10.11.06

Föstudagsflipp

Hvernig er annað hægt en að elska þetta 100 fermetra trampolín sem minnstu skrímslin á heimilinu eiga?
Þetta eru reyndar þriggja mánaða gamlar myndir, eða síðan ég var nýkomin í Baunaspíruland aftur eftir 8 mánaða dvöl á Íslandi. En núna er ég líka komin með massa stinnan rass af öllu þessu hoppi...

...Eða þannig.






















































Og nei, mér finnst ekkert að því að ég sitji heima hjá mér á föstudagskvöldi í náttfötum og pósti inn myndum af mér á bloggið mitt.
Mjög normal fyrir fólk á mínum aldri.
Bless, ég er farin upp í rúm að lesa Pollýönnu.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Draumastúlkan hennar ömmu hihi

Kristín Alma sagði...

Já amma, þú getur verið stolt af mér í kvöld, því að ég var rétt í þessu að skutla móður minni, dóttir þinni á fyllerí.
Kem til með að fara með henni á Íslendingaballið og keyra hana heim...

Nafnlaus sagði...

Það vill að þið eruð báðar "draumastúlkurnar" mínar, alltaf til fyrirmyndar

Nafnlaus sagði...

Hæ! Stefán hérna. Þú kannast kannski við mig af Sonju síðu sem Stefán rassgat (ég er svo mikið rassgat).
En þannig er mál með vexti að ég er að leita mér að stelpu til að fara í sleik við og mig langar að fara í sleik við þig. Ert þú til?
Bless

Nafnlaus sagði...

Hey!! Ég mæli með Pollýönu, það er góð bók og skemmtileg ;) hehehehe