7.12.06

Ég skil ekki hvers vegna ég get ekki bara farið út í búð og keypt einhverjar jólagjafadruslur sem að slá í gegn og gera mig uppáhalds fram í janúar.
Nei, ég er búin að fara 5 ferðir niðrí bæ, kvickly, Bilka og Bytorvet so far er ég komin með eina jólagjöf. Skil ekkert í þessu því að í þessum ferðum mínum kem ég hlaðin pokum en það rennur líka upp fyrir mér þegar að ég er komin útí bíl aftur að ég hafi bara verið að spreða í sjálfa mig.
Var einmitt að koma úr einni Bilka ferðinni. Var þar í góða tvo tíma og verslaði fyrir 490,75 danskar. Inní því var ekki ein jólagjöf. En mér fannst hins vegar mjög mikilvægt að kaupa mér súkkulaði með kornfleksi í, alla fyrstu seríuna af Sex and the city, Christmas vacation, brjóstahaldara og bók með 300 uppskriftum af kokteilum frá 7 barþjónum í New York.
Nú get ég allavega verið í huggulegum brjóstahaldara þegar að ég horfi á Christmas Vacation og gæði mér á einhverjum framandi kokteil...

Yeah right.

P.s. Sef ekki á nóttunni því að ég sakna svo Hrossins og Hrossatemjarans...


7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já já já já, það er nú gott að sjá hvers þú saknar frá Íslandi...

Nafnlaus sagði...

síðan hvenær sefur þú á nóttunni, þú sefur alla daginn og getur því ekki sofið á nóttunni eða ert að koma heim undir morgun!!!

Breki segir Krístin Alma voða hátt og skýrt. Þú þarft að hitta okkur fyrir mánudaginn.

Nafnlaus sagði...

Það er líka eins gott fyrir þig!!

Nafnlaus sagði...

kv Kristín og garðar

Kristín Alma sagði...

Eins gott að þið bjóðið mér í heimsókn og gefið mér despó þætti í lange baner þegar að ég kem!!

:D

Nafnlaus sagði...

Ekki er nú mikið minnst á gamla kallinn í þessu saknaðarblaðri öllu. Mér myndi sárna það ef ég væri ekki svona upptekin við að sakna Vilborgar en ekki Kristínu.

Kristín Alma sagði...

Pabbi það eru ekki nema 3 myndir af þér í þessum færslum...