I dag er det sgu en stor dag...Min mor har nemlig 35 års fødselsdag i dag, og min hund/hvalp er 7 måneder..! Tillykke begge to!
Allavega þá hafði ég kannski hugsað mér að reyna að skríða uppúr þeim flokki sem að ég hef verið sett í, nefninlega "letibloggaraflokkinn" og koma mér kannski uppí bloggaraflokkinn, eða allavega byrja að æfa mig fyrir ameríkuna því að þá verður maður víst að vera dygtig að blogga svo að mamma og pabbi geti nú fylgst með litlu snúllunni sinni...(mér sem sagt..hoho)
Já síðan að ég bloggaði síðast hefur MARGT gerst og ekki gerst, samt meira gerst og hætt við að gerast, ok þetta var kannski aðeins of mikið. Allavega þá er ég barasta að pæla í að fara yfir síðustu 3 vikurnar eða svo, svo að þið getið fengið svona FLØDEN af því sem að hefur gerts hjá mér síðan að ég bloggaði seinast.
Pinsehelgin var vægast sagt SVAÐALEG! Byrjaði á föstudeginum þegar að móðir mín gaf mér þennan líka fallega miða á OPEN AIR. Sem að er svona tónlistarhátið einhversskonar hérna í Horsens, tveir dagar, laugardagur og sunnudagur frá klukkan 12-12 báða dagana, með tilheyrandi bjórdrykkju, fyrirpartý-um, eftirpartý-um og miklu fjöri.
Laugardagurinn var tekinn snemma, enda 25 stiga hiti og mikill spenningur í loftinu. Byrjað á að fara í fyrirparty hjá Láru, þar hittumst við nokkur, grilluðum mat og okkur sjálf (við grilluðumst í sólinni) svo var étið og drukkið öl (að dönskum sið) fram eftir degi. Klukkan svona hálf þrjú var svo ákeveðið að fara að trilla niðureftir í Parkinn sem að þetta var haldið, og þar með voru sólgleraugun sett upp og horft á Nik og Jay, góðvini mína. Þeir voru alveg fínir, eða svona skítsæmó, annars fíla ég ekki þetta danska wannabe negrapopp sem að þeir spila. En annars þá er annar þeirra algjör rúsína, smámæltur, ljóshærður og með hrikalega blá og dönsk augu. Samt vorum ég og Peter alveg að fíla þá í botn þarna á tímapunkti, en við vorum samt svoldið sorgleg því að við vorum bæði klædd í slitnar gallabuxur, svona t-shirt með mynd eða svona setningu (æji svona flottum bol) og svo með sólgleraugu, alveg þvílíkt rokkaraleg, og syngjandi með Nik og jay, þannig að það var kannski ekki alveg að ganga...
Dagurinn gekk svo bara útá það að horfa á flottar hljómsveitir og svona, ekkert smá gaman. rölt um svæðið og kíkt á ýmislegt Hot stuff og svona. Klukkan tólf fór ég svo í bæinn og gerði ýmislegt skemmtilegt þar líka..hoho Stefnan var tekin á eftir party á Crazy daisy (sem er skemmtistaður hérna í Horsens city) en því miður náðum við aldrei þangað, en það var samt gaman.
Sunnudagurinn var einnig tekinn snemma, þrátt fyrir mikla þreytu, en þreytan var fljót að fara eftir smá sólarsleik, pönnsur sem voru borðaðar úti í sólinni og sturtubað. Þá var farið í átfit dagsins, sem að samanstóð af gallabuxum sem að voru brettar uppað hnjám, converse skóm, og "be kind" t-shirtinum sem að ég fékk frá ingu rós. Og þessi bolur vakti mikla lukku fullra dana seinna um kvöldið...
Seinni dagurinn var eiginlega betri, allavega að sumu leyti, hljómsveitirnar voru betri myndi ég segja the Loft og svo náttúrulega Ædolið mitt hann Johnny deluxe. Oh hann var ÆÐI, kræst hvað ég var hrikalega að fíla hann í ræmur, eina manneskjan sem að kunni alla textana utanað, og söng með allan tíman. Týpískt ég eitthvað, sko því að textarnir eru allir á dönsku og ég er íslensk. Svona álíka eins og einhver dani kynni bara alla textana með Gylfa Ægis. (tek það samt fram að Johnny er Miklu flottari) Já restin af kvöldinu fór svo í að frjósa úr kulda, kíkja á meira hot stuff og okkur láru var bent á það að við værum alveg drullulélegir íslendingar, því að þarna um kvöldið var orðið alveg skítkalt, og við vorum báðar í sokkum, strigaskóm, síðumgallabuxum, bol, þykkum peysum, ég svo í leðurjakkanum, og hún í púmavindjakka, við vorum báðar með stóra trefla og báðar með svona stóra þykkar 66°norður lúffur úr flísefni. Og við skulfum gjörsamlega úr kulda. En við lára dóum ekki ráðalausar og sögðum bara að við værum allavega ekki lélegir danir, því að við erum nefninlega mjög góðar í bjórdrykkju, og höfum fengið að heyra það oft og mörgum sinnum að við erum efni í mjög góða dani, vegna hæfni okkar á þessu sviði.
Allavega, eftir þetta kalda kvöld var haldið af stað í eftirparty heima hjá My vinkonu minni, sem að endaði svo í öðru partyi og svo var það ég og Johnny (ekki deluxe þó) sem að héldum mjög hress og orkumikil í bæinn, og nú átti nú aldeilis að klára dæmið og koma sér á staðinn, sem að tókst ekki alveg hjá mér og fleirum nóttina áður. Jú við komumst í bæinn en ekki á rétta staðinn, föttuðum ekki að fara á fleiri staði, þannig að við fórum bara og fengum okkur pizzu, og skelltum okkur svo í eitt heimaparty sem að við fundum, mín skreið svo heim, alveg gjörsamlega búin á því eftir þessu yndislega skemmtilegu helgi klukkan að verða 7 um morgun.
Fimmtudagurinn eftir pinsehelgina fór í það að syngja "En dag tilbage, lev mens du gør det, elsk mens du tør det" sem er einmitt partur úr lagi sem að var hrikalega vinsælt hérna í DK þegar að ég var nýflutt, fyrir næstum ári síðan. En pointið með að vera að syngja þetta var jú af því að síðasti dagurinn í skólanum var þá. Eða síðasti kennsludagurinn réttara sagt. En þarna á fimmtudagskvöldinu töpuðum við sem sagt í júróvísjón, mér og láru til mikillar undrunar, því að við sendum báðar sms og kusum náttúruleg ísland. En við vórum nú svo mjög heppnar að geta bara haldið með Jakobi sjarmatrölli í staðinn, sem að stóð sig svo með prýði á aðalkvöldinu..6 sæti eða eitthvað, ekki dårligt Jakob minn!
En föstudagurinn var sko tekin með trompi, þrátt fyrir leiðinlegt veður þá druslaðist ég nú í skólann til að borða morgunmat með bekknum mínum. Svo átti að klæða sig í búninga, en þar sem að ég var búin að ákveða að það yrði gott veður, og búin að planleggja búninginn minn í samræmi við það, þá var ég ekki alveg að nenna að standa og frjósa allan daginn í rigningunni, svo að ég fór í venjulegum fötum. Svo var verðlaunaafhenfingin sem að Almar vann sinn flokk, årets dengse, eða proffi/nördi ársins, og var sagt þegar að þetta var tilkynnt; "og Dengse ársins er...(umslagið var opnað og..) já, hlaut að vera, þegar að maður er íslendingur þá verður maður víst svona þar sem að maður kann ekki alveg á danska skólakerfið" já það voru þrír íslendingar sem að mótmæltu með púi og einhverjum hrópum, sem að niðurbældustt reyndar í hlátri hinna í skólanum, ég var ekki sátt með það, en engu að síður þá veit ég það jú best sjálf að maður þarf ekkert endilega að vera Dengse þó að maður kunni ekki á skólakerfið, ég er lifandi dæmi um það sjálf, enda algjör andstæða við almar, lærlinginn mikla.
Já, þegar að þetta var búið þá var byrjað að drekka, já, þið lásuð rétt, klukkan 10 á föstudagsmorgni´byrjaði fólkið að drekka og hrökklaðist svo af stað, uppí svona lítinn park sem að við hittum svo nokkra skóla í viðbót, sem að voru allir klæddir í svona skemmtileg föt og blindfullir í þokkabót. En jiminneini hvað var nu gaman að vera þarna, en þetta var orðið svoldið mikið svona um 3 leytið, þá skellti ég mér bara heim, lagði mig í klukkutíma, svo var bara farið að sjamma sig fyrir kvöldið, þar sem að við fórum allur bekkurinn rosalega fínt út að borða, og allir voru annaðhvort fullir eða þunnir, nema ég ótrúlegt en satt. Þetta var sem sagt þannig að sumir höfðu ekki farið neitt heim að leggja sig, og svo þegar að átti að borða mátti ekki drekka á meðan, varð að taka smá pásu, eða eitthvað, man ekki alveg af hverju, en það skiptir ekki öllu. Maturinn var æði, og allt það. Svo kom mamma að sækja okkur nokkur frá bekknum og við vorum keyrð eitthvað uppí sveit þar sem að var svona félagsheimili, þar hittum við svo restina af skólanum aftur og það var svona lítið diskótek, og það var ótrúlega gaman að sjá alla svona í öðrum gír en vanalega. svo klukkan svona 2 um nóttina var komið og náp í okkur stelpurnar úr bekknum og við fórum niður i bæ. Þá var sko tekið á því, Lára kom líka og hitti mig ásamt fleirum, og við skemmtum okkur alveg konunglega. Svo kom að aðalmálinu, það var nefninlega FROÐUPARTY!! og váááá hvað það var gaman, það var sem sagt bara sprautað froðu þarna útum allt og allir oðnir rennandi blautir og málingin farin að leka, en hverjum er ekki sama...?
Núna er ég bara búin að vera í leseferie, og prófin byrja svo 7 júní og eru búin 10 júni...´þá fer ég til íslands ef að guð lofar.
Síðasta helgi var samt frekar skrautleg, allavega föstudagurinn. Þá fór ég til My í party, sem að var mjög skemmtilegt, ég drakk pepsi allt kvöldið, eða allvega næstum allt kvöldið. My og restinni til mikillar óánægju, allir að reyna að troða áfengi á mann alltaf, en þar sem að ég er svo frek, þá var ég edrú og það er ennþá verið að tuða í mér útaf því.
Er það bara ekki í lagi að vera edrú einstaka sinnum, ég meina, þegar að ég drekk þá er ekki eins og ég sé alveg á eyrunum eins og sumir, þannig að ég fatta ekki af hverju það er gert svona mikið mál úr því þegar að ég vil ekki drekka, því að ég er alltaf bara jafnrugluð, hvort sem að ég er í glasi eða ekki..bara smá spurning..?
allavega endaði þetta party þannig að My dó í sturtunni, löggan kom og eitthvað annað fólk að deyja útum alla íbúð..hrykalega smart.
En við restin sem að vorum ekki deyjandi útum allt fórum bara á pöbbinn, og skemmtum okkur konunglega þar. En urðum samt fljótt þreytt svo að við fórum ágætlega snemma heim það kvöldið.
Nú laugardagurinn fór í það að liggja inni og blása ásjálfan mig einhverju lofti, því að það var 33 stiga hiti allan daginn, og sól. Oj hvað það var heitt, ég er ekki alveg meika svona mikin hita, en er samt að fara vera í svona hita í allt sumar, vona bara þetta venjist þá.
Já, seinnipart hitadagsins þarna, var svo farið í hlírabol, flipflops og Dökk sólgleraugu sett upp, því að maskarinn lak bara, þannig að það var ekki valkostur að vera málaður. En ég var þarna að fara í kveðjuparty hjá láru, sem að var mjög gaman, fólk í misjöfnu ástandi eins og svo oft áður, en ég og lára tókum þetta bara með stæl, vorum þarna í garðinum hjá henni að kafna úr hita, með sólgleraugu og drukkum afkælt, ódýrt jarðaberjakampavín. Sem að var mjög frískandi, en áfengið svitnaði strax út svo að ég var komin í stand 3 klukkutímum seinna til að fara að passa..!
Já þetta er svona það helsta sem að á daga mína hefur drifið, og ég hef lært mína lexíu, og héðan í frá mun ég reyna að blogga oftar, því að ég er komin með krampa í hendurnar á að skrifa svona mikið og hausverk á að hugsa svona langt aftur í tíman...
5 ummæli:
Haha..wow .. þeta hlýtur að hafa tekið margar VIKUR! úff..j´þú skalt læra af þessu stelpa!! ekki sniðugt að blogga ekkert í svona langan tíma;) hehe færð bara hausverk og verk í hendurnar;):p en hey.. 11 dagar í þig kjella! wúbbídú! sverrir bergmann strax farinn að hljóma í hausnum á mér:P
Johnny Delúx ;) er bara flottur ... "du er min elskovspony .." dýrka þetta ... heheheheh Flott síða hjá þér, og loksins getur maður kommentað hjá þér án þess að vera skráður blogspottari ;) Bkv, Ásta úr mosanum
hehehe kristin min ertu orðin það slöpp að þu getur ekki fundinn neinn íslenskari en Gylfa Ægis???? now that's sad! hahah... (hver er það annars??? *rolls eyes;)*)
hehe stina!!! þu verður svo að leyfa mer að vera svoltið "inni"...senda mer lög með þessu idoli þinu "Johnny Deluxe"...svo eg geti nu tekið lagið með þer þegar u kemur hingað á klakann!;) *ræð bara dönskumælandi manneskju til að kenna mer textann1;) haha*
en vá... þu verðskuldar nu virkilega stórt klapp fyrir þessa bloggfærslu stelpa!...KLAPP! gott að þu þjáist ekki af ritstíflu eins og sumir...sem virðast ekki geta fundið neitt frumlegra til að tala um heldur en Vinnudaginn sinn með Leoncie..and so on;) haha
...en allaveganna!...hlakka brjalæðislega til að sjá þig stelpa!:D mundu svo að taka sólina með þer;*
þetta var mjög athyglisvert blogg hjá þér kristín mín...og þú veist að þú ert ekkert að fara að slappa af þegar þú kemur á klakann...um leið og þú kemur verður tekið svakadjamm og líka sérstaklega þar sem eva á afmæli þessa helgi :D eníveis þá bara já...veit ekki hvað ég á á segja meir...man ekki hvað bloggið fjallaði um lengur, er að verða solldið geðveik út af póstinum. Eða þúst reyndar allir sem eru þarna, við hlægjum að ótrúlegustu hlutum skoooo...og já ég er víst Pósturinn Páll og Arna Njáll! Jæjah ég er hætt!
Já sjáðiði bara, því lengri sem að bloggfærslan mín er því lengri komment..hehe
Linda, já mér datt enginn íslenskari í hug, gylfi ægis er alveg hræðilega lélegur söngvari, sem að syngur einhverja sippog hoj s0ngva...og les inná marga barnageisladiska, svona h.c andersen ævintýri, s.s. fyretojet..man ekki hvað það heitir á íslensku...
Inga: haha, þú verður orðin frekara rugluð í endan á sumrinu ef að þetta er orðið svona á fyrstu vikunni..hihi
Hlakka til að hitta ykkur oll :D:D
Skrifa ummæli