9.3.05

Okay ég er endanlega orðin klikkuð í hausnum!
Ég sem að hélt að ég væri búin að jafna mig á gelgjunni, og komin yfir í það að finna út hver ég væri og svoleiðis. Var meira að segja búin að finna út að ég var orðinn þessi líka fíni rokkari, föður mínum til mikillar ánægju.
En nei, greinilega ekki því að ég er komin aftur útí píkupoppið og boyböndin, sem að minnir mig óneitanlega á 6-9bekk.
Hjálp!
Það sem að er inná Mp3 spilaranum núna er meðal annars:

Nik og Jay
Boys II men
98 degrees
Backstreetboys
Tænder på dig-Danska eurovision lagid (okay, það er kannski vegna þess að gaurinn er sætur)
Luna park-sem tóku þátt í undankeppninni fyrir eurovision. Garg, Þeir eru bara ungir og já.

Jæja þetta er svona það væmnasta, en svo er líka:

Maroon 5
Jeff Buckley
Scissor sisters
Öll lögin úr Shrek 2

Annars er allt gott að frétta af mér.
Ég er ekki hátt á vinsældarlistanum hjá mínu fólki þessa dagana. Ég verð nefninlega bara í viku á íslandi í sumar. Var að fá vinnu, ekki á íslandi og ekki í Danmörku, heldur í USA. Verð þar að passa og hjálpa til inná heimili hjá íslenskri konu og Amerískum manni hennar. Hún er að fara að eignast barn tvem vikum áður en að ég kem svo að henni vantar svona stelpu sem að getur létt aðeins undir með henni. Þetta er rosa fínt, góð laun, góður staður og ég er rosalega ánægð með þetta.
Ég er reyndar alveg hrikaleg flökkukind núna þessa dagana. Er að fara eftir viku til Gumma frænda í Frankfurt að hjálpa honum að kaupa sér húsgögn og eitthvað svoleiðis í nýja húsið. Það verður örugglega mjög gaman að fara þangað, byrja páskafríið á að vera með stóra apakettinum mínum.
Svo í lok apríl er ég að fara til London með Pabba. Eða við ætlum að hittast þar, æji það verður æði, bara verst að salka kemur ekki með.
Jæja Ég er svo alveg að verða 17 ára. Jiminneini hvað maður er að verða gamall! Á afmæli á mánudaginn, svo að það verður líklega haldið uppá það eitthvað þegar að Linda kemur til mín í páskafríinu.
Shahad á afmæli á morgun, 10 mars, svo að ég óska henni til hamingju með það!
Eða held að það virki betur að segja Tillykke!

4 ummæli:

Inga Rós sagði...

jájá það er bara verið að yfirgefa mann hérna á klakanum!!! svo ætlastu til að maður sendi þér afmælisgjöf út...þú færð sko enga frá mér þar sem þú ert ekki að koma til íslands kona!!!









Jæja ég var nú bara að djóka, þú færð alveg brilliant gjöf frá mér :D hehe believe me 8-)

Jah, maður spyr sig...! sagði...

Tjah, ég held að nú sértu farin að klúðra málunum - þessar fréttir með boyböndin eru hrikalegar!! Hahaha, ég get varla ímyndað mér hvernig pabbi þinn fílar þetta - einn af fyrstu starfsmönnum X-ins !! er það ekki annars?

Kristín Alma sagði...

Uss pabbi veit ekki, ég ætla ekkert að vera að segja honum það, gæti sært stoltið;)
En jú hann var þarna alveg fyrst, og alveg í einhver 5 ár eða eitthvað.
Þetta boyband "æði" verður búið þegar að þú kemur, ég lofa!

Jah, maður spyr sig...! sagði...

Ég vildi nú bara óska þér til hamingju með afmælið :) Orðinn 17 ára skvísa og hefðir getað verið komin með bílpróf ef þú hefðir nú bara haldið þig á klakanum!!
En enn og aftur, til hamingju :* Verð mætt til Danaveldis eftir viku!!