15.10.04

Kennaraverkfallið er bara ekkert að leysast og Mörg þúsund börn ráfa um sveitarfélögin í leit að einhverju til að gera.
Mér finnst þetta verkfall svo mikið rugl. En samt ekki, rosa skrýtið að það sé ekki hægt að borga kennurum meira, mér finnst þetta illa launuð og vanmetin stétt. Ég meina hvenrig getur fólk verið að segja að kennarar séu alltaf að kvarta og fái alveg nógu mikil laun?? Ég skil það ekki. Fólk heldur að kennarar vinni ekki mínótu meira en börnin eru í skólanum, en sú er sko ekki raunin. Kennarar þurfa að undirbúa hverja kennslustund fyrir sig, og eru að vinna á STARFSDÖGUNUM, og fleira sem að ég nenni ekki að telja upp.
Kennarar eru heldur ekki í sumarfríi allan tíman sem að nemendurnir eru í fríi, síður en svo.
Æji þetta pirrar mig svo hræðilega, Fólk hugsar ekki dæmið til enda. Ef að Kennarastéttin heldur áfram að vera svona illa Launuð, þá nennir enginn að mennta sig í 3, 4 eða fleiri ár til að verða kennari. Þar af leiðandi fáum við Lítið sem ekkert menntað fólk í kennarastöðurnar, og þá auðvitað fáum við verr menntað fólk útá vinnumarkaðinn í framtíðinni. ÞEssvegna er mikilvægt að fólk gleymi ekki að kennarar eru þannig séð lykillinn að framtíð Íslands. Auðvitað eru það við börnin sem að erum aðal lykillinn, en ef að við fáum ekki ekki góða kennara verður menntun okkar ekki uppá marga fiska og þar af leiðandi hrinur þjóðfélagið, því að við fáum verr menntað fólk í vinnu, ekki satt?

6 ummæli:

Inga Rós sagði...

þetta var fallegt blogg...mjög úthugsað og pælt :D bravó *klapp* *klapp* *klapp* ;)

Nafnlaus sagði...

Eva æði sæði: jáh....þetta eru nú pælingar í lagi verð ég að segja! hehe þið inga alveg kreisí í essum pælingum marr :P

Nafnlaus sagði...

Kristín: Já, ég er svo sammála þér!! Ég þoli þetta ekki! Kennarar eru mjög vanmetin stétt og mér finnst ekkert skrítið að þau biðji um hærri laun!! Ríkið eða eitthvað er alltaf að kaupa eitthvað, eins og einhverja styttu eða e-ð sem að kostaði alveg slatta!!:@ ég er mjög reið...úff...

Inga Rós sagði...

hahaha e-a styttu??!! :P

Kristín Alma sagði...

já shit maður verður brjálaður á að hugsa um þetta...

Inga Rós sagði...

Kristín farðu að blogga um íslandsförina þína!!! :D