18.12.06

"Veðrið í Keflavík er milt, smá úði og 6 stiga hiti" Sagði flugmaðurinn við okkur 50 farþegana þegar að við vorum komin í loftið frá Köben.


Læt ekki plata mig svona aftur. Milt veður, smá úði og 6 stiga hiti, my ass. Ég labbaði útum dyrnar á Leifsstöð og fauk útí bíl. Hefði svo þurft að skipta um föt vegna þess að ég var rennandi blaut eftir þessa 7 metra. Og með kalnar tær og fingur.


Eruði ekki að grínast með veðrið??




Svo var nú aldeilis gaman að lenda í Leifstöð og fá ekki töskuna sína. Hún var bókuð á vitlaust flug. Fæ hana á eftir, senda heim. Þá loksins kemst ég í sturtu og hrein föt.




Allra best var samt að koma í Kórsalina og sjá að það er búið að jafna herbergið mitt við jörðu. (En hin börnin í fjölskyldunni fengu ný glæsirúm og ég veit ekki hvað.)Usss, spurning um að fara að segja sig úr Kórsalafjölskyldunni. Okkur Ronju finnst þetta ekki sniðugt.




Hver vill eiga okkur?
(Haffi fylgir ekki með)





3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég get nú svo sem tekið köttinn

Nafnlaus sagði...

the cat is MINE!!!!
Velkomin heim elskan.. vertu i bandi við mann stelpa=)

Ragga Rokkar sagði...

Velkomin á klakann skvísa ;)