Fiskarnir
19.febrúar - 20 mars
Nú í upphafi árs uppgötvar þú nýjar hliðar á sjálfri þér. Lisrænir hæfileikar þínir eru margir og fá nú að njóta sín sem aldrei fyrr. Þú hefur áhuga á og mikinn hæfileika til að tjá þig á rituðu máli. Leyfðu þeirri hlið að blómstra og njóttu þín. Treystu innsæi þínu og ekki vera of sjálfsgagnrýnin og upptekin af smáatriðunum. Þú ert heldur næm fyrir skapsveiflum annara og átt það til að taka hlutina inná þig og hafa áhyggjur af einhverju sem þú berð enga ábyrgð á. Einblíndu á jákvæðu hliðarnar og njóttu ástarinnar í lífi þínu og mundu hvað lífið getur stundum verið skemmtilegt.
...Jahá, það er aldeilis.
6 ummæli:
Nau nau það er naumast, hvar finnur maður svona spá ??
Er þetta kannski samið af pabba þínum ? Sá að hann er farinn að búa til Völvuspár heheh ;)
Síja beibe
Hehe, þetta var nú bara í Ísafold ;)
Það er engin smá spá fyrir okkur fiskana, maður verður bara að halda á spöðunum ef að þetta á að ganga upp
Já mar verður að tékka hvað framtíðin ber í skauti sér.
Annars var ég bara að hugsa um að heimsækja pabba þinn og gá hvort að hann sæji ekki eitthvað gott hjá mér ;)
njóttu ástarinnar í lífi þínu
hmmm we all know who that is;D torbí kallinn:D Annars bið ég kærlega að heils honum:)
Stjáni: Já, ekki ef að við teljum bjór og gin&tonic drykkju sem listrænan hæfileika. Þá erum við í góðum málum :D
Helga: Held að þetta eigi ekki við um Torben sko.
Ekki mikil ást þar, meira hatur.
Skrifa ummæli