Christian á afmæli í dag orðinn fimm ára og ekkert smá stór og flottur strákur. Ótrúlegt að það er komið eitt ár síðan að ég yfirgaf Ameríkuna.
Til hamingju með afmælið snúðurinn minn og við sjáumst svo milli jóla og nýárs. Hlakka ekkert smá til að sjá ykkur skæruliðana mína :)

Heilsufar
Á sunnudagsmorgun/eftirmiðdag vaknaði ég raddlaus. Daginn eftir talaði ég eins og litill hrafnsungi. Á þriðjudaginn var ég komin með kvef, og vel af því. Í gær var eins og augun ætluðu að synda útúr augntotunum vegna kefs, var komin með hor uppí heila og með hitavellu. Í dag hósta ég eins og mófó og það er ekki gott, svona slímugt hóst og er frekar sloj, eins og afi myndi segja.
En ég er allavega með svona Sexy-voice eins og Phoebe í friends fékk hérna um árið. Þokkalega töff.
Danir
Skellti mér til læknis í gær og hann fór eitthvað að spurja hvaðan þetta "Sigmarsdóttir" nafn kæmi. Ég sagði að ég væri frá Íslandi. Þá spurði hann hvort ég ætlaði að halda jól þar. Já svaraði ég. Já, já, en gaman. Ætlið þið að keyra eða fljúga?? Ég skipti um lækni med det samme.
Annað
- Búið að vera mikið í skólanum
- Case opgaver i hverju fagi +Prófaundirbúningur
- 2 jólagjafir í höfn 10 to go
- Klára það í dag og á morgun
- Var að uppgötva að ég lít út eins og fuglahræða um hárið
- Klippikonan mín í barneignarleyfi
- 0,3% líkur á að ég fái tíma á Hár Expó fyrir jólin
- Á eftir að gera mikið
- Nenni því ekki
- Fer til Sjöppen um helgina
- Ísland á Mánudaginn klukkan 11.50
- Þið getið byrjað að plana móttökunefndina núna, ég tek enga fokkíngs rútu.
- Rútur eru fyrir White trash
- Ég á LV tösku og er þar af leiðandi ekki White Trash
7 ummæli:
senda docsa þetta
http://files.biggibraga.is/island2.wmv
Stína mín, ég skal sækja þig á völlinn, ef þú vilt.Saknaðarkveðjur til allra.
Amma Stína
Já Hár Expó, getur Inga frænka ekki bara troðið þér að ;)
Mundi allaveganna hringja og tékka á því.
Takk takk amma mín. Ég verð í sambandi við þig um helgina þegar að ég er búin að tala við pabba.
Ragga: Jú, var að pæla í að hringja og grenja út tíma. Eitthvað verður að gera fyrir þetta hár mitt. Og ég treysti ekki hverjum sem er í það skal ég segja þér :)
Ég á enga LV tösku. Er ég þá hvítt rusl?
Breki er voðalega sorgmæddur að geta ekki soðið handa þér í te til að lækna þig :) Hann sagðist alveg nenna því...
Brekamamma
haha ég verð bara að fá að vita hvert svarið þitt var við lækninn ? hahaha ég á ekki orð
-KarenHelga
Ohh mig langar í LV tösku.
Annars, eftir þessa helgi mína í Köben minnkaði öfundsýki mín gagnvart þér töluvert.
Ekkert nema löggubílar og sprengingar. Viðbjóður.
Skrifa ummæli