31.8.04

Ég er á geðveikum bömmer núna. Ég sat í mínum mestu makindum og var að horfa á IDOLS fyrsta þáttinn sem er ekki frásögufærandi nema hvað að allt í einu þá labbar inn strákur í bláum bol, hann var mjög flippaður eitthvað og mín fyrstu kynni af þessum Yndæla pilt voru mjog góð. Kynnin fóru þó batnandi þegar að hann sagði við dómarann hej, jeg hedder Soren (eitthvað eftirnafn sem ég náði ekki) og svo hófst söngurinn. Hann var hræðilegur í alla staði, en mér fannst hann auðvitað synngja eins og lítill danskur engill af himnum ofan. Hann komst ekki áfram þannig að ég hef ákveðið að finna mér einhvern annan Soren...


2 ummæli:

Inga Rós sagði...

jééés þetta var því miður ekki hinn rétti soren!

Kristín Alma sagði...

ég virðist bara ekki hitta á þá réttu sörena. Hmm