17.1.07

Al-heilsa 2007

Nú heilsa 2007 er komin á fullt skrið, fannst ég þurfa að sinna skyldum mínum sem meðlimur í Kórsalagenginu og taka þátt í heilsuátaki, óbeint. Geri þetta eiginlega mín vegna samt, því að ég veit að þegar að ég kem til íslands næst, þá má ekki borða sælgæti eða drekka gos í sama sveitarfélagi og faðir minn er staddur í á þeirri stundu. Ef einhver vogar sér að stinga uppí sig einhverju sem er ekki lífrænt ræktað og með spelti í þegar hann er í heilsuátaki verður hann önugur og jafnvel fer í fýlu. Svo þetta er best fyrir mig að stunda heilbrigt líferni þangað til að heilsuátakið í Kórsölum gengur yfir. Bara svona uppá fjölskylduandann.
Nú þangað til að það gerist þá hef ég tamið mér betri og bættan lífstíl. Nú er hér stundaðir hnefaleikar af kappi, þar svitnar maður þangað til að allur vökvi er búinn í líkamanum. Svo eru hlaupin langhlaup í tíma og ótíma, en það erum við Fróði sem að stundum það hérna seint á kvöldin þegar að það sér okkur örugglega enginn. Þess á milli eru ávextir og grænmeti innbyrgt í óhóflega miklu magni ásamt vítamínum og nokkrum lítrum af vatni á dag. Maður hefði haldið að maður myndi sofa betur eftir að heilbrigði lífstíllinn var tekinn upp, en svo er ekki. Manni kemur varla dúr á auga, enda er pissublaðran undir ótrúlega miklu álagi með allt þetta vatn í kropnum. Þetta þarf að fara út og það verður að sjálfsögðu að vera á meðan maður sefur, eða gerir tilraun til þess.
Nú líkamleg heilsa er ekki það eina sem að þarf að rækta heldur er það blessaða geðheilsan líka. Til þess að gera það hef ég reynt að koma fjármálunum svona á nokkurnvegin réttan kjöl. Borga gamlar skuldir og þess háttar. Finna aðferðir til að spara, eins og kaupa nýtt Wildcard, en þá fæ ég afslátt af lestarmiðum. Grófar brauðsneiðar með ógurlegri hollustu sem álegg, vatn í flösku, bananar, vínber og agúrkur hafa fengið að fljóta með í skólann, enda dýrt og óhollt að éta skólamatinn. Einnig hefur mér tekist að spara fleiri þúsundir á e-bay. Keypti nefninlega Gucci töskuna frægu á mun lægra verði en gengur og gerist. Á von á að fá hana í hendurnar eftir viku. Maður verður nú að verðlauna sig þegar að maður er í svona miklu átaki.
Áfengi hefur ekki komið inn fyrir mínar varir og hef ég ekki djammað síðan á gamlárskvöld. Gæti verið að maður kíki aðeins í bæinn annað kvöld og á föstudaginn, en þá verður maður keyrandi og með vatn í flösku.
Til þess að fullkomna heilbrigða lífernið hefur lestur bóka verið mikilvægur þáttur í daglega lífinu, nú er farið uppí rúm klukkan 22.30 og lesið smá í góðri bók. Svo eru ljósin slökkt klukkan 23.00 og Bubbi spilaður þangað til að maður svífur inní svefninn.

Svona hefur þetta gengið í 2 vikur núna. Ég spái því að ég endist fram á föstudag, þetta er nefninlega alltof langt, vanalega hef ég haldið út í 2 tíma í mesta lagi.

Eina sem er eftir af áramótaheitunum er að læra að elda, hvernig ég á að kenna sjálfri mér hver munurinn er á sleif og steikarpönnu er mér enn hulin ráðgáta. Hjálp, einhver?!

Danir og Tölvur

Í næstum 3 ár hef ég búið í Danmörku. Eða eiginlega bara 2 því að ég fékk ævintýraþrá í eitt ár og skrapp út að skoða heiminn. En eftir þennan tíma þá er maður búin að kynnast ýmsu hérna í Danaveldinu og líkar flest vel. Það ver vel hugsað um mann og kerfið hérna býður uppá það að skólafólk geti sinnt náminu án þess að hafa áhyggjur af því hvort þeir eigi fyrir mat þegar að búið er að borga reikninga, leigu, bækur og allt það sem þarf að borga. Danir eru rosalega almennilegt fólk, flestir taka manni mjög vel, þrátt fyrir að maður sé útlendingur og eru voða duglegir að skilja íslensku dönskuna.
Eitt og annað fer samt voðalega í taugarnar á mér við þessa annars yndislegu þjóð og það er þegar danir þykjast kunna á tölvur. Þeir eru nefninlega dáldið í fornaldarstílnum á sumum sviðum ennþá, en vilja ekki viðurkenna það. Jú, ágætt að það sé ekki nýjasta tækni við allt, ef að "gamla" aðferðin gengur vel. Fínt, það er í góðu lagi mín vegna. En almáttugur minn, þegar á að fara að rembast við nýjustu tæknina þá er það saga til næsta bæjar skal ég segja ykkur.
Núna var ég til dæmis að ljúka við 1 önnina núna á föstudaginn. Á mánudag mæti ég í skólann til þess að fara inná Elevplan-ið (Vefsíða sem menntaskólakrakkar í DK nota ti að skipuleggja sig, sækja stundaskrár og fá einkunnir) og sjá hvort að ég væri fallin í einhverju og til þess að ná í nýju stundarskrána með nýju fögunum. Nei liggur ekki bara allt heila draslið niðri og ekki sjéns að komast inná það vegna álags á vefnum. Það var þannig á mánudaginn og svo í gær. Þannig að við vissum ekki í hvaða tímum við áttum að vera, hvar við áttum að vera eða hvort við værum fallin og fengjum yfir höfuð að halda áfram á næsta stig. Ég komst inn seint í nótt, sá þá að ég hafði náð öllu (að sjálfsögðu) en að stundarskráin mín var í bölvuðu rugli. Ég var með tíma sem ég átti ekkert að vera í og á einhverjum A og B stigum, sem námið mitt hefur ekki einu sinni. Talaði við skólann klukkan 7 í morgun og þeir sögðu að það þyrfti að finna útúr þessu og ég gæti bara komið á skrifstofuna klukkan 9, þá væri rétta stundarskráin komin og ég gæti byrjað önnina. Mætti í skólann klukkan 9 og þá var eitthvað að tölvunum þar, þannig að enginn vissi hvar ég átti að vera, ég var skráð á nafnalista inní einhverjum efnahagstíma (A stig) hjá HHX útskriftarkrökkunum á international línunni, sem gæti ekki verið meira útí hróa hött. Ég var beðin um að afsaka þetta og sagt að það væri verið að vinna í að laga tölvukerfið svo þau yrðu búin að þessu klukkan 10, áður en að næsti tími ætti að byrja. Klukkan 10.15 var loksins búið að finna útúr þessu og ég komst loksins í Samfundsfag á réttri línu og réttu ári.
Þegar að kennarinn var búin að reyna 50 sinnum að segja nafnið mitt var okkur svo sagt að í dag ættum við að horfa á mynd með hinum tveim bekkjunum. Átti að sýna þessa blessuðu mynd via tölvu. Við tók 30 mín. bið eftir að kennararnir fyndu útúr hvernig ætti að tengja hátalarana. Endað með því að það var hringt í tölvudeildina. Inn kom rauðhærður maður með krullur, horfði á vélina og hljóðið kom á. Skal veðja að hann er Írskur þessi gæji, allavega ekki danskur...

12.1.07

Búið

Spikfeit nía!! Gekk fínt. Sofa. Núna. bæ

11.1.07

Sjitturinn titturinn mellan og hóran..

Thomas 5
Camilla 7
Mark 5
Lotte 8
Kim 8
Er 9 raunhæft markmid thegar enginn hefur fengid hærra en 8? Veit ekki.

Hvernig er hægt ad ætlast til thess ad ég geti lagt lokahönd á verkefnin mín thegar ad fólk er ad koma grenjandi út frá kennaranum og sensornum. Bekkjarfélagar mínir eru nidurbrotnir sumir hverjir. Thad fer tími í ad hugga thá og hlusta á sögur theirra um hversu mikil heks sensorinn er og svo framvegis. Fólk heldur líka ad ég sé einhver enskunördi og geti endalaust verid ad hjálpa theim med einhverjar thýdingar og ordaval. Notid ordabækur.
Ekki nóg med thad, heldur er fyrrverandi, næstum thví, tilvonandi tengdamódir mín hér nánast vid hlid mér og horfir grimmdar augum á mig. Hún thráir líklega ekkert heitar en ad læsa klónum í mig. Samt hef ég ekki gert neitt af mér. Skil thetta ekki. *Flautar sakleysislega*
Veran sem situr á móti mér er heldur ekki sérstaklega frýnileg. Appelsínugul, aflitud med hárband. Get thví midur ekki sagt til um kyn thessarar veru, en hún virdist vera med skeggrót, thannig ad ég giska á ad thetta sé karlkyns. Mjög truflandi.
Annars er stemningin hérna í skólanum frekar rafmögnud eins og gefur ad skilja. Kaffi og coke hefur runnid ofaní nemendurna í lítravís og thar er ég engin undantekning. Hlakka til thegar ad ég klára thetta og labba heim med níuna mína..?
Mikið verð ég fegin klukkan 10 í fyrramálið. Þá verð ég búin að "selja" verkefnið mitt og á leið heim með eina níu. Vonandi.

Ég er bara eitthvað að fikta mig áfram með þessa síðu mína. Þetta er ekki endanlegt lúkk. Blogspot er með svo ljóta bakgrunna að það er til skammar. Ekkert nógu flott fyrir svona froskablogg.

9.1.07

Skiptibýtti.

Einbeitning óskast sem fyrst. Á sama stad er hægt ad fá nettar hardsperrur í: rassi, maga, baki, upphandleggjum og á furdulegum stad ská fyrir ofan brjóstin. Gefins.

Núna helst, takk.

6.1.07

Afsakið meðan ég æli smá

Er þetta nú það heitasta á Íslandi í dag?

Leiðinlegt fyrir Magna og allt það, en mér er alveg drullu sama. Yfirlýsing. Er það nú ruglið.

4.1.07

Betra er seint en aldrei

Best að þrykkja inn smá uppgjöri fyrir 2006.

Janúar:
  • Nýkomin heim frá Bandaríkjunum með mikla yfirvigt.
  • Fór til Íslands að til að vinna.
  • Hitti nýju tjéllinguna hans pabba og Kötlufóstrið.
  • Samþykkti þetta uppátæki
Febrúar:
  • Fór í fyrsta skipti í lífinu útá vinnumarkaðinn, 7.30 - 16.30 5 daga vikunnar.
  • Fílaði ekki að vakna svona snemma, en var alveg að slá í gegn hjá köllunum í vöruskemmu Samskipa.
  • Lærði að keyra bíl útá Álftanesi.
Mars:
  • Varð fullorðin 14.mars.
  • Katlan kom í heimin 19.mars
  • Salkan mín varð hálf stór líka 25.mars. 3 ára skvís.
  • Fékk grænt æfingarakstursskilti aftan á pabbabíl.
Apríl:
  • Hætti í karlaveldinu í Samskip
  • Byrjaði að vinna á Stelpuvinnustaðnum BabySam
  • Pabbi 37 ára
  • Páskarnir komu svo, með 30 páskaeggjum og frið á jörð eða einhverju krappi.
Maí:
  • Pabbi fór til Aþenu með Silvíu Nótt.
  • Júróvísjónpartý í Kórsölum (Þess vegna fann pabbi bjórdós undir sófanum sem ég neitaði að eiga, enda var ég edrú í partýinu.)
  • Kom í Séð og Heyrt- Á fokkíngs Forsíðuna!!
  • Áramótaheitinu náð.
  • Mamma 36 ára
Júní:
  • Guðmundur Óskarsson (móður)bróðir minn varð 30 ára
  • Partý á S1 - Og það ekkert litla partýið. Það verður talað um það þangað til að ég á stórafmæli 2008.
  • Á þjóðhátíðardaginn skellti ég mér til danmerkur, lagði lykkju á leið mína og kom við í Osló í tvo tíma - Því ég er með flugvallafettis.
  • Þegar ég komst til Danmerkur tóku Kristín og Gummi á móti mér og við keyrðum í gegnum Danmörku þvera og endilanga, framhjá Horsens og næstum til Álaborgar.
  • Þar tók við afslöppun í sumarhúsi, með ömmu, afa, mömmu og co og Óskari og Co.
  • Sund, Legoland, H&M, Skógarlýs á hundinum og lygasögur um að sólgleraugun hafi kostað undir 20 þúsund einkenndu þessa ferð.
Júlí:
  • Fékk mér eitt bílpróf
  • Komst inní skólann
  • Fór á SigurRós á klambró. Ótrúlega kósý og krúttlegt.
Ágúst:
  • Road trip til Akureyrar um verslunarmannahelgina
  • Mikið ævintýri, SigurRós í Ásbyrgi, sofið í bílnum, Sálin í sjallanum og Sund.
  • Komið heim á Sunnudegi og farið í miðbæinn um kvöldið.
  • Truntaðist til Danmerkur
  • Byrjaði í skólanum og var gjörsamlega málheft eftir að hafa verið í ár í burtu frá Baunaveldinu og líklega gleypt kartöfluna í millitíðinni.
September:
  • Námsmannalífið hófst fyrir alvöru.
  • Sagðist ætla að fara að mæta á fótboltaæfingar
  • Hef ekki enn mætt á eina einustu.
  • Bjór um helgar og bækur á virkum dögum.
  • Byrjaði að sakna Íslands.
  • Tók ákvöðrun um að fara til Íslands
Október:
  • Fór til Íslands
  • Á airwaves og það var alveg tussugaman.
  • Djamm.
  • 30 ára mömmustrákar
  • Famelíutjill í Kórsölum.
  • Keypti úlpu sem kostaði augun úr.
Nóvember:
  • Deitmánuður
  • Saknaði Íslands.
Desember:
  • Saknaði Íslands meira
  • Var óglatt fram til 24 des.
  • Þoli ekki aðventuna.
  • Fór til Íslands
  • Vann eins og mófó
  • Fékk pakka, gaf pakka.
  • Hitti fólkið mitt.
  • Borðaði á mig göt.
  • Fór út aftur, ósofin og úrill.
  • Gamlárskvöldið var líklega það skemmtilegasta sem ég hef upplifað.

Soddann.

30.12.06

Froggie var ekki lengi í paradís...

Ég var svo fegin þegar að Þóra og Pabbi tilkynntu mér það 5 dögum fyrir jól að þau ætluðu að elda hreindýr í jólamatinn en ekki sjóða rjúpur. Hoppaði hæð mína af gleði og þakkaði almættinu fyrir að nú gæti ég loksins haldið gleðileg jól. Með tár í augunum hugsaði ég tilbaka til æskuáranna þar sem að við sátum við borðstofuborðið í S-einum og rjúpuhelvítið borið á borð. Þar sem að það var skylda að borða smá af jólamatnum sem amma hafði staðið sveitt og eldað allan daginn, áður en að pakkar yrðu opnaðir. En ég gat með engu móti komið þessum hræðilega fugl ofaní mig. Endaði með að ég át kartöflur, rauðkál, baunir og sósu í jólamatinn frá 1988-1998. En ALLTAF var reynt að koma ofaní mig þessum ógeðslega hundamat. Það var ekki fyrr en jólin 1999 sem að við fjölskyldan vorum orðin svo mörg að mömmu fannst kominn tími til að við héldum okkar eigin jól. Þá voru gleðileg jól. Hamborgarahryggur í matinn og það gat ungfrúin étið og hefur étið það síðan.
Þegar að ég kom innum dyrnar í Skovglimt áðan, eftir að hafa eytt deginum í flugvél með 15 grenjandi ungabörnum og í lest með heilu sambýli af fötluðum dönum á leið í julefrokost, var mamma mjög glöð. Eitthvað sagði mér að gleðiefnið væri ekki koma frumburðarins til baka eftir 2 vikna dvöl á Ísnum. Ég hafði rétt fyrir mér eins og svo oft áður. Djöfulsins rjúpurnar voru gleðiefnið. Konan var í svo mikilli geðshræringu að hún rétt mumlaði "hæ" og hélt áfram að dansa gleðidans. Geðshræringin var kannski pínu (ó)skiljanleg þar sem að vinafólk frá Raufarhöfn hafði sent okkur/þeim 15 rjúpur og móðir mín hefur ekki fengið Rjúpur síðan árið 1999. Rjúpurnar voru svo affiðraðar og afhausaðar núna áðan og verða svo étnar annað kvöld og engar refjar. Ég spurði mömmu hvort að ég mætti ekki bara éta á Delons, sem er tyrkjabúlla hérna í bæ en fékk svar um það að ég ætti að vera hjá þeim til 00.30. Punktur.
Ég verð bara að treysta á íslenska nammið sem að ég keypti í Bónus í gær. Fínn áramótamatur...

29.12.06

Sambýlisjól Á kaldri slóð

Sambýlið hérna að Kórsölum 1 hélt heldur betur gleðileg jól.
Hér er brotabrot af dýrðinni:
(það náðist því miður ekki mynd af Þóru, sem eldaði heilt hreindýr oní okkur hin...)









-------

Skellti mér á Kalda slóð áðan. Dröllu góð mynd sem að ég mæli eindregið með. (Frumsýnd á morgun)
Var með gæsahúð, tár í augunum og svita á efri vörinni til skiptis. Hélt varla þvagi fyrir spenning og kláraði neglur af höndum og fótum.
Keep up the good work Icelandic movie-makers.


Ég og Pabbi fórum svo í 10 bíó áðan á The departed. Bara prump miða við Köldu slóðina.

Já, hefði átt að röfla meira yfir því í morgun hvað væri langt síðan ég hefði farið í bíó..

27.12.06

Stjörnuspa 2007

Fiskarnir
19.febrúar - 20 mars

Nú í upphafi árs uppgötvar þú nýjar hliðar á sjálfri þér. Lisrænir hæfileikar þínir eru margir og fá nú að njóta sín sem aldrei fyrr. Þú hefur áhuga á og mikinn hæfileika til að tjá þig á rituðu máli. Leyfðu þeirri hlið að blómstra og njóttu þín. Treystu innsæi þínu og ekki vera of sjálfsgagnrýnin og upptekin af smáatriðunum. Þú ert heldur næm fyrir skapsveiflum annara og átt það til að taka hlutina inná þig og hafa áhyggjur af einhverju sem þú berð enga ábyrgð á. Einblíndu á jákvæðu hliðarnar og njóttu ástarinnar í lífi þínu og mundu hvað lífið getur stundum verið skemmtilegt.

...Jahá, það er aldeilis.

MAMMA!




Þessi mynd er fyrir þig.
Salka var himinlifandi með pólska stellið. Sagðist nú loksins geta haldið afmælisboð fyrir okkur öll.
Og ekki spillti bleiki pappírinn fyrir. Þetta var flottasti pakkinn sagði hún, enda á ákaflega bleiku tímabili núna. Það má til að mynda enginn koma í afmælið hennar sem er ekki bleikur...
Hérna er mynd af Sölku Stirðu á aðfangadagskvöld með pólska stellið...

22.12.06

Eg þoli ekki...

Fólk sem að gengur með jólasveinahúfur og eru ekki jólasveinar.
Enn meira þoli ég ekki fólk sem að lætur börnin sín ganga með jólasveinahúfur því það er svo "sætt".

...Er ekki í lagi heima hjá ykkur?

20.12.06



Katla var ekkert hrædd við þessa ókunnugu Kristínu Ölmu sem að tróð sér inná heimilið fyrir nokkrum dögum. Sem betur fer. Kvöldið sem að ég kom lögðumst við uppí rúm og hún sagði mér allt sem að ég hef misst af á síðastliðnum 2 mánuðum....

19.12.06

Lifði af og vil meina að 66 gráður norður vörurunar séu sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður. Því að kawasaki skórnir mínir blotnuðu í gegn og mér varð því kalt á tásunum.
Næsta svona tilraun verður með Cintamani vörur. Því að ég er ekkert of viss um að skítakuldi sé bara hugarástand, eins og segir í auglýsingunni.
Finnum útúr því næst.
-Tilraunahorn Kristínar Ölmu kveður að sinni...
Ég fattaði að ég á Þórsmerkurúlpuna frá 66 gráður norður plús flísfatnað og ullarnærföt. Þetta er allt sérhannað fyrir Íslenskar aðstæður. Var bara að pæla í hvort að ég ætti prufa dressið og sjá hvort að þetta sé í raun og veru hannað fyrir íslenskar aðstæður, eða hvort að það sé bara eitthvað rugl?
Ætla að kanna þetta, núna eftir 2 min. mun ég labba hérna útá videoleigu. Skulum bara vona að ég frjósi ekki í hel...!

Dagur 2

Við Ronja liggjum uppí sófa, undir sæng og þorum ekki út. Við erum nefninlega bíllausar og munum fjúka útí buskann ef að við förum út. Tjah, eða týnast, því það er komin nótt hérna á klakanum klukkan 13 á daginn.

Ronja hefur miklar áhyggjur af því að ég verði þunglynd ef að ég hangi bara hérna í Kórsölum 1 og læt mér leiðast. Ég held að hún hafi rétt fyrir sér.

Hvar eru allir?

Komið og bjargið okkur.

18.12.06

"Veðrið í Keflavík er milt, smá úði og 6 stiga hiti" Sagði flugmaðurinn við okkur 50 farþegana þegar að við vorum komin í loftið frá Köben.


Læt ekki plata mig svona aftur. Milt veður, smá úði og 6 stiga hiti, my ass. Ég labbaði útum dyrnar á Leifsstöð og fauk útí bíl. Hefði svo þurft að skipta um föt vegna þess að ég var rennandi blaut eftir þessa 7 metra. Og með kalnar tær og fingur.


Eruði ekki að grínast með veðrið??




Svo var nú aldeilis gaman að lenda í Leifstöð og fá ekki töskuna sína. Hún var bókuð á vitlaust flug. Fæ hana á eftir, senda heim. Þá loksins kemst ég í sturtu og hrein föt.




Allra best var samt að koma í Kórsalina og sjá að það er búið að jafna herbergið mitt við jörðu. (En hin börnin í fjölskyldunni fengu ný glæsirúm og ég veit ekki hvað.)Usss, spurning um að fara að segja sig úr Kórsalafjölskyldunni. Okkur Ronju finnst þetta ekki sniðugt.




Hver vill eiga okkur?
(Haffi fylgir ekki með)





14.12.06

Driving home for christmas

Afmælis:
Christian á afmæli í dag orðinn fimm ára og ekkert smá stór og flottur strákur. Ótrúlegt að það er komið eitt ár síðan að ég yfirgaf Ameríkuna.
Til hamingju með afmælið snúðurinn minn og við sjáumst svo milli jóla og nýárs. Hlakka ekkert smá til að sjá ykkur skæruliðana mína :)


Heilsufar
Á sunnudagsmorgun/eftirmiðdag vaknaði ég raddlaus. Daginn eftir talaði ég eins og litill hrafnsungi. Á þriðjudaginn var ég komin með kvef, og vel af því. Í gær var eins og augun ætluðu að synda útúr augntotunum vegna kefs, var komin með hor uppí heila og með hitavellu. Í dag hósta ég eins og mófó og það er ekki gott, svona slímugt hóst og er frekar sloj, eins og afi myndi segja.
En ég er allavega með svona Sexy-voice eins og Phoebe í friends fékk hérna um árið. Þokkalega töff.

Danir

Skellti mér til læknis í gær og hann fór eitthvað að spurja hvaðan þetta "Sigmarsdóttir" nafn kæmi. Ég sagði að ég væri frá Íslandi. Þá spurði hann hvort ég ætlaði að halda jól þar. Já svaraði ég. Já, já, en gaman. Ætlið þið að keyra eða fljúga?? Ég skipti um lækni med det samme.

Annað
  • Búið að vera mikið í skólanum
  • Case opgaver i hverju fagi +Prófaundirbúningur
  • 2 jólagjafir í höfn 10 to go
  • Klára það í dag og á morgun
  • Var að uppgötva að ég lít út eins og fuglahræða um hárið
  • Klippikonan mín í barneignarleyfi
  • 0,3% líkur á að ég fái tíma á Hár Expó fyrir jólin
  • Á eftir að gera mikið
  • Nenni því ekki
  • Fer til Sjöppen um helgina
  • Ísland á Mánudaginn klukkan 11.50
  • Þið getið byrjað að plana móttökunefndina núna, ég tek enga fokkíngs rútu.
  • Rútur eru fyrir White trash
  • Ég á LV tösku og er þar af leiðandi ekki White Trash
Bless

11.12.06

Tag mig med til Johanna...

Á fylleríinu á föstudaginn endaði ég meira edrú en ég var í hádeginu á þriðjudaginn.
Var á bíl og allt. Veit ekki alveg hvernig það kom til, en svona er lífið bara.
Afmælisbarnið snargeðveik og segir að ég hafi svikið hana og segir að nú verðum við að fara aftur í djammgallann á föstudaginn og hella mig allavega hálfa. Fólk hefur líka verið með einhverjar óþarfa getgátur um það hvort að ég sé ólétt, því að ég hef endað á bíl síðustu 5 skipti sem ég hef farið á djammið. Heimurinn höndlar bara ekki blekaða Kristínu, er alveg nógu rugluð fyrir. Fékk til að mynda 3 sms daginn eftir afmælisdjammið mikla sem stóð í "Jæja, er maður þunnur í dag" það sér enginn mun á mér hvort að ég sé búin með kippu af túborg eða 3 orkudrykki. Og ég virðist alltaf geta skemmt mér vel, svo að það er ágætt.
En það verður "kveðjupartý" fyrir mig á föstudaginn. Því að ég er að fara í burtu í næstu viku og kem ekki aftur fyrr en 30 des, daginn fyrir gamlárs. Eins og þið sjáið þá er hvert tækifæri notað til að djamma hérna í Baunalýðveldinu. Það verður svosem ágætt, og bíllinn verður eftir heima.
En ég reyndar var að skoða myndir af djamminu frá föstudeginum og fann svolítið sem að mig langar til að sýna ykkur, ef að ykkur finnst þessi "úrkynjun" sem er í gangi heima slæm, þá skuluð þið koma til Horsens. Þessi bær er Selfoss sinnum 8. Það eru fyrirbæri hér sem að kalla sig karlkyns en eru í raun meiri konur en ég. Algjörar píkur.

Á myndunum eru strákar úr skólanum mínum. Ekki hommar. Og þetta er tekið á venjulegum föstudegi á týpískum skemmtistað hérna, sem meðal annars ég "stunda".

Langar ykkur ekki að koma í heimsókn?



...og hugsadu um thíns eigins typpi!!

Fékk allt í einu óstjórnlega löngun til ad horfa á Stellu í orlofi...

What's up with that??


8.12.06

Dóttir hvar er móðir þín, svona seint um nótt

Dísess. Ég er komin í fulla vinnu við að finna myndir af fólki sem að ég sakna og setti ekki inn myndir af pronte.

Móðir mín í föðurætt, hún Þóra, eða Fóra mamma eins og Salka kallar hana er auðvitað frábært og ég sakna hennar svo mikið að mig verkjar í hjartað.
Hlakka til að koma heim og fá alla ástina og hlýjuna. Líka matinn þinn. Enda jafnast ekkert á við þynnkupasta með Chilli og KFC-ið sem þú matreiðir af svo mikilli lyst.


Finnst viðeigandi að nefna það hérna að ég er svo að fara á fyllerí í kvöld því að tvillingarnir mínir eiga afmæli. Matur, partý og bærinn. Og McDonalds í fyrramálið.
Sjáááááumst

7.12.06

Ég skil ekki hvers vegna ég get ekki bara farið út í búð og keypt einhverjar jólagjafadruslur sem að slá í gegn og gera mig uppáhalds fram í janúar.
Nei, ég er búin að fara 5 ferðir niðrí bæ, kvickly, Bilka og Bytorvet so far er ég komin með eina jólagjöf. Skil ekkert í þessu því að í þessum ferðum mínum kem ég hlaðin pokum en það rennur líka upp fyrir mér þegar að ég er komin útí bíl aftur að ég hafi bara verið að spreða í sjálfa mig.
Var einmitt að koma úr einni Bilka ferðinni. Var þar í góða tvo tíma og verslaði fyrir 490,75 danskar. Inní því var ekki ein jólagjöf. En mér fannst hins vegar mjög mikilvægt að kaupa mér súkkulaði með kornfleksi í, alla fyrstu seríuna af Sex and the city, Christmas vacation, brjóstahaldara og bók með 300 uppskriftum af kokteilum frá 7 barþjónum í New York.
Nú get ég allavega verið í huggulegum brjóstahaldara þegar að ég horfi á Christmas Vacation og gæði mér á einhverjum framandi kokteil...

Yeah right.

P.s. Sef ekki á nóttunni því að ég sakna svo Hrossins og Hrossatemjarans...


4.12.06

Bjé manneskja

Eda kannski ætti madur bara ad hætta ad rjúfa nætursvefninn klukkan 5 á nóttinni til ad vera komin heim ádur en heimilisfólkid fer á fætur.
Madur spyr sig...

1.12.06

Heimaveiki

Ég á mjog bágt núna. Sakna Íslands alltof mikid. Thad má ekkert vera, tha er bara Orkin hans Noa all over again. Hrædilett.
En er ad reyna ad bita a jaxlinn thvi ad ég kemst ad ollum likindum heim rétt yfir jolin. Verdur stutt stopp, thvi midur. En thad verdur massa gott ad komast heim og hitta alla tharna heima i jolagedveikinni.
Nú, jólaundirbúningurinn byrjar hjá mér i dag, thvi ad amma og afi eru ad koma í heimsókn til okkar hérna á mánudaginn og ekki seinna vænna ad byrja ad taka til í ruslakompunni minni.
Sídan á eftir ad vera smá einkennileg næstu daga, thví ég er ad thykjast vera tolvunord og hakka mig i gegnum allskonar til ad reyna ad fá thessa sídu til ad líta út eins og hjá fólki.
Ef ad einhver er ofur duglegur ad fikta med svona htlm kóda (eda hvad thetta heitir) tha má sá hinn sami hakka sig inná msn-id mitt... (kristinalma@hotmail.com)

Gestur 30.000

Sá sem verdur gestur númer 30.000 fær verdlaun...


(Thetta er færsla 301)

29.11.06

Á að hækka bílprófsaldurinn?

Nú er einn prófessorinn búin að leggja til að bílprófsaldurinn verði hækkaður í 18 ár. Ef að þið hefðuð spurt mig fyrir 4 árum hvort að þetta væri sniðugt, þá hefði ég tvímælalaust sagt já. Enda sagði ég það þegar að ég var 14 ára að ég ætlaði að taka bílprófið þegar að ég væri 18 ára, en ekki 17 ára eins og þetta hefur verið. Útaf því að mér fannst 17 ára alltof ungt og ég hélt að ég myndi ekki treysta mér í að keyra bíl og axla þessa miklu ábyrgð sem að því fylgir.
Þegar að ég var 17 ára var ég í Bandaríkjunum svo að ég hafði ekki kost á því að taka bílprófið, sem að ég hefði annars gert. Af hverju? Jú því að það er ekki nokkrum manni bjóðandi að vera kominn úr grunnskóla og uppí menntaskóla bílprófslaus. Það er nánast ekki hægt, nema fyrir hörðustu kommúnista sem að eru á móti bílum og labba bara um með sína blómakransa og hasspípu útum allt.
Almenningssamgöngur á Íslandi eru til skammar og þess vegna er fínt að bílprófsaldurinn sé 17 ára, því að við vitum öll að þegar að framhaldskólagangan byrjar þá fimmfaldast félagslífið og þá er nánast ekki hægt að vera bílprófslaus. Og ekki hafa foreldrarnir tíma til þess að vera að keyra og skutla endalaust þar sem að flest fullorðið fólk á Íslandi vinna eins og skepnur og hafa ekki tíma til að ala upp börnin sín, hvað þá að keyra og skutla þeim útum allar trissur.
Á meðan að ég var að taka bílprófið tók ég strætó nánast allt. Til og frá vinnu, til vinkvennana, í bíó og allt þetta, en ég á reyndar súperpabba sem að nennti mjög oft að skutla mér og sækja mig þannig að ég er/var heppin með það og slapp vel. En strætókerfið á Íslandi er hræðilegt. Dýrt og hægt. Útlenskir spinnigal bílstjórar sem að kunna ekki íslensku og fleira og fleira.
Kvennsan vill meina að það muni miklu í þroska á þessu eina ári þarna og þar af leiðandi eigum við að keyra betur þegar að við erum 18 ára. Ég bý nú barasta hérna í Danmörku og bílprófsaldurinn hér er 18 ára. Flest slys sem verða hér eru af völdum ungra ökumanna. Það var þáttur um þetta í sjónvarpinu fyrir nokkrum dögum. Maður er nýliði í umferðinni hvort sem að maður er 17, 18 eða 23 þegar að maður fær bílpróf og það verða slys. Að sjálfsögðu eru einhverjir apakettir sem að keyra of hratt og meta ekki aðstæður rétt og annað. En mér finnst þetta rugl. Ef að það á að hækka aldurinn þá á að hækka hann uppí 30 ár. Umferðinn verður ekkert öruggari þó að 17 ára unglingar séu teknir úr umferð. Takið þá frekar langafana í burt.
Svo er talað um að ef að bílprófsaldurinn væri hækkaður um þetta eina ár þá væri maður að fá bílpróf þegar að maður væri sjálfráða. Meikar sens og auðvitað ætti það að vera þannig ef að maður pælir í því. En þá á áfengisaldurinn líka að vera átján ár. Fáránlegt að manneskjur sem eru sjálfráða, fjárráða, lögríða, meiga eiga börn, gifta sig, kaupa tóbak, spila í spilakössum, keyra bíl, kaupa íbúð, vaka til klukkan 3 á nóttinni og éta nammi á öðrum dögum en laugardögum megi ekki kaupa sér bjór og mega ekki fara inná skemmtistaði. Kommon fólk.
Svo var einn gíníusinn sem að hringdi í Ísland í býtið í morgun og sagðist nú verða að vera sammála þessu, vegna þess að morguntraffíkin myndi minnka. Allir skólakrakkarnir væru á bílum. Já af hverju eru þau greyin á bílum? Því að Strætó er bara fyrir þá sem eru haldnir mikilli sjálfspynntingarhvöt. Plús það að gatnakerfið í Reykjavík er löngu sprungið.

Ég er brjáluð.

28.11.06

23.11.06

Thad er Faraldur, Haraldur


Vaknadi í morgun ad drepast úr hálsbólgu. Er reyndar farin ad efast um hvort ad thetta sé i raun hálsbólga thví ad ég lít út eins og hamstur, sem hefur trodid 3 kílóum af sagi í hvora kinn. Sem gerir thad af verkum ad ég get ekki hreyft hausinn til hægri eda vinstri. Get ekki sagt nei, bara já.
Thetta er orugglega eitthvad alvarlegt og bráddrepandi.
Thegar ad ég kom í skólann komst ég svo ad thví ad thetta var ekki bara ég. Hálfur skólinn er veikur og restin ráfar um gangana eins og lidin lík med thykka heimaprjonada trefla um hálsinn. Kennarastofan er víst líka hálftóm. Sem væri gaman á venjulegum degi, en ekki thegar ad thetta er sídasta vikan af thessari stundatoflu thannig ad vid erum eins og litil grádug svín í glósur og annad.
Nú er thad bara treflar, te og strepsils...

22.11.06

Freyttur Froggie


Eitt stykki uppgefinn Froskur hérna megin.
Búid ad vera mikid ad gera og ég er nánast búin ad eignast líf. Svona fansý líf med bíóferdum, kaffihúsum og resturantum.
Er komin med óged af skólanum. Mikid óged. Mjog mikid.
Tharf ad finna mér eitthvad til ad hlakka til. Annars mun ég deyja...

Need some sleep

16.11.06

Fokkíngs rugl

Thetta er nú meira kjaftædid.
Djofull er ég threytt á ad thad sé alltaf tipplad á tánum í kringum thessa thrjá sem ad eru strangtrúadir múslimar.

15.11.06

Froggie á farandsfæti og tæknileg mistök





Þjóðarátakið "Kristín heim um jólin" er í fullum gangi og hefur fengið frábærar viðtökur. Fólk er (mis) duglegt að leggja þessu frábæra málefni lið, enda vita það flestir að jólin koma ekkert nema ég sé á landinu. Nú þegar hafa safnast 4.000kr síðan á mánudag og þakka ég öllum sem að hafa lagt sitt af mörkum kærlega fyrir. Með þessu áframhaldi gæti bara vel verið að Kristín verði á Ísnum um jólin.

Nú svo vil ég biðjast afsökunar á að hafa tekið bílinn hennar mömmu í leyfisleysi eina nóttina til að ná í félaga mína haugadrukkin á djammið og fara með þau heim. Þetta voru bara tæknileg mistök

...eða eitthvað.

10.11.06

Föstudagsflipp

Hvernig er annað hægt en að elska þetta 100 fermetra trampolín sem minnstu skrímslin á heimilinu eiga?
Þetta eru reyndar þriggja mánaða gamlar myndir, eða síðan ég var nýkomin í Baunaspíruland aftur eftir 8 mánaða dvöl á Íslandi. En núna er ég líka komin með massa stinnan rass af öllu þessu hoppi...

...Eða þannig.






















































Og nei, mér finnst ekkert að því að ég sitji heima hjá mér á föstudagskvöldi í náttfötum og pósti inn myndum af mér á bloggið mitt.
Mjög normal fyrir fólk á mínum aldri.
Bless, ég er farin upp í rúm að lesa Pollýönnu.

7.11.06

Gerði mér lítið fyrir í gær og labbaði heim úr skólanum. 66°norður bjargaði lífi mínu enn einu sinni. Hefði líklega ekki komist þessa 4 km án þess að vera í úlpunni frægu. Á meðan ég arkaði þetta, með Ipodinn í eyrunum þá hringdi síminn. Sem er kannski ekki frásögur færandi, nema hvað að það voru 10 missed calls og 4 SMS þegar að ég kom heim. Auðvitað 5 úr leyninúmeri, 2 frá Íslandi og svo SMS og 3 símtöl frá rugluðum dönskum vinum mínum.
Biðst afsökunar á þessu. Vona bara að enginn sé dáinn.

Annars er allt í góðu. Helgin var skuggaleg. Væj hvað var gaman. Þetta er kvöldið sem að fólk tapar sér gjörsamlega og það var yndislegt að sjá þessa ódjammglöðu dani sleppa fram af sér beyslinu og fá sér bjór, svona for engangs skyld. Svo sjaldan sem að þeir lyfta sér upp, eins og allir vita.

Næstu helgi er svo komið að okkur Íslendingunum að halda partý. Íslendingaball á laugardaginn, veit ekki hvort að maður taki upphitun fyrir það á föstudaginn, fer eftir því hvort að fólk ætli að partýast eitthvað.

Svo ætla ég að mæla með því að þið sem eigið eftir að sjá BORAT skellið ykkur í bíó. Sjúklega fyndin mynd.

6.11.06

Á ad draudga í kvold?

Líkamsárásir, Naudganir, drápstilraunir og skemmdarverk.
Mér finnst ég ekki lesa um neitt annad í Íslenskum fjolmidlum thessa daganna.
Er svona leidinlegt tharna heima eda hvad? Ekkert spennandi um ad vera, thannig ad folki finnst alveg upplagt ad naudga og drepa. Bara svona uppá grinid.
GamanGaman. Get ekki bedid eftir ad komast heim og lata naudga mer. Nenni ekki alveg ad lata drepa mig strax samt, en gæti kannski verid skemmtilegt ef ad vid myndum hittast nokkur og aflima hvort annad? Bara einn fót eda eina hendi..

3.11.06

Tjatlan, Froggie Bergmann og Zygmarr

Ekki á hverjum degi sem að það næst mynd af þessu frægasta þríkeiki sögunnar. En það gerðist nú samt hérna um daginn. Kórsalasyndromið á sínum stað og svona.
Ripp Rapp og Rupp geta bara varað sig. Hversu cool er þetta?
(Svo er ein af 1/4 mér og heilli Tjötlu.)





















2.11.06

Já og það er komin helgi!

Ekki slæmt að vera komin í helgarfrí klukkan 10.07 á fimmtudagsmorgni.
Þessi verkefnatörn er búin. Búin að framleggja. Gekk bara vel. Kennarinn minn sem að ég framlagði fyrir er svo yndislegur að mig langar að ættleiða hann.
En þetta er allavega búið og mikið er ég fegin.
Fór heim, lagðist uppí rúm og lá þar í einhverju móki í allan dag.
Það er ekki hægt að fara út fyrir hússins dyr vegna kulda. Er að krókna þó að ég sé í 66°norður úlpunni, flíspeysunni og vettlingunum.
Er að fara að passa Breka dreka núna. Við ætlum að hugga okkur saman í kvöld. Eða ég ætla að hugga mig og hann ætlar að sofa...

1.11.06

Miss Money Penny

Jólafarið mitt er eitthvað að hækka í verði.
30. þús kall - Hver vill kaupa útlimi í góðu standi? (hmmm)
Svo er skattmann með REX við mig. Ég þarf að fá upplýsingar frá þeim, sem ég hef áður fengið sent á e-mail og borgaði ekki krónu fyrir. Núna má ég ekki fá þetta á e-mail, heldur verð ég að fá umboð, það þarf að senda þetta á lögheimili foreldra minna og ég þarf að sjálfsögðu að borga milljón og eina fyrir þetta. Þetta eru upplýsingar sem ég þarf til að fá SU, sem er styrkur sem ég fæ meðan ég er í menntaskóla hérna úti(bundinn við innkomu foreldra þangað til ég verð 20 ára, og þar sem foreldrar minir, sem eg by hja eru namsmenn, a eg rett a meira en adrir). Núna hljóðar þessi styrkur uppá 1030 dkk. á mánuði. Gæti hækkað um 1000 dkk, ef ekki meira á mánuði ef ég fæ þetta frá skattmann. Hvernig á ég að borga skattman fyrir þetta, þegar að ég á ekki peninga, vegna þess að ég get ekki fengið þessar upplýsingar frá þeim til þess að fá peningana mína!
Verð að fá mér vinnu.
Hef bara ekki hugmynd um hvar ég á að fara að vinna. Langar ekkert voðalega að vaska upp einhversstaðar fyrir 20 dkk á tímann. Efast um að það séu margir sem vilja fá einhvern útlending sem að talar dönsku með skrýtnum hreim í vinnu. Gæti tjékkað á vöggustofunum hérna, það er svo gott að læra tungumál hjá litlum börnum. En veit ekki hvort að það sé vel liðið af foreldrum að það sé útlenskur pædagogmedhjælper að passa börnin þeirra.
Ég fer kannski bara áð vinna á einhverjum bar. Fullt fólk er ekki mikið að pæla í hvort stelpan sem sörverar bjórinn tali með hreim eða ekki...

Toff

Rosa Toff.
En thetta er stolin hugmynd fra mer. Mer fannst alltaf svo osanngjarnt thegar ad eg var i umferdarskolanum fyrir litlum 13 arum, an thad væri alltaf grænn og raudur KALL. Vildi hafa stelpu i kjol.
Feministinn eg.

30.10.06

Afmælishundurinn Fróði

Fróði á afmæli í dag.
2ja ára þessi litli orkubolti og gleðigjafi.
Í dag tók hann á móti gestum að heimili sínu, Skovglimt 38 í Danmörku. Eftir mikil ræðuhöld og skemmtilegheit þá voru opnaðar gjafir. Fróði fékk meðal annars; hundakex, þurrkaðar pylsur, derhúfu og hávært dót sem að vakti mikla kátínu hjá afmælishundinum, en kannski aðeins minni hjá heimilisfólki. Dótið verður fjarlægt við fyrsta tækifæri.
AfmælisHundurinn fékk svo uppáhalds matinn sinn í kvöldmat. Íslenskt slátur og harðfisk. Meðan við hin fengum grjónagraut (og ekkert slátur).
Fróði er mjög hrifinn af íslenskum mat og sælgæti. Þar ber að nefna: Bingokúlur, djúpur, skyr, nóakropp og Serjós (Þó það sé Amerískt, það fæst ekki í danmörku, þannig að það kemur alltaf með í sendingum frá ömmu og afa).
Hann er samt sjálfur alveg rammdanskur.

Læt fylgja með nokkrar myndir frá hinum ýmsu atburðum í lífi Fróða.
-Fróði kemur í hús
-Fróði lítill og sætur
-Fróði tók ástfóstri við tuskubangsa sem hét Fífí. Varð mjög leiður þegar að hann tók aðeins of harkalega á henni.
- Fróði elskar 100 fermetra trampolínið sem að við eigum. Eyðir ófáum stundunum þar. Enda ætlar hann ad verda sirkushundur thegar hann verdur stor.
Osofin, reytt og tætt med magasar.
Tharf kaffi, fleiri tima i næsta solarhring og meiri donskukunnattu.
Farin uti apotek ad kaupa heftiplastur i metravis vid magasarinu minu og roandi.

Redda mer kannski lika brunum brefpoka i leidinni...

28.10.06


Í dag þjáist ég af ofsvefni. Svaf of mikið síðasta sólarhringinn. (Það er svosem ástæða fyrir því, óverdósaði af panodil, maður verður að taka 14 töflur til að þetta slái á einhverja verki. Þá virkar þetta bara eins og svefnlyf). Sofnaði klukkan 13.00, vaknaði um 15.00 til að taka fleiri verkjalyf og sofnaði svo aftur til klukkan 18.00. Þá vaknaði ég nú bara því að ég heyrði raddir sem ég kannaðist ekki við. (S.s ekki þessar í hausnum á mér) En þá voru þetta bara heimalingarnir okkar þegar að betur var að gáð. Komnir í föstudagspizzu og Öl.
Gerði mér lítið fyrir og svaf svo í tíu tíma í nótt. Án þess að hafa drukkið áfengi eða tekið pillur. Vaknaði klukkan 12.00 eins og úldin kjúklingur. Ég er kannski bara þunn af pillunum, veit ekki.
Núna er ég að læra og að bíða eftir að einhver bjóði mér í bíó í kvöld. Er að spara djammkraftana fyrir næstu helgi. Þá verður laglega tekið á því. Þá er nefninlega J-dagur í baunaspíruveldinu. Klukkan 20.59 kemur jólabruggið frá Tuborg allir fá einn frían og þetta er sjúkt djamm. Jólabruggið smakkast alltaf eins og skítugir táfýlusokkar þannig að ég er að pæla í að taka video af þegar að við tökum fyrsta sopann.
Hvernig tölvu á ég annars að fá mér? Ég er alveg að fara að kasta þessari útum gluggann og mér á eftir.

26.10.06

I simply adore you're black leather pants...

Fíla Togga. Fíla Drengjakór Breidholts. Alla saman fíla ég í klessukoku. (Geri rád fyrir ad thad sé fíla, en ekki fýla, thví their "stínka" ekki. En samt eru their ekki fílar - hvernig í andskotanum skrifar madur thetta?)
Sjáidi bara hvad their eru litlir og sætir. Og falskir og einbeittir. Krúsímúsí. Er ekki frá thví ad thad sé einn eda tveir huggulegir tharna líka. En thad er annad mál.

Toggi og Drengjakór Breidholts í Kastaranum...





Annars hef ég thad sæmilegt bara. Komin aftur í Danaveldid og er ad reyna ad ná úr mér KórsalaSyndrominu. Skólinn byrjadur i 5 gír. Eitthvad verkefni sem ég a eftir ad fá magasár útaf í næstu viku, thví thá er deadline. Skil og Framlegging. Ég dey.
Vantar nýja tolvu.Tolvan mín er hæææg. Tók ekki nema einn og hálfann tíma ad setja inn tvo geisladiska i Itunes og henda theim svo inná Ipodinn. Held hún sé endanlega ad gefa upp ondina, litla skinnid. Thá tharf madur ad fá sér nýtt kvikindi, thvi tolvulaus er ekki hægt ad vera.
Nú, thad eru 8 vikur og 2 dagar i næstu Íslandsferd mína. Sem thýdir ad thad eru 8 vikur og 1 dagur thangad til ég fæ Jólafrí. Sem er einmitt thann 22. desember. Tharf ad pannta mida ekki seinna en í gær. Erfitt ad kaupa flugmida og tolvu thegar ad aleigan er 40 dkk. Verd ad fresta ollu svona thangad til..?
Ég er ad fara til tannlæknis a eftir. Hvad ætli madur geti grætt mikid a thvi ad standa nidra gongugotu og syngja??

24.10.06

Auknar vinsældir

Sjitt hvad siminn minn/gæludyrid er ad meika thad nuna.
Eg er adalgellan i skolanum - Allir vilja vera med mer thvi eg a svona toff sima/gæludyr.
Nuna sitja 5 manns vid bordid mitt og skoda gripinn.
Segja ad thau hafi aldrei sed svona flott(ann) sima/gæludyr og eg veit ekki hvad. Fint, thau eru ad finna fullt af trixum og fitusum sem eg kunni ekki. Buin ad kenna mer a Bluetooth og eg veit ekki hvad.
Fokk hvad eg elska gæludyrid mitt mikid.

P.s. Gæludyrid er stutfullt af myndum af rugludum donum. Vissi ekki ad thad væri tæmer a myndavelinni...

21.10.06

Mér finnst ég vera mjög fötluð núna.
Er billaus og þarf að gera milljón hluti.
Hvað gera danir þá?

-Get ekki tekið strætó
-Gæti stolið hjólinu hans pabba, en þá þarf ég að setja upp ljótasta hjálm í heimi.
-Beðið einhvern um að koma og skutla mér.
-Fengið lánaðann bíl hjá einhverjum, hverjum þá?
-Get beðið eftir að Pabbi og Þóra komi heim úr húsdýragarðinum.
-Þá verður kannski runnið af mer hvítvínið síðan í gær

20.10.06

Strembið lif

Síðan ég kom hafa verið endalausar kaffihúsaferðir, út að borða, bíó, heimsóknir, rölt í bænum, frumsýningar, kokteilboð, Airwaves, despó kvöld og meiri heimsóknir.
Helgin verður svo meira Airwaves, Kokteilpartý hjá Sjálfstæðismönnum, Fjölskylduhátíð hjá Sjálfstæðismönnum (kem þunn eftir kokteilpartýið), búðarrölt, kaffihúsahangs, partý, út að borða, vesturbæjar ís, djamm, djamm, djamm og svo Bláa Lónið.
Ég hata þetta ekki.

En að öðru.
Fór á frumsýninguna á Mýrinni í Smárabíó í gærkvöldi. Partýplanarinn sem að planaði þetta gigg var nú ekki að vinna vinnuna sína vel. Jú,þetta var fínt og flott, allt rétta fólkið og mikið af því. Mikið, mikið af fólki. Mjög gaman, boðið uppá drykki, Balti hélt ræðu og svona, allt eins og það átti að vera. Nema þegar að það átti að fara að sýna myndina. Hún var sýnd í 3 sölum, en ekki sal eitt samt. Það vantaði sæti fyrir allavega svona 40 manns. Fólk sat á gólfinu, á stólum og sumir fóru nú bara heim. Gólfið í salnum sem við vorum í var til dæmis troðið af fólki, sem sat bara í tröppunum og á einhverjum hörðum plaststólum. Þarna fór glamúrinn alveg. Mjög lélegt að hafa ekki nóg af sætum, betra að hafa of mikið af sætum heldur en of lítið. Dáldið súrt að sjá fræga fólkið sitja á gólfinu.
En myndin var mjög góð, verð ég að segja. Ég hef ekki lesið bókina, en myndin náði mér alveg. Allur tilfinningaskalinn, grátur, hlátur og viðbjóðslega spennandi. Sigurður Óli er náttúrulega dásamlegur karakter, eða kannski bara gæjinn svona sætur sem leikur hann..?
Ágústa Eva segir alveg heilar 3 línur í myndinni. Merkilegt, hún er búin að vera í öllum blöðum og í einhverjum hjúts viðtölum útaf þessari mynd, en svo er hún bara eitthvað "aukahlutverk". Væri nær að taka fleiri viðtöl við gæjann sem leikur Sigurð Óla...

18.10.06

Bla..

Vááááá hvað ég er þreytt. Búin að vera á milljón í allan dag en samt ekki búin að gera rass. Skondið.
Ég og Katlan vorum á þeytingi í allan dag, með Togga og Lay Low í bílnum og svo tjilluðum við á Kaffihúsi með Jeff who? gæjanum. Það hötuðum við ekki.
Á morgun ætlum við að fara á búðarráp og finna eitthvað flott sem að kostar ekkert. Eitthvað svona ArtýFartý sem að kostar ekki neitt. Því að ég á engin svona ljót föt svo að ég fitta ekki inní Íslenzkan kúltúr lengur.
Svo þegar að við erum búnar að finna (ókeypis) ljót föt á mig þá ætlum við að setjast á Lífræntræktaða kaffihúsið, fá okkur dredda og hlekkja okkur við vinnuvélar á Kárahnjúkum.
Drullaði Spútnik á alla meðan ég var í burtu?

17.10.06

Danish lifestyle

Spennandi að sjá hvernig ferðalagið gengur eftir að hafa eytt gærkvöldinu og nóttinni á djamminu. Var reyndar edrú (Nei, ég lýg, fékk einn túborg), en ég er samt hálf þunn eftir þennan tveggja tíma svefn. Reykurinn inná skemmtistöðunum er greinilega ekkert að fara alltof vel í mig.
En ég er að verða skotheld og vel undirbúin fyrir svefn í lest og flugvél. Hettupeysa, koddi og Ipod. Þá verð ég úthvíld þegar að ég lendi á Ísnum á eftir.
Jæja, klukkan að verða átta svo það er best að dröllast af stað svo að ég missi ekki af lestinni.
Sjáumst á eftir!!!

15.10.06

The land of Ice

Jæja, þá er það klappað og klárt.
Búin að kaupa miða til Íslands. Mér líður vel, en ekki vísakortinu.
Lendi í Leifsstöð klukkan 15.10 á þriðjudaginn. Býst að sjálfsögðu við sömu móttökum og Magni fékk þegar að hann kom til Íslands eftir Ameríkudvölina.
Ætla að vera á Ísnum í 6 daga. Á þeim tíma mun ég vera dagmóðir fyrir Kötlu, allavega eitthvað, heimsækja vini og vandamenn, tjútta, smygla mér inná Airwaves og fara að minnsta kosti einu sinni sem túristi í Bláa Lónið. Svo ætla ég líka að liggja í sundlaugunum, fá skyr og kókómjólk.
Ætla að knúsa alla, Pabba, Þóru, Sölku, Sindra, Kötlu, Ömmurnar og afana (fyrir utan ömmu Stínu sem er stödd heima hjá mér akkúrat núna, búin að knúsa hana) frændurnar og frænkurnar, vinkonurnar og vinina, Hitta gamla kollega og svo mætti lengi telja.
Þarf líka að byrgja mig upp af allskonar sem að fæst ekki í DK. Snyrtidóti (ákveðin merki sko) Serjósi og tyggjói. Jú, svo þarf ég að nota innleggsnótu sem ég á og þarf að skíra mig uppá nýtt á hagstofunni.
Þetta verður æði.
Nú er ég bara að hugsa í hausnum hvað ég eigi að taka með mér. So far er ég komin með 10 pör af skóm. Ætli ég bæti ekki við nærbuxum og tannbursta. Vííí, spennandi.
Svo í tilefni af vetrarfríi þá er djamm á morgun, mánudag. Það er svolítið spes að vera að fara að djamma á mánudagskvöldi. En það er opið á skemmtistöðum hérna alla vikuna.
Ég og Amma ætlum svo að skella okkur í bæinn og versla aðeins á morgun. Því afi sendi hana með pening, sem að ég átti að velja mér eitthvað fallegt fyrir. Litla dekurrófan ég.

Stundum finnst mér fjölskyldan mín eitthvað svona dáldið...

I wonder why

12.10.06

Ég er of sæt!


Alltaf gaman að finna svona góðar myndir af sér á netinu.
Virðist samt vera eins og ég sé annað hvort hrædd eða ofsa glöð.
Var á Gay-pride balli, edrú. Gæti verið bæði bara.

10.10.06

Ég held að ég ætti að fá nóbelsverðlaun fyrir leti.
Eða allavega fyrir það að nenna ekki neinu. Nenna ekki að læra, nenna ekki að fara út að hlaupa, nenna ekki að taka til, nenna ekki að elda mat. En gera þetta svo alveg tussu vel þegar að ég æði í verkið. (Oftast, allavega stundum)
Eldaði fyrir systikni mín á sunnudagskvöldið. Voða flókinn námsmannamat. Kjúklingaréttur með allskonar. Skammaðist mín smá þegar að systir mín (12 ára) sagði við móðurina að "Kristín væri nú ekkert svona ósjálfbjarga eins og þau hefðu haldið".
(Þess má geta að börnin átu eins og enginn væri morgundagurinn, meira að segja litla skrímslið.)

Ég þarf að eignast Sjálfshjálparbækur og Jamie Oliver.

9.10.06

Kominn tími á tuð.

Það var reið ung kona sem að mætti á æfingu í kvöld. Búin að vera rosalega vængbrotin,litil og móðursjúk eftir atburði og drama síðustu helgar, en allt í einu breyttist þetta bara í þvílíka reiði. Fór í einhvern ham þarna í "bútkampinu" mínu. Einhver auka orka sem að leystist úr læðingi og ég breyttist í villidýr þarna um tíma. Mjög gott, var líka búin á því eftir það, þar sem að það var eitthvað lítið innbyrgt af mat síðustu daga.
En allt komið í lag núna, eftir þessa æfingu. Læknaði líkama og sál.

Nú, ég og Lára skelltum okkur í bíó eftir æfingu. Ég meikaði ekki meira Uma Thurman/Meril Streep viðbjóð aftur, þannig að við skelltum okkur á World Trade Center myndina. Já, betur sleppt því. Hélt að ég væri aldeilis að fara að sjá góða ræmu, því þetta fjallar nú einu sinni um mjög merkilegann atburð. Nei, Amerískt tilfinningaklám gjörsamlega útí gegn. Tveir tímar af einhverju goddem "Tell Donna I love her" krappi. Bjóst við að ég myndi gráta voða mikið, því síðustu vikur er ég búin að grenja yfir ÖLLU sem ég sé í sjónvarpi. (Fór meira að segja að gráta yfir Go'aften Danmark hérna um daginn því að það var verið að sýna albinóabroddgölt) Ég grét á einum stað í þessari mynd. Það var í lokinn þegar að það var spítalasena. Mér fannst svo sorglegt hvað allar hjúkkurnar í Ameríku þurfa að vera í ógeðslega ljótum fötum.

Gangið hægt í gegnum gleðinnar dyr, börnin mín
- Bergmann er farin að sofa.

4.10.06

Hætt að dissa Bootcamp

Í dag fengum við Lára mjög sniðuga hugdettu, að okkur fannst. Eftir að hafa setið á kaffihúsi allan eftirmiðdaginn, slúðrað, étið og drukkið datt okkur í hug að fara og kíkja á boxklúbbinn hérna í bænum. Sem við gerðum.
Komum inn í svona típískan boxsal, svona eins og maður sér í bíó. Allt svona frekar sjabbí, en samt ákveðinn sjarmi. Stóðum þarna og sáum svo einn þann stærsta, sköllóttasta, tattúveraðasta mann sem að ég hef augum mínum litið. Hann rumdi eitthvað um hvað hann gæti nú gert fyrir okkur. Við mjálumuðum eitthvað um að við værum bara að kíkja og sjá hvort það væri eitthvað sniðugt í boði fyrir okkur. Hann rumdi eitthvað um að það væri "boxerobikk" eftir einn og hálfan tíma og við gætum bara komið og fengið frían prufutíma ef við vildum. Sagði að þetta væri nú bara svona hopp og skopp, armbeygjur og magaæfingar. Bara svona kellingatími, eins og hann orðaði það svo smekklega. Þar sem að hvorug okkar gat komið með afsökun fyrir að mæta ekki, þá ákváðum við að við skildum bara drífa okkur. Sem við gerðum.
Mættum klukkan 18.15 til að geta nú græjað okkur fyrir leikfimina. Löbbuðum í gegnum salinn til að komast í búningsklefann, mikill sviti í loftinu sem við Ojuðum yfir. Hættum því fljótt þegar að við löbbuðum aðeins lengra þar sem að nokkrir strákar voru að æfa, já berir að ofan og eitthvað svo eins og karlmenn (Sem ég hef bara ekki séð síðan í fór frá íslandi þann 8 ágúst). Jæja fórum inní búningsklefan og ég hélt, án djóks að ég væri kominn í karlaklefann. Þarna inni var sama sjón, nema þetta voru víst konur, vaxnar eins og karlmenn. Mér leist nú ekki alveg á þetta, en lét mig hafa það. Nú svo byrjaði ballið. Kellingingatíminn var nú bara hreinasta helvíti. Ég var byrjuð að grenja í upphituninni takk fyrir. Og get sagt ykkur það að þetta var ekki bara eitthvað því að ég er í svo lélegu formi. Nei, konukallarnir öskruðu í armbeygjunum og hvað þessar æfingar nú heita. Svo hjálpaði ekki að maður var með annan svona stórann, massaðann, tattúveraðann gæja (var reyndar með hár, á hausnum allavega) standandi yfir sér öskrandi á mann að maður skildi bara drullast til að klára þetta á "full fart" annars gæti maður bara fokkast heim til sín!
Svo boxuðum við líka. Í svona púða. Guð minn góður hvað ég fílaði það. ímyndaði mér að púðinn væri sá stóri, tattúveraði og varð ýkt reið og brjáluð. Þvílík útrás. En það var líka drulluerfitt, fann ekki fyrir fótum og höndum eftir boxhálftímann. Samtals var þetta einn og hálfur tími af keyrslu, eða pynntingu eins og ég kýs að kalla það.
Ég hef nú prufað margt um dagana, en þetta var ekki neitt í líkingu við, spinning, bodypump eða hlaup. Sem ég sjamma alveg eins og ekkert sé, belive it or not.
Nú sit ég hér, get varla pikkað því að ég titra í öllum líkamanum af áreynslu, hugsa að ég geti því miður ekki mætt í skólann á morgun, alla vega hjóla ekki, það er nokkuð ljóst.
Ætla á morgun að fara og skrá mig sem meðlim í boxklúbbinn og mæta samviskusamlega í þessa tíma, aftur og aftur og aftur. Finnst þetta geggjað!!

Bergmann Miljón dollarabarnið.

Ein yfirlýsing í lokinn, bara fyrir Lindu og Helgu.

"Ég ætla aldrei á klósettið aftur með annari manneskju, sérstaklega ekki í miðjum tíma."

3.10.06

Ég vil pásu núna!

1.10.06


Tillykke með afmælið elsku Lindan mín.

Ég er ekkert í mikilli fílu þó að ég hafi misst af partý-i aldarinnar.

Hafðu það gott, sjáumst eftir 15 daga ca.







Kannski ekki okkar besta móment, en heldur ekki það versta ;)

29.9.06

Heyrt í skólanum...

Kenneth: Jenne kaffekanne
Janne: Jeg er sku da ikke kaffekanne
Omar: Jenne Yogurt
Janne: Ej, det er jeg altså ikke
Kenneth: jo du er
Janne: NEJ!

Omar: Hello, Kristín
Kristín: Ja
Omar: Spiser i så is på Island?

Ég hef eitthvað misskilið, hélt að ég væri í Handelsskole en ekki Vuggestue.
Þroskað lið.

Danir eru ruglaðir. Var að fá stundarskrána mína fyrir viku 40,41,42,43. Segir mér ekki rass. Veit ekki hvenær þessar vikur eru.
Nú föstudaginn í viku 40 er dagur sem að allur skólinn fær að velja sér einn hóp til að vera í allan daginn, m.a. spila fótbolta, handbolta blómabindingu eða botsía. Frá átta til tólf verðum við í þessu. Svo klukkan tólf er reyndar barinn settur upp og fyllerí í skólanum og vetrarfríinu startað.
Föstudaginn eftir vetrarfríið erum við svo að fara í hjólatúr. 17 kílómetra út fyrir bæinn og aftur til baka. HALLO - Haldiði að mér finnist þetta stuð?
Ég var eitthvað að tjá mig við kennarann að þetta væri nú eiginlega dáldið barnalegt. Nei, þetta verður svo hyggeligt. Hyggeligt er svar við öllu hjá þessu liði. Pirrandi, þar sem ég sé ekki mikið huggulegt við það að hjóla með öllum á fyrsta ári 34 kílómetra, allir sveittir og viðbjóðslegir. Ef einhver sér hyggið í þessu, látið mig vita.

Þar sem að ég orka ekki meira svona danskt kjaftæði í dag, þá tók ég stóra ákvörðun. Ekki djamm í kvöld. Ætlaði á L.O.C. tónleika, ákvað að vera heima og slaka á. En nei, eina sem er í sjónvarpinu er SEXSKOLEN!? Danskt fólk að geraða. Újé...

28.9.06

Hef ég einhverntíman sagt ykkur hvað mér finnst móðir mín í föðurætt ógeðslega fyndin?

Allavega, hún er massa fyndin...

Tjékk it: www.sigmarg.blogspot.com

Gó Þóra!


Svo má til gamans geta að ég kom sá og sigraði, þegar að ég mætti í skólann í morgun. (Þrátt fyrir að vera með púffý augu, úfið hár og mjög ósofin) Mér tókst nefninlega að fatta þetta helvíti sem ég var að slást við til klukkan 3 í nótt. Með Ipodinn í eyrunum og kaffi á kanntinum þá massaði ég þetta, sat í tvo tíma og leysti fullt af verkefnum og reiknaði hellings. Ég er náttúrulega bara djíníus.
Nú er það bara markaðsfræðin og svo er komin helgi áður en maður veit af.
Jibbí skibbí!

27.9.06

Klukkan er hálf tvö um nótt.
Ég er ekki farin að sofa ennþá.
Ekki það að ég sé eitthvað þekkt fyrir að vera farin uppí rúm á skynsamlegum tíma, en ég er heldur ekki þekkt fyrir að vera að lesa Rekstrarhagfræði fram á nótt.
Langar að skæla núna, er búin að vera að lesa sama kaflann í tvo tíma og skil ekkert í þessu. Þarf að mæta í tímann á morgun og væla í kennaranum að útskýra þetta fyrir mér. En hann nefninlega fer yfir þetta á ljóshraða, mér finnst allir vera að kvarta yfir því hvað þetta sé erfitt og hann fari hratt yfir þetta og blabla. Engar glósur, engar útskýringar, bara keyrsla. Verkefni, verkefni, verkefni. Veit ekki hvort að það sé verið að æfa okkur í að skilja fagið eða bara hversu hratt við getum gert verkefnin.
Bara tveir tímar af Rekstrarhagfræði á morgun. Er búin með markaðsfræðiverkefnið í ensku þannig að ég slepp við tvo heila klukkutíma af ensku, búin í skólanum klukkan 10.05. Æði. Þá þarf ég að vera lengur í skólanum til að gera markaðsfræðiverkefni, á dönsku. Sem á að framleggja á föstudag. Reyndar skemmtilegt verkefni, miklar pælingar í svona einhverju sem ég nenni að pæla í.
Ahhhh verð að fara að soooofa!!!

Froggie Bergmann er farin að gráta sig í svefn.

26.9.06


Nú sakna ég aldeilis vinkvenna minna, þeirra Kötlu og Ronju. Veit að þær eru yfir sig spenntar fyrir því að ég láti sjá mig á klakanum. Ekki eru þið hin að rifna úr spenningi, svo ég kem bara til Íslands og Ignora alla nema Kötlu og Ronju.

Við saman í sólbaði í sumar...

25.9.06

Are you ready Iceland?

Eg thjaist af svo miklum valkvida ad eg get ekki gert markadsfrædiverkefnid sem ad eg a ad vera ad gera nuna. Reyndar er eg eiginlega buin med thad thvi ad thetta er a ensku. Eg er svo dugleg.

Valkvidi dagsins: Vetrarfriid er ad ad dukka upp handan vid hornid. 13-23 oktober. Helgina 12-15 okt er eg reyndar i sma djobbi. En 16-23 okt er bara fri hja mer. Sem thydir thad ad ef ad eg fer til Islands, tha næ eg Airwaves ef ad eg timi ad borga milljon fyrir thad thad er ad segja. Næ ad hitta alla og komast i annad umhverfi og svona.
Hitt er ad thessi vika herna i DK er su besta sem ad er allt arid. Magnad helviti. Tvhiverdur ekki lyst med ordum.

Er Island til i ad fa stelpuna a klakann??

Orlog min eru i ykkar hondum...Vote now!

24.9.06

Systur mínar eru farnar að vera ansi kræfar á fataskápinn minn. Núna til dæmis eru þær á leið í afmæli, önnur í buxum af mér (sem eru ekki nema 5 nr of stórar á hana. Toff) og hin í skóm af mér. Svo heimta þær að nota sléttujárnið mitt, sjónvarpið mitt, geisladiskana mína, skartgripina mína og auðvitað misstu þær lappirnar og strætó hætti að ganga þegar að ég fékk bílpróf.
Magnið af dóti sem ég fæ frá þeim; Ipodinn fæ ég stundum lánaðann þegar að ég fer út með hundinn OKKAR, D&G belti sem önnur á hef ég fengið einu sinni, í nótt svaf ég í bol af systir minni, en hún var líka í AC Horsens bolnum mínum, skrúfblýantur og strokleður.
Af hverju stel ég ekki fötunum þeirra? Því þau eru ekki nógu töff. Sem er einmitt af hverju þær taka mín föt.
Mjög fegin að Katla og Salka séu enn svona litlar. Þó að Þóra sé mjög kræf á sokkana mína.
Ok, gleymið færslunni hérna á undan.
2 sek eftir að ég var búin að ýta á "publish post" þá fékk ég símtal. Á hinum enda línunar var spurt "ertu ekki að koma?" Þá var auðvitað partý í hvíta húsinu og ég vissi ekkert af því. En hennti mér í pils, aðra hæla, hrissti faxið, setti Cult í poka og keyrði í hinn enda bæjarins.
Þar fann ég meðal annars fólk sem að ég talaði dönsku við, fann svo út að þau voru Íslensk, ætlaði að tala íslensku en fékk svar á dönsku. Já, Krakkar sem kunnu ekki Íslensku eftir að hafa búið hér í 4 ár. HALLÓ? Hálf-fullorðið fólk sem að talar ekki sitt eigið tungumál.
Jæja, ég sat og þambaði Cult þar til að ég sá stjörnur og koffein magn líkamans var orðið óbærilega mikið, þá dróg ég liðið í bæinn. Fólk þorði ekki með mér í bílinn því að það hélt ég væri full. Sem ég var jo ekki.
Mættum í bæinn, ég blikkaði alla sem að ég gat hugsanlega blikkað og kom mér inná staði þar sem að ég átti ekkert að vera. Gott að vera vinkona dyravarðanna.
Mikið stuð. Dansað og malað. Kíkt á "kremfressin" eða stelpustrákana.
Drakk Cult, var í Friis og Co frá toppi til táar, (einhver sem vill kannast við þetta tvennt?) Stúderaði hversu mikið meik væri hægt að spassla framan í sig, hversu mikið af hárgeli/vaxi væri hægt að hafa á hálfum fermetra, hversu mikið silicon væri hægt að hafa í einu brjósti án þess að það myndi springa og hvernig maður getur orðið svona appelsínugulur og aflitaður...
Já gott fólk í nótt var ég á Pravda Danmerkur. SKÁL.

23.9.06

Konulíf

Ómæ.
Vaknaði klukkan 10.30 í morgun, þykk þrátt fyrir djamm kvöldið áður. Tók til, náði í Gumma&Kristínu á lestarstöðina, fór í bakaríið í spandexinu svo allir myndu nú örugglega vera með það á hreinu að ég hefði verið búin að skokka 5 km fyrr um morguninn.
Átum, kjöftuðum, héngum í sófanum, ég var pínd, bitin, klóruð og kitluð af ástkæra (móður)bróðir mínum.
Lagði mig. Vaknaði, fór í sturtu og blés hárið fyrir matinn. Borðaði mat með 5 settum af hnífapörum og með servíettu í kjöltunni. Fór með unga í bíó, át haribo.
Nú er mér illt í maganum, með maskara, gloss, blásið og sléttað hár í mjög dýrum stígvélum, klukkan er 23.44 á laugardagskvöldi og ég er ekki búin að opna bjór. Það sem meira er þá sit ég fyrir framan tölvuna og nenni ekki einu sinni að kíkja á SMS-ið sem ég var að fá.
Líður illa.
Ég er að verða kona!!!!!!

-Bergmann

22.9.06

Ohh, ég nenni ekki að blogga á ykkur.
áðan sjoppaði ég þangað til ég droppaði.
Keypti bara lífsnauðsynlega hluti eins og vanalega. Rótaði á útsöluslám í H&M ótrúlegt en satt. Gerði nokkuð góð kaup verð ég að segja, nærbuxur á 20kr, hlíraboli á 30kr og svona hitt og þetta. Svo var ég búin að vera svo hagsýn, allir hlutirnir sem ég keypti í H&M eru hlutir sem að eru mjög praktískir nefninlega, þá fór ég í Friis og Co og kaupti stígvél fyrir aleiguna. Ég og Afgreiðslukonan vorum báðar að réttlæta þessi stígvélakaup fyrir mér. Að þau pössuðu nú við allt, buxur, gallabuxur, pils og kjóla. Voða gott að labba í þeim því að hællinn er ekki of hár og blabla. Endaði með að ég straujaði kortið.
Nú þarf ég bara að æfa mig að labba á þeim og líka æfa mig að melta loft því að það eru engir peningar til að kaupa mat út mánuðinn.

Gleðilegt djamm.

Bergmann Out

16.9.06

Tár, bros og takkaskór

Fór á Aðalfund Íslendingafélagsins áðan.
Tróð mér ekki í neinar nefndir, kaus bara í stjórn og rétti upp hendi þegar að mér fannst það viðeigandi. Tróð mér og annari í fótboltalið kallana. Sé til hvort ég nenni að mæta svo, sagðist ætla að keppa á klakamótinu og allt, því að þetta væri bara eitt stórt helvítis pulsupartý. Sjáum til hvort að ég mæti á æfinguna á þriðjudag.
Á einhver legghlífar og takkaskó?

Byrja íþróttaferil minn á því að fara á djamm í kvöld. Íslendingaball og læti.

Rock on dudes!

15.9.06

Veiii!!!

Eg var spurd um hvort eg væri uppalin i Danmorku....!

Tala kannski ekki eins og spassi eftir allt???

14.9.06

Ofurskipulogdu danirnir eru svo miklir kjanar.
Af hverju i fjandanum er eg til dæmis med tvær stundaskrar fyrir næstu 3 vikur? (onnur stundaskrain min sidan eg byrjadi)
Adalstundaskrain segir ad eg eigi ad mæta klukkan 10.00 a manudogum. En hin segir ad eg eigi ad mæta klukkan 8.00 Semsagt adalstundaskrain segir ad eg se med eydu einhversstadar, eigi ad mæta seinna eda buin fyrr. tha verdur madur alltaf ad kikja a hina stundaskrana til ad sja ef ad madur eigi kannski bara ad vera i tima a thessum stodum. Their geta ekki sett bara thessar tvær stundaskrar saman, nei thad er ekki hægt.
Nu eftir 3 vikur fæ eg svo nyja stundaskra og thad verdur spennandi ad heyra hvernig programmid verdur tha. Meeeen hvad eg hata thetta ad thad se ekki bara ein stundaskra fyrir hverja onn, ekki 3 timabil og 2 stundaskrar i gangi a sama tima. Thad er natturulega ekki nogu erfitt ad muna i hvada fogum madur er hvada dag, i hvada stofu thad er, a hvada hæd, innum hvada inngang er best a fara til ad komst ad stofunni, hvada krokkum madur er med og allt thetta. Nei best ad flækja thetta nu og lata okkur gera thetta 3 a onn. Kulijo!

Jæja, 10 min i ad ensku timinn byrji. Hvar ætli stofa 601 se??

12.9.06

Svona er maður fyndin!

Þrjár íslenskar stelpur setjast við barinn á dönskum skemmtistað, spjalla, flissa kíkja eftir einhverju góðu.
Eftir 5 min kemur barþjónninn og spyr hvaðan þær séu. Íslandi segi ég. Hann hefur komið til Íslands og finnst það æðislega fallegt og blabla.
Stuttu seinna kemur strákur og spyr hvaðan þær séu. Svona gengur þetta og þessar píur nennar nú ekki að vera að eyða kvöldinu í að tala við einhverja lúða. Ákváðu að fyrst þær vöktu svona mikla athygli fyrir að vera frá öðru landi, þá skyldu þær nú skála bara við alla gæjana sem voru þarna.
Þeir voru til og spurja hvernig maður segi "Skál" á Íslensku. Þær svara og þeir reyna að segja það en það gegnur ekkert vel fyrst, en eftir langa og stranga kennslu tekst þeim að segja það. Allt kvöldið koma fleiri strákar og tala við þessar útlensku stelpur og þær kennar þeim að segja skál á íslensku.
Svo fengu þær nú nóg af því að sitja eins og heftaðar við barinn, kvöddu barþjóninn vin sinn og héldu út.
Á leiðinni í gegnum barinn heyrðist "SÍMASKRÁ!" og glösum lyft úr öllum áttum þegar að þær löbbuðu fram hjá.

Love this..!!

P.S. Vona bara að enginn þeirra þekkji aðra Íslendinga..muhaha

10.9.06

Að grípa gæsina meðan hún gefst?

Ég á mjög erfitt með að læra það.
Kunni það einu sinni og var íkt góð í því.
Núna uppá síðkastið er ég búin að horfa á eftir of mörgum gæsum fljúga burt.
Fucking gæsir!

En men hvað var gaman í gær, takk fyrir kvöldið allir.

(Sé til hvort að það sé hægt að þurka út það versta af því sem gerðistá djamminu um helgina og setja það innan í internetið án þess að amma fái hjataáfall fyrir aldur fram)

7.9.06

Ástin...

Spyr ekki um aldur, nöfn né skóstærð.
Heldur ekki peninga.
Nú er ég tildæmis ástfangin. Fangi ástarinnar. Mjög dramatískt.
Fjarband eins og er, kikna í hnjánum alltaf þegar ég sé mynd af henni.
Alltaf.
Verð að fá hana til mín, hún þarf að koma til mín og hjálpa mér í gegnum skólann.
Halda á bókunum, pennaveskinu, tyggjóinu, glossinu, gemsanum og hjólalásalyklinum fyrir mig, ég er ekki fær um að gera það ein, ekki með stíl allavega. Núverandi reyndar er sæmileg, en ekki nógu góð. Enda er hún bara Topshop, samt viss klassi yfir henni en engin Gucci eins og ástin.
Dusta rykið af vísanu og þakka fyrir að ég á ekki börn sem ég þarf að fóðra.

Hér er orginalið, þessi elska


















Ég hef ekki fundið feikið á netinu (kaupanlegt), þannig að ef einhver er að fara til fakemerkjalanda eins og Tyrklands, Búlgaríu eða kína þá má hinn sami kontakta mig og taka vísað mitt með (samt á það bara að notast til að kaupa þessa elsku).

Langaríana núna!
Hefði ekki átt að segja ykkur að ég væri í bloggátaki.
Ég hef ekkert að blogga um nema skólann.
Það er leiðinlegt að blogga um hann á hverjum degi, þó að það gerist mjög mikið á hverjum degi.

Rendar er ég komin með "fritidsjob" tvisvar í viku, þrjá tíma í senn. Passa Breka meðan mamman er í skólanum og pabbinn er í skólanum. Fínt, smá peningur og ekkert voðalega leiðinlegt að snúllast eftir skóla með svona litinn kút. Við kíkjum bara á barinn og svona. Dejligt.

Hefði átt að byrja þessa færslu á "kæra dagbók"

6.9.06

Solheimar




Pabbi, Thora, Salka og Katla voru ekki a Lanzarote eins og folk helt.
Heldur voru thau a Solheimum.

Sja mynd.

P.S. Eg er i bloggataki i thessari viku.

5.9.06

Våååå hvad ErhversØkonomi væri sjuklega lett fag ef ad madur skildi eitthvad af thessum 15.thusund ordasambondum sem eru notud. Eg er reyndar voda klar i ad finna utur thvi sjalf en thad tekur tima, thannig ad hausinn a mer er vid thad ad springa loksins thegar eg er buin ad lesa (tharf reyndar ekki mikid til) og a ad fara ad gera verkefni.
Svo er annad daldid fyndid i thvi fagi ad madur tharf ad thekkja allskonar "fræg" fyrirtæki, budir og verksmidjur. Vei, eg veit hvad Bang og Olufsen er, SamsøSamsø og Deres. Svo i morgun thegar ad vid attum ad vera ad vinna verkefni med einhverja rugbraudsverksmidju og slåturhus, tha var eg dåldid mikid uta tuni. En thad reddadist.
Ole Harby, kennarinn minn i thessu fagi var kennari a Grænlandi i einhver år og thegar hann var ad lesa okkur upp i fyrsta sinn i morgun så hann nafnid mitt og sagdi...Nohh, Island hva? Svo kom rædan um ad hann hefdi nu verid a Grænlandi i nokkur ar og jarijari. So, mer er sama!! Island og Grænland er ekki sami hluturinn. Nu halda krakkarnir sem eg verd med i tima næstu 5 vikurnar ad eg se einhver Grænlenskur ålfur....

to be continued - Kristin Grænlenska

31.8.06

Þakka kommentin sem hafa ringt yfir síðustu færslur.
Ég þurfti að taka mér frí í skólanum til þess að geta svarað öllum þessum kommentum.

Greinilega einn diggur lesandi og það er AMMA!
Takk fyrir.

Tikkerinn segir samt oftast um 100 heimsóknir á dag, spurning um að amma ætti að fara að fá sér hobbý, en ekki bara ýta á refresh allan daginn.

Nú er það bara comment or die!

Töff löv beibís.

Miss pirrípú