Ég var að koma heim úr skólanum rétt í þessu, sem er ekki frásögufærandi nema hvað að það kom Íranskur leikari í heimsókn(búinn að búa í Dk í 20 ár eða eitthvað), og var með svona uppistand. Nema hvað að hann notaði bara sitt líf, sem var greinilega ekki alveg dans á rósum, en hann grínaðist bara með það. Hann var að segja frá því þegar að hann var unglingur í Íran í skóla, og svona. Ótrúlega fyndinn gaur sem getur by the way ekki sagt "Rødgrød med flode" ekkert frekar en ég.
Allavega þá kom hann með ógeðslega góðan punkt. Hann var að tala um að hann skildi ekki afhverju múslimskar konur þyrftu að hafa þessar blæjur, það væri bara eins og að mála flott málverk og hylja það svo. (tek það fram aftur að þessi gaur er frá íran og var/er múslimskur)
Og svo kom han með annan MJÖG góðan punkt! hann var að tala um hvað það væri asnalegt að ef að maður væri með hæfileika til að gera eitthvað, en mætti það ekki vegna trúarbragðana, að þá ætti maður bara að horfa til Himins og segja: FUCK DIG!! og fara svo bara að gera það sem að maður ætlar sér, ekki láta trúarbrögð stoppa sig.(er auðvitað að tala um góða hluti)
Maður á að nota hæfileikana sem að maður fær!
1 ummæli:
gott blogg....gott blogg ;)
Skrifa ummæli