Já ég er búin að komast að því að það er ekki sérlega sniðugt að blogga þegar að maður er svona þreyttur. Allavega í dag þegar að ég kíkti á síðuna mína þá varð ég voða hissa, og hélt að einhver hefði komist inná svæðið mitt og bloggað. En svo fattaði ég að ég hafði gert það sjálf í einhverju móki, og ekki munað eftir því daginn eftir. Skiljanlega því að 5 min eftir að ég bloggaði þá lá ég steinsofandi uppí rúmi.
Annars er bara allt gott að frétta, bara same old same old. Skólinn á sínum stað (mætti alveg skreppa i burtu en okei..) Dönsku kennarinn er gjörsamlega með þráhyggju af H.C. Andersen, sem að by the way ég veit allt um núna. Hann verður víst 200 ára á þessu ári og það eina sem að við verðum að vinna með eftir áramót er hann, hans verk og nútíma ævintýri. Svaka skemmtilegt, erum búin að lesa svona um það bil einhver skrilljon ævintýri eftir hann, og krifja þau niður í frumeindir, T.d veit ég núna að þegar að hann skrifaði Næturgalann þá skrifaði hann það útfrá því að hann væri næturgalinn. Ég veit að honum þótti einmitt svo gaman að skrifa ævintýrin útfrá þeim vínkli að hann væri inní einhverri personunni. Hann var líka víst lesblindur og fátækur.
En það besta er samt við þetta allt að við erum búin að Horfa á tvær myndir til að sálgreina svona eins og söguna um næturgalann. Það eru Kærlighed ved forste hik (nútískuævintýr) og svo Hans klaufa (H.C. Andersen ævintýr)Um kærlighed ved forste hik komumst við ekki að neinu um myndina sem að ég vissi ekki, eða ju reyndar. Robert Hansen (Victor) var´víst í einhverju dóprugli einu sinni, og ég vissi heldur ekki að danir flokki þesa sætu ástarsogu um 1.g-ara og 3.g-ara, sem ævintýr. En svo er líka Kosmos - Kaos - Kosmos. ég hélt nú að t.d allar Hollywood myndir væru þannig, byrja vel, svo kemur vesen og svo enda vel. En æji það er nú svo margt sem að maður ekki skilur í sambandi við þessa dani.
Svo í Dag var ekki danska því að donskukennarinn okkar er að vinna í kosningunum, eða er í framboði fyrir sosjal demokratana eða eitthvað svo hun fékk nú fréi á kosningadaginn sjálfann. En þá kemur þýskukennarinn og segir: jæja krakkar, þar sem að Charlote er ekki í dag þá er ég með verkefni fyrir ykkur. Það er að eftir vetrarfríið eigiði að skila inn nútímaævintýri. JESSS gaman fyrir mig að sitja og skrifa nútímaævintýri, sérstaklega þar sem að ég hef svo frjótt ýmundunarafl...
Ef að þið lumið á góðum hugmyndum plís skrifið í kommentin og segið mer hvað ég að að gera. komið með soguþráðin úr einhverri íslenskri bók eða whatever...
|
7 ummæli:
kristín þú notar nottla bara sápuóperuna mína sem nútímaævintýri!!!!
Ohh my DOG
ætla að gera það. má ég það?
helga:
hey,.. má eg svo fá eintak:D (mér á það til að leiðast svoldið;] )
já auðvitað...geymdirðu ekki bréfið með sápuóperunni ;)
Brynja: Hey, ég veit eitt um H.C. Andersen en það er að hann fæddist í Óðinsvéum :) Thíhí, voða klár!!
Annars finnst mér að þú ættir að skrifa um flipp-tímabilið okkar Kristínar Jónsdóttur í 9. bekk :)
haha, já brynja þú ert náttúrulega búin að koma til DK alveg tvisvar svo að það væri nú bara eitthvað að ef að þú vissir það ekki! ;)
En inga, þú verður að senda mér hana aftur, var að tjekka og ég geymdi það ekki, ég hélt að ég hafði gert það skom!
Brynja: Iss... mér fannst þetta voða merkilegt að ég vissi þetta ;) Thíhíhí... en ég er búin að panta far! Þann 21.mars kl. 14:35 verð ég á Kastrup ;)
(ein frekar nákvæm....)!
Skrifa ummæli