17.1.07

Danir og Tölvur

Í næstum 3 ár hef ég búið í Danmörku. Eða eiginlega bara 2 því að ég fékk ævintýraþrá í eitt ár og skrapp út að skoða heiminn. En eftir þennan tíma þá er maður búin að kynnast ýmsu hérna í Danaveldinu og líkar flest vel. Það ver vel hugsað um mann og kerfið hérna býður uppá það að skólafólk geti sinnt náminu án þess að hafa áhyggjur af því hvort þeir eigi fyrir mat þegar að búið er að borga reikninga, leigu, bækur og allt það sem þarf að borga. Danir eru rosalega almennilegt fólk, flestir taka manni mjög vel, þrátt fyrir að maður sé útlendingur og eru voða duglegir að skilja íslensku dönskuna.
Eitt og annað fer samt voðalega í taugarnar á mér við þessa annars yndislegu þjóð og það er þegar danir þykjast kunna á tölvur. Þeir eru nefninlega dáldið í fornaldarstílnum á sumum sviðum ennþá, en vilja ekki viðurkenna það. Jú, ágætt að það sé ekki nýjasta tækni við allt, ef að "gamla" aðferðin gengur vel. Fínt, það er í góðu lagi mín vegna. En almáttugur minn, þegar á að fara að rembast við nýjustu tæknina þá er það saga til næsta bæjar skal ég segja ykkur.
Núna var ég til dæmis að ljúka við 1 önnina núna á föstudaginn. Á mánudag mæti ég í skólann til þess að fara inná Elevplan-ið (Vefsíða sem menntaskólakrakkar í DK nota ti að skipuleggja sig, sækja stundaskrár og fá einkunnir) og sjá hvort að ég væri fallin í einhverju og til þess að ná í nýju stundarskrána með nýju fögunum. Nei liggur ekki bara allt heila draslið niðri og ekki sjéns að komast inná það vegna álags á vefnum. Það var þannig á mánudaginn og svo í gær. Þannig að við vissum ekki í hvaða tímum við áttum að vera, hvar við áttum að vera eða hvort við værum fallin og fengjum yfir höfuð að halda áfram á næsta stig. Ég komst inn seint í nótt, sá þá að ég hafði náð öllu (að sjálfsögðu) en að stundarskráin mín var í bölvuðu rugli. Ég var með tíma sem ég átti ekkert að vera í og á einhverjum A og B stigum, sem námið mitt hefur ekki einu sinni. Talaði við skólann klukkan 7 í morgun og þeir sögðu að það þyrfti að finna útúr þessu og ég gæti bara komið á skrifstofuna klukkan 9, þá væri rétta stundarskráin komin og ég gæti byrjað önnina. Mætti í skólann klukkan 9 og þá var eitthvað að tölvunum þar, þannig að enginn vissi hvar ég átti að vera, ég var skráð á nafnalista inní einhverjum efnahagstíma (A stig) hjá HHX útskriftarkrökkunum á international línunni, sem gæti ekki verið meira útí hróa hött. Ég var beðin um að afsaka þetta og sagt að það væri verið að vinna í að laga tölvukerfið svo þau yrðu búin að þessu klukkan 10, áður en að næsti tími ætti að byrja. Klukkan 10.15 var loksins búið að finna útúr þessu og ég komst loksins í Samfundsfag á réttri línu og réttu ári.
Þegar að kennarinn var búin að reyna 50 sinnum að segja nafnið mitt var okkur svo sagt að í dag ættum við að horfa á mynd með hinum tveim bekkjunum. Átti að sýna þessa blessuðu mynd via tölvu. Við tók 30 mín. bið eftir að kennararnir fyndu útúr hvernig ætti að tengja hátalarana. Endað með því að það var hringt í tölvudeildina. Inn kom rauðhærður maður með krullur, horfði á vélina og hljóðið kom á. Skal veðja að hann er Írskur þessi gæji, allavega ekki danskur...

Engin ummæli: