epli í strætó í vikunni
-Drakk Tuborg síðustu helgi
-Nenni ekki að skrifa sms á íslensku, bara dönsku
-Nenni ekki að tala íslensku
-Þekki munin á København dansk og jysk dansk (ikke?)
-Tala Jysk dansk og er þar af leiðandi í ruglinu
-Það er eitthvað að ske með dönskuna mína, eða orðaforðinn er eitthvað að bæta við sig, sem skýrir ruglið með að ég nenni ekki að tala íslensku.
-Ég Horfi á Beverly hills 90210, Rundfunk, Real life.log, top model 2005 og de fantastiske fem!
-Sat ein inní herbergi og bókstaflega GRÉT úr hlátri yfir Gintbergs store aften, og í þokkabót þá var Casper Christiansen í þættinum sem að gerði þetta ennþá verra. (en þetta var svo fyndið)
-Allir að losna við spangirnar og ekki ég, þvílíka svindlið! (langaði bara að setja þetta þarna, kemur ekkert þessum lista við svosem)

í lokin koma svo tvær myndir af litla prinsinum sem er orðinn 4 ára :)





3 ummæli:

Inga Rós sagði...

æji ekki vera leið kristín mín....sumarið er að nálgast og þá geturðu komið til íslands og gleymt dönskunni hehe :) en vááá hvað eyjólfur er mikil dúlla :D

Jah, maður spyr sig...! sagði...

Það er náttúrlega bara hrikalegt að vera límd yfir De fantastiske fem !! Alla vega finnst mér það glataðir þættir.
Annars get ég huggað þið aðeins og sagt þér að það er nákvæmlega ekkert að ske hérna á ísjakanum. Alla vega ekkert hjá mér, endalsaus heimalærdómur og leiðindi - svipað og í DK....
Líst ekkert á þetta

Nafnlaus sagði...

æjj sæti:D til hamuingju með eyjólf=D=D sætilæijjus:D
en nei ég get alveg sagt þér það að ég væri alveg til í að vera í DK nuna! ég að læra herna á fullu fyrir samræmduprófin.. jukkz:s