11.12.06

Tag mig med til Johanna...

Á fylleríinu á föstudaginn endaði ég meira edrú en ég var í hádeginu á þriðjudaginn.
Var á bíl og allt. Veit ekki alveg hvernig það kom til, en svona er lífið bara.
Afmælisbarnið snargeðveik og segir að ég hafi svikið hana og segir að nú verðum við að fara aftur í djammgallann á föstudaginn og hella mig allavega hálfa. Fólk hefur líka verið með einhverjar óþarfa getgátur um það hvort að ég sé ólétt, því að ég hef endað á bíl síðustu 5 skipti sem ég hef farið á djammið. Heimurinn höndlar bara ekki blekaða Kristínu, er alveg nógu rugluð fyrir. Fékk til að mynda 3 sms daginn eftir afmælisdjammið mikla sem stóð í "Jæja, er maður þunnur í dag" það sér enginn mun á mér hvort að ég sé búin með kippu af túborg eða 3 orkudrykki. Og ég virðist alltaf geta skemmt mér vel, svo að það er ágætt.
En það verður "kveðjupartý" fyrir mig á föstudaginn. Því að ég er að fara í burtu í næstu viku og kem ekki aftur fyrr en 30 des, daginn fyrir gamlárs. Eins og þið sjáið þá er hvert tækifæri notað til að djamma hérna í Baunalýðveldinu. Það verður svosem ágætt, og bíllinn verður eftir heima.
En ég reyndar var að skoða myndir af djamminu frá föstudeginum og fann svolítið sem að mig langar til að sýna ykkur, ef að ykkur finnst þessi "úrkynjun" sem er í gangi heima slæm, þá skuluð þið koma til Horsens. Þessi bær er Selfoss sinnum 8. Það eru fyrirbæri hér sem að kalla sig karlkyns en eru í raun meiri konur en ég. Algjörar píkur.

Á myndunum eru strákar úr skólanum mínum. Ekki hommar. Og þetta er tekið á venjulegum föstudegi á týpískum skemmtistað hérna, sem meðal annars ég "stunda".

Langar ykkur ekki að koma í heimsókn?



7 ummæli:

Brynja Björk sagði...

Þetta er með því ógeðslegra sem fyrirfinnst á djamminu. Ég vissi ekki að Danir ættu sinn Selfoss:)

Nafnlaus sagði...

haha hm já ég bjó nú í Horsens í 2 ár .. guð og jú danir eiga sko sinn Selfoss ehhehe. Alltof mikið af lúðum í horsens.. svosem ekkert skárra í sönderborg :S

Ragga Rokkar sagði...

aubara !!!

Nafnlaus sagði...

Hahaha jömmí!

þórhallur sagði...

Það kom smá æla upp í mig þegar ég sá þetta

Nafnlaus sagði...

OJ, ég var að borða!

Nafnlaus sagði...

Bróðir Ásgeir Kolbrúns?