6.5.05

Froskurinn stígur hraðahindrun Danmerkur

Á miðvikudaginn síðasta fór ég með öllum skólanum mínum í fjallgöngu. Eða það hélt ég.
Allavega, þá var ég mætt klukkan 08:10 uppí skóla með nesti og nýja skó (sko í alvöru) og var full eftirvæntingar eftir að fá að upplifa þessa fallegu og stórbrotnu náttúru sem að var búið að segja mér frá að væri á þessu svæði.
Og svo var lagt i'ann 3 rútur keyrðu þarna eitthvað útí buskann, keyrt var í ca klukkutíma og þá komum við að leiðarenda..að ég hélt. Neinei, þá tók bara við einhver bátur, OK við um borð og siglt af stað. ég bjóst við korteri í mesta lagi, en neinei, einn og hálfur tími takk fyrir góðan daginn sem að við máttum gjöra svo vel og dúsa í þessum bát.
LOKSINS eftir þessa skemmtilegu bátsferð þá stigum við útúr bátnum og ég batt á mig gönguskóna. Og allir stóðu í hring og peppuðu hvern annan upp og gerðu plan um hvar við ætluðum að hittast ef að við myndum tínast og þannig. Og svo var lagt af stað...
Löbbuðum í gott korter upp eina brekku sem að var alls ekki brött og svo komum við að nokkrum tröppum sem að voru svona um það bil 10 talsins. Þegar að við vorum á leiðinni upp tröppurnar þá spurði ég ótrúlega sakleysislega kennarann minn hvað það tæki nú langan tíma að labba uppá toppinn. Þá fékk ég það svar til baka að það væru ca 5 tröppur eftir og þá værum við komin. Já þá sprakk ég úr hlátri og spurði hana hvort að hún væri nú ekki að djóka. "nei" sagði hún og þegar að hún sleppti orðinu þá kom skilti sem sagði mér það að nú stæði ég á toppnum á HIMMELBJARGET!
Nú jæja fyrst maður var kominn þangað upp þá var nú alveg eins gott að rölta um og skoða staðinn og náttúruna og það allt. röltum 30 metra og þá vorum við búin að fara fram hjá 3 MINJAgripabúðum, 2 sjoppum, 1 ísbúð og 2 hótelum!!
Já allavega ef að þið farið einhverntíman á þessa hraðahindrun (eins og eg kýs að kalla það) þá mæli ég bara með því að sleppa þessari bátsferð og þessu rugli að LABBA uppá toppinn, heldur bara keyra í svona hálftíma frá Horsens og keyra bara uppá toppinn, því að það er HÆGT...
Skil ekki alveg þessa flóknu leið sem að þurfti að fara með okkur í.

En allavega þá er þetta saga fyrir blómapottinn minn, hún vildi endilega heyra hvernig var á Fucking þúfunni eins og ég kallaði þetta...já ekki bara þúfan heldur Fucking þúfan..mikilvægt að hafa fucking fyrir framan, því að ég er jú með eindæmum svo hardcore!!!

8 ummæli:

Inga Rós sagði...

hahahaha takk skorpan mín fyrir að gera þetta fallega blogg....þegar ég kem til þín heimsókn ætlum við SVO að fara upp á hraðahindrunina og vera STOLTAR af okkur...jahá! en skemmtileg lýsing...var að deyja úr hlátri hahahaha :D

Kristín Alma sagði...

Not going there again!!!
Eða jú, kannski meða þér brauðið mitt!

Jah, maður spyr sig...! sagði...

Gott blogg... skemmtileg lesning sem lífgar uppá gráan hversdagsleikann ;)

Nafnlaus sagði...

haha.. já.. varstu að búast við Esjunni ;) jaaaneeeii;D en skemmtilegt bloggg hjá þér! hjló alveg allan timan:D
en dryfðu þig baarraaa á þessa tonleika íkvöld skvis" ur gona love itt!;) *barammbabambaaaa... im lovin it;)*

Kristín Alma sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Kristín Alma sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Inga Rós sagði...

æji kristín...hvað skrifaðirðu? :P

Kristín Alma sagði...

eitthvað komment sem að kom tvisvar og á ekki heima á þessari síðu þar sem að það eru margir sem að lesa hana...Margir sem að ættu í raun ekki að lesa hana