Jæja ætli það sé ekki bara kominn tími á blogg.
Salka fékk aldeilis góð viðbrogð frá lesendum þessa bloggs og líka frá fólki sem að ég hef talað við á msn, en flestir segja að hún sé ekki neitt lík mér, en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér.
Ég er hætt að sofa á nóttunni fyrir spennu, því að ég, Kristín Alma er að koma til íslands eftir nokkra daga. Það er ekki alveg komið á hreint hvenær það verður, en það verður á Þriðjudag eða Miðvikudag. Ég hlakka svo mikið til að ég byrjaði að pakka niður fyrir viku, og gera plan um hvað ég ætla að gera á íslandi. Ég set planið kannski hérna inn einhverntíman á næstunni svo að þið íslendingar góðir, getið vitað hvar ég verð.
Svo fyrir ykkur sem eruð hérna í Danmörku þá kem ég svo heim með fullt af íslensku nammi og svoleiðis fyrir ykkur. Og "Íslenskt" Snickers fyrir ákveðinn aðila...
Á föstudaginn var skóli frá 08:15 til 11:35 og vorum við bara að Horfa á American History X. Sem er Mjog góð mynd fyrir ykkur sem hafið ekki séð hana ennþá, mæli með því að þið farið og leigjið ykkur hana. Ég og Casper sátum og grenjuðum yfir endanum, en ekki láta það á ykkur fá, ég veit ekki með hann en ég grenja yfir Lion king svo að það er ekki að marka.
Í gærkvoldi hittumst við heima hjá Almari og vorum með Family guy maraþon. Ekkert smá gaman. En þegar að Lára lét loksins sjá sig um 10 leitið, hætti ég að horfa og við fórum að hlusta á einhverja eldgamla geisladiska, en svo ákváðum við oll bara að fara heim til Gaua og Láru, því að strákarnir voru eitthvað að fara að drekka, en það varð aldrei meira en einn bjór, og svo var bara horft á FRIENDS til 2 og svo bara farið heim.
Ég er ekki viss hvað á að gera í kvold, en einhversstaðar heyrði ég orðróm um Pobbarolt. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. Held að það sé samt ekkert vit í að vera að drekka núna, er ekki í stuði fyrir eitthvað svoleiðis vesen núna, ég verð bara í Pepsí Maxinu...
4 ummæli:
víí það er svo stutt þangað til að þú kemur :D og nennirðu plís að útskýra fyrir mér "íslenskt" snickers??
haha! það er nebbla ein ljóska hérna sem sagði: kristín þegar að þú ferð til íslands geturu þá keypt íslenskt snickers!
helga:
haaa... islenskt snickers.. haha.. er það eikvað öðruvisi herna en þarna uti i dk? huh:S æjj.. eg skil þetta allavena ekki=/ en heyyy... þúst.. það eru 3-4 dagar í þig.. minnz getur sko EKKI beðið:O.. özzözz.... party time;)
helga mín, ég held að ég ætti bara að kynna þig fyrir þessari ljósku sem sagði þetta! HAHAHA Snickers er alveg eins allstaðar í heiminum!
Skrifa ummæli