8.11.04

Ohh ég hata blogger eiginlega svoltið mikið þessa dagana. Hann vill ekki setja inn myndir hjámér, hvorki með Hello né með kóðanum... en það er efni í heila bók svo að ég held að ég sleppi því bara að skrifa um það.
jæja á Föstudaginn þá fór Jakob litli til íslands aftur og það finnst mér ekki skemmtileg, en hann kemur líklega aftur í Des, svo að ég ætti að lifa þetta af. Ég hef Láru og fleira ruglað fólk til að skemmta mér með.
Anýhú, þá fór ég svo til Láru eftir skóla, og við vorum eitthvað að spassast með Foldu og hundinum. Um kvoldið gerði Lára svo heiðarlega tilraun til að fylla mig, en það tókst ekki..(haha henni tekst það aldrei þegar hún reynir það) Endaði með að hún drakk einhverja 5 bjóra eða eitthvað fyrir mat, en sagði svo að ég hefði drukkið þá með sér..sem er ekki satt!
Kvoldið varð samt mjog skemmtilegt, Lára fór svo með Mette á eitthvað ball og ég og Folda fórum í Heimsókn til Jóa og Kristjönu.
Laugardaginn vaknaði ég svo um 11 leytið og fór að taka til, og lá svo uppí rúmi og dottaði yfir Robinson allan daginn. Svo um kvoldið þá fór ég að hitta strákana heima hjá Almari, og við löbbuðum svo á íslendingaballið og vorum þar alveg til 4 og skemmtum okkur sko rosalega vel..Allavega ég.
Sunnudagurinn fór í eitthvað rugl, Lára kom til mín og við lágum undir sæng og Horfðum á Miss Match og FRIENDS allan daginn.
Svo seint um kvoldið var svo farið bara að ná í Ömmu og Afa niðrá lestarstöð og svona, Þau komu aðvitað með fullar hendur af íslenskum mat og stuffi..líka 70min 3 og Nýjasta nylon diskinn! ÉG HATA NYLON...

3 ummæli:

Inga Rós sagði...

nei kristín nylon er málið ;)

Kristín Alma sagði...

INGA DEYÐU!!!:D nei ég elska þig með öllum þínum GÖLLUM...LOL

Inga Rós sagði...

hehehehe bara til að koma því á hreint þá fíla ég ekki nylon! og kristín e´g elska þig líka ;)