19.11.04

Æji, núna er ég pirruð!
Fór til Tannlæknis á miðvikudaginn og það var skorið fullt í munnin á mér og eitthvað vesen. Og svo var saumað fyrir, frekar ógeðslegt að vera með sauma í munninum en það er annað mál.
Var með mikla verki á Miðvikudaginn og fimmtudaginn, allt stokkbólgið og svona huggulegt. Og svo í morgun þegar að ég vaknaði var allt orðið miklu meira bólgnara og ég hélt að það hefði rifnað upp saumarnir eða eitthvað, því að þetta var svo ógeðslega vont. Hringdi í lækninn minn og hann sagði mér að koma við hjá sér áður en ég færi í skólann, sem ég gerði. þá er bólgan orðin svo mikil að hún er farin að þrýsta á framtennurnar, og ég var send heim með 600 mg íbúprófín. Og sagt að ég ætti ekki að fara í skólan, og bara fara heim að sofa...
Núna verð ég að vera heima í dag og láta mér leiðast, ég er reyndar að bíða eftir því að fá spólu senda frá íslandi, með 70min frá Miðvikudeginum, þar sem að pabbi minn var víst eitthvað að gera sig að fífli fyrir framan alþjóð. Ég allavega hlakka til að sjá þetta...

8 ummæli:

Inga Rós sagði...

æji....greyið mitt :( ég samhryggist þér :*

Kristín Alma sagði...

takk:) en það er nú enginn dáinn svo að við þurfum ekkert að vera að gera jarðaför úr þessu..ég fékk lika þessar fínu sterku verkjatöflur svo núna verð ég skæv alla helgina...

Inga Rós sagði...

skæv=uppdópuð??

Nafnlaus sagði...

helga: jamm uppdópuð!.. eg vissi nu ekki að stina min væri kominuti svona rugl;D.. en það er annað mál;);D... anywayz.. láttu þér bara batna very soon;):D... koddu so með spoluna þegar þú kemur á klakann..

en hey... er engin jólstemning þarna úti??*-) eg sem er meira að segja buin að mála pikarkökur og allt=D svo snemma í þessu;):D

Kristín Alma sagði...

jebb, eg er þokkalega skæv man! En jú brjáluð jólastemmning hérna en það vantar bara snjóninn. Horsens er Danmarks juleby nr.1...það er meira að segja til HORSENS juleøl! jolabjor sko:)

Inga Rós sagði...

haha þú verður að koma með þennan horsens juleol til koben svo við getum tekið kojufyllerí :P

Kristín Alma sagði...

hehe, já er það ekki bara málið?

Nafnlaus sagði...

helga:
hehe.. Horsens juleöl.. hm.. hljómar ekkert serlega gyrnilega.. það er eins og Garðabæjar bjórinn;D haha... yeaah riiight.. ekki myndi það slá í gegn herna heima;)... hee en þú og þinn bjor megið skemmta ykkur umjólin.. hohoho;p..

we have snooow:D