29.11.06

Á að hækka bílprófsaldurinn?

Nú er einn prófessorinn búin að leggja til að bílprófsaldurinn verði hækkaður í 18 ár. Ef að þið hefðuð spurt mig fyrir 4 árum hvort að þetta væri sniðugt, þá hefði ég tvímælalaust sagt já. Enda sagði ég það þegar að ég var 14 ára að ég ætlaði að taka bílprófið þegar að ég væri 18 ára, en ekki 17 ára eins og þetta hefur verið. Útaf því að mér fannst 17 ára alltof ungt og ég hélt að ég myndi ekki treysta mér í að keyra bíl og axla þessa miklu ábyrgð sem að því fylgir.
Þegar að ég var 17 ára var ég í Bandaríkjunum svo að ég hafði ekki kost á því að taka bílprófið, sem að ég hefði annars gert. Af hverju? Jú því að það er ekki nokkrum manni bjóðandi að vera kominn úr grunnskóla og uppí menntaskóla bílprófslaus. Það er nánast ekki hægt, nema fyrir hörðustu kommúnista sem að eru á móti bílum og labba bara um með sína blómakransa og hasspípu útum allt.
Almenningssamgöngur á Íslandi eru til skammar og þess vegna er fínt að bílprófsaldurinn sé 17 ára, því að við vitum öll að þegar að framhaldskólagangan byrjar þá fimmfaldast félagslífið og þá er nánast ekki hægt að vera bílprófslaus. Og ekki hafa foreldrarnir tíma til þess að vera að keyra og skutla endalaust þar sem að flest fullorðið fólk á Íslandi vinna eins og skepnur og hafa ekki tíma til að ala upp börnin sín, hvað þá að keyra og skutla þeim útum allar trissur.
Á meðan að ég var að taka bílprófið tók ég strætó nánast allt. Til og frá vinnu, til vinkvennana, í bíó og allt þetta, en ég á reyndar súperpabba sem að nennti mjög oft að skutla mér og sækja mig þannig að ég er/var heppin með það og slapp vel. En strætókerfið á Íslandi er hræðilegt. Dýrt og hægt. Útlenskir spinnigal bílstjórar sem að kunna ekki íslensku og fleira og fleira.
Kvennsan vill meina að það muni miklu í þroska á þessu eina ári þarna og þar af leiðandi eigum við að keyra betur þegar að við erum 18 ára. Ég bý nú barasta hérna í Danmörku og bílprófsaldurinn hér er 18 ára. Flest slys sem verða hér eru af völdum ungra ökumanna. Það var þáttur um þetta í sjónvarpinu fyrir nokkrum dögum. Maður er nýliði í umferðinni hvort sem að maður er 17, 18 eða 23 þegar að maður fær bílpróf og það verða slys. Að sjálfsögðu eru einhverjir apakettir sem að keyra of hratt og meta ekki aðstæður rétt og annað. En mér finnst þetta rugl. Ef að það á að hækka aldurinn þá á að hækka hann uppí 30 ár. Umferðinn verður ekkert öruggari þó að 17 ára unglingar séu teknir úr umferð. Takið þá frekar langafana í burt.
Svo er talað um að ef að bílprófsaldurinn væri hækkaður um þetta eina ár þá væri maður að fá bílpróf þegar að maður væri sjálfráða. Meikar sens og auðvitað ætti það að vera þannig ef að maður pælir í því. En þá á áfengisaldurinn líka að vera átján ár. Fáránlegt að manneskjur sem eru sjálfráða, fjárráða, lögríða, meiga eiga börn, gifta sig, kaupa tóbak, spila í spilakössum, keyra bíl, kaupa íbúð, vaka til klukkan 3 á nóttinni og éta nammi á öðrum dögum en laugardögum megi ekki kaupa sér bjór og mega ekki fara inná skemmtistaði. Kommon fólk.
Svo var einn gíníusinn sem að hringdi í Ísland í býtið í morgun og sagðist nú verða að vera sammála þessu, vegna þess að morguntraffíkin myndi minnka. Allir skólakrakkarnir væru á bílum. Já af hverju eru þau greyin á bílum? Því að Strætó er bara fyrir þá sem eru haldnir mikilli sjálfspynntingarhvöt. Plús það að gatnakerfið í Reykjavík er löngu sprungið.

Ég er brjáluð.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bíll er tvennt. Samgöngutæki og leiktæki. Það á að banna nýliðum að vera á leiktækjum. Annars var bílprófsaldurinn lækkaður fyrir ca 10 árum í 16 ára, en með ströngum skilyrðum. Sextán ára mega keyra í fylgd með fullorðnum. Það hefur skilað því að nýliðar mæta betur undirbúin þegar þeir fara að keyra aleinir. Það ætti að lækka þennan aldur í 15 ára og taka upp sólópróf 16 ára og takmarka það afl sem yngri en 22 ára mega vera með í bílunum sínum, þannig er það í flugi.

Þarf maður að vera kominn með sjálfræði til að renna sér á skíðum á 100 km. hraða? Nei.

Það er líka betra að foreldrar fái að fylgjasat með barninu sínu á meðan það keyrir bíl fyrstu árin, það er hægt ef barnið er ekki komið með sjálfræði. :)