25.03.03
Fyrir tvemur árum uppá dag þá sat ég, gelgja í 9 bekk í skólanum og var í náttúrutíma í hádeginu. Svo hringdi síminn minn og ég hljóp útur tímanum, því að ég átti von á símtali með skemmtilegum fréttum, hljóp framá gang þar sem að allur skólinn nema minn bekkur var í hádegishléi og ég svaraði í símann. Það heyrðist ekkert þegar að ég svaraði en svo sagði ég halló aftur og heyrði þá splunkunýjan fjölskyldu meðlim gráta í símann, bara svona til að segja "hæ stóra systir og ég er komin"!
Ég grét svo mikið (af gleði auðvitað) að ég gat varla talað við pabba í símann og fengið að vita hvort að þetta væri stelpa eða strákur eða hvað. Ohh ég var svo glöð!
En núna er þetta litla skott sem að gret í símann til að láta stóru systur sína vita að hún væri komin í heiminn, orðin tveggja ára skutla, altalandi, og rosa sæt og skýr stelpa, Sem að grætur ekki lengur fyrir stóru systur í símann heldur spjallar eins og fullorðin manneskja og syngur fyrir hana á nokkrum tungumálum:)
Æji langaði bara að setja þetta hérna, ég sakna hennar svo mikið, ömurlegt að geta ekki verið með henni á afmælisdaginn, En svona er þetta víst, stóra systir bara í Danmörku og sú stutta á íslandi.
Æji það er kannski ekki mitt að vera að tala um hvað það er stutt síðan að hún fæddist og að maður trúi ekki hvað hún sé orðin stór. En þegar að maður eignast systkini þegar að maður er orðin svona gamall þá er þetta svona, maður upplifir það allt oðruvísi finnst mér, að eiga systkini sem er 15 árum yngri eða 5 árum yngri. En allavega litla systir mín orðin 2 ára og mér finnst eins og þetta hafi allt gerst í gær!
svona man ég fæðingardag litlu snúllu:)
Til Hamingju með afmælið um dagin salka mín!!!
1 ummæli:
úúú til hamingju með litlu systur! :D
Skrifa ummæli