Well Well Welll.
Ég er farin að halda að ég sé eitthvað klikkuð. Alltaf bloggandi bara, einhver ritræpa á minni sko. Eníveis þá var þetta bara mjög góður dagur hjá mér í dag. Eða svona þannig lagað. Fór í skólann klukkan átta í morgun og hélt að ég myndi deyja fyrstu tvo tímana eða svo, því að kennarinn byrjaði bara að blaðra og blaðra um háskóla og eitthvað crap. Meðaleinkunina ef að maður ætlaði að fara að læra Pædego í Álaborg, sem er BTW 9,3.En hins vegar ef að þú ætlar að læra það sama í Árhus verður maður að hafa 7,5 - Svona bara svo að þið vitið það ef að þið ætlið að fara að læra Pædego.
Svo sagði hún þegar að hún var búin að blaðra um þetta í tvo tíma: jeh, men det var bare lidt saadan go´morgen til jer! - Jáh einmitt...
Svo um 11 leytið þá fórum við Trine, Shahad og Lulu að taka upp stuttmyndina okkar. Reyndar var það svolið mikið strætóferðir útum allt, en samt mjög gaman. Okkur tókst að gera myndina en það tók okkur líka hálfann daginn að gera hana, þvi að við hlógum svo mikið.
Við Trine komumst samt að mjög skemmtilegri niðurstöðu í dag. Ég var eitthvað að spurja Shahad um hvort að hún væri múslimi (hún er frá íran) En hún er það ekki, hún er kristin. Svo fórum við Trine að segja að við tryðum eiginlega ekki á Guð og jesús, og þá komum við með þessar líka brilliant kenningar.
-Jomfru Maria/maría mey hún hélt framhjá jósef með Guði, eða hún hélt ekki beint framhjá, en hún bar samt barn annars mans undir belti , og það telst jú til framhjáhalds.
-Jesús og allir hans lærisveinar voru alltaf Pisse-stiv
-hann var alltaf að breyta vatni í vín og þar fram eftir götunum svo að við höldum að hann hafi verið virkur alkahólisti.
-Þess vegna hefur hann bara verið á einhverju sírutrippi með lærissveinunum þegar að hann labbaði á vatninu. þá hefur hann og lærisveinarnir bara verið svo fullir og eiinhver hefur sagt, ji sjáiði, jesús labbar á vatninu...
Ja þetta eru okkar kenningar, þær voru fleiri en ég man ekki allar í augnablikinu. Annars þá trúi ég eiginlega ekki á þetta stuff., trúi bara á það góða í manninum. Og finnst að börn ættu ekki að fermast fyrr en um 16-17ára. ég allavega var svo lítil og vitlaus að ég gerði bara eins og allir hinir. Ef að þetta val hefði verið sett fyrir mig núna þá myndi eg pottþétt ekki fermast. Held að börn nú til dags velji þetta bara útaf gjöfunum.
Ég ætla heldur ekki að skíra börnin mín, bara að nefna þau og þau geta svo sjálf ákveðið þegar að þau verða stærri hvort að þau vilji skíra sig, eða ferma. Ég vil sko ekki taka svona ákvarðanir fyrir þau.
Allavega nóg um það.
Þá núna senni partinn þá komu Sören og Kristine með strákana í heimsókn. Eyjólfur og Marcus léku sér saman og ég og Viliam lékum okkur saman;) Svo ákváðum við að borða saman og svona, voða hygge í gangi...
5 ummæli:
MASSÍFT BLOGG!! hehehehe skemmtilegar kenningar ;) eeeeeen bíddu lékstu þér með honum ^o)
Brynja: Já, sé að þú ert mjög trú-uð mannsekja ;) Annars gaman að lesa svona öðruvísi sögur um Jésú :D
inga min, komin i ruglid hva? En ja vid vorum ad leika okkur, eg var ad syna honum peter plys og svona:)
En var thetta ekki bara skemmtilegt blogg...?
já ég er komin í ruglið....tókstu bara eftir því núna eða :P hehehehe en hver er peter plys...ef það er einhver teiknimyndapersóna þá segi ég bara skítt með hann!! spongebob squarepants er málið :D en jú mér fannst þetta æðislegt blogg ;)
hehe, inga thu ert svo utur, veistu ekki hver Peter plys er!?!? thad er bangsimaon a donsku;) William er adeins of litlill til ad skilja humórinn i spongebob;)
Skrifa ummæli