Þetta er auðvitað bara leti og ekkert annað! Dyggir lesendur þessa bloggs gætu haldið að það væri komið munnlegt harðlífi á minn bæ, en svo er ekki. Hægðirnar eru mjúkar og fínar. En nóg um það, ég held að það sé komin tími til að ég gefi mér tíma á smá blogg núna því að það er langt síðan að ég bloggaði síðast. Inga Rós heldur því Reyndar fram að ég hafi ekki bloggað í mánuð..en það er ekki alveg rétt hjá henni þar sem að ég bloggaði síðast 19 júní.
Ég man samt eiginlega ekki hvað ég hef verið að gera undanfarið fyrir utan að vinna. minnir að það sé ekkert spes búið að gerast.
Foreldrar mínir héldu eitthvað kveðjuteiti um daginn, þar voru vinir og vandamenn í misskrautlegu áskigkomulagi sökum áfengis, en þegar að ég mætti þá var þetta nú orðið frekar súrt svo að ég ákvað að staldra ekki lengi við en kastaði þó kveðju á ættmenni mín og hélt svo heim til Pabba sem að var reyndar í Vestmanneyjum og beið þar þangað til seint um nóttina, eða þar til að fólkið var farið heiman frá mér.
Daginn eftir frétti ég svo af því að einhver lítill fugl hafi gaukað því að móður minni að hún væri nú komin á síðasta sjéns með að fara að pakka, þannig að þegar að ég kom heim frá því að vera að vinna á leiknum stóð mamma á haus og tautaði eitthvað um að það vantaði tíma og fleiri kassa.
Ég hef reyndar ekki nennt að stressa mig mikið á þessum flutningum því að ég nenni ekki að að flytja, en í gær og í dag hef ég þó afrekað að taka til í síðasta sinn í þessu herbergi mínu, pakkað öllu í kassa og hennt úr fataskápnum mínum meira en helmingi af fötunum, svo að eftir hálft ár þá verða einhverjir í afríku í hátísku fötum úr sautján og þessháttar búðum. Ekki amalegt það. Svo nu verð ég bara að vera "fatalaus" í tíu daga því að þá kemst ég á strikið að VERSLA allt sem að mig "vantar"
Um helgina var svo tekið á því. Eða allavega á laugardaginn mikið drukkið af vatni og öðrum vökvum svo ekki sé meira sagt og vil ég ekki tjá mig frekar um það mál hér þar sem að það gæti skaðað viðkvæmar sálir sem að lesa þetta blogg. Thíhí segi svona. En "aðgát skal höfð í nærveru sálar" heyrði ég einhverntíman sagt.
Von að ég hafi fullnægt ykkur kæru lesendur, og ég lofa að fara að blogga oftar svo að þið þurfið ekki að lesa þessar langlokur mínar.
þangað til næst, verið góð hvert við annað.
P.S. Myndbandið með Kalla Bjarna sem að ég var að leika í er komið í spilun á popptíví og sést ég alveg einu sinni í nærmynd að drekka kók...massíft
2 ummæli:
helga:
hæjjj.. jáá.. þá er ég komin aftur á klakann=S gaman gaman=p... hitti þig brááááðlega ... i hope.. áður en þú flytur!;) eg ætla eki að gera neitt annað þangað til ég fer norður en að horfa á popptivi og ég ÆTLA að sjá myndbandið hans kalla bjarna;) hehe... sjáumst;)
Og já þú fullnægðir þessum lesanda, þetta var hið skemmtilegasta blogg og spyr ég þig enn er mikill munur á að langa og vanta hjá þér híhí??? :Þ Eníveis ef þið viljið lesa um laugardagskvöldið farið þá bara á http://blomapottur.blogspot.com
Skrifa ummæli