30.5.08

Ammó!

Fínasta mammslan mín á afmæli í dag. Orðin 38 ára. Núna finnst mér doldið skrýtið að eiga svona unga foreldra. Kannski er ég bara svona gömul :)

Þetta er nú örugglega duglegasta mamman sem er til, svo ekki sé meira sagt :)


Til hamingju með daginn mamma mín!



Þessi mynd er of fyndin. Vorum búin að vera að gera grín af fólki sem kann ekki að sprauta úr rjómasprautum. Mamma kann það heldur ekki eins og sést :)







Á Þorrablótinu... Dísess :) (Töff að vera með bindi á hausnum, Kristín Alma!)



Andri Már töffari á líka afmæli í dag og óska ég honum líka til hamingju með áfangann :) Ekki á hverjum degi sem maður verður 11 ára!


29.5.08

Yeah

Jæja, búið að panta í dallinn og allt orðið klárt. Búin að sjá til þess að það fari dýna með í ár. Lærði það á erfiða mátan í fyrra að það er kalt að sofa á tjaldbotninum. Svo verður ekki farið snemma að passa tjöldin!

Nú er bara að telja niður..!
Tilhlökkunin er gífurleg.









































































25.5.08

Júrópúró.
Mikið fannst mér fyndið þegar danir, sem gáfu síðastir stig skutu Íslandi fyrir ofan sig í gær. Þannig að við urðum í 14. sæti og þeir í 15. sæti.

Nokkuð sátt við sigurlagið. Fannst bara hallærislegt þegar að skautagæjinn fór að þakka Evrópu fyrir. Ekki eins og hann hafi þurft að syngja, krjúpandi, hálf ber á skautasvelli og fá að launum kalsár á hné og tær.
Fannst líka kjánalegt að hafa svaka fiðluleikara og heimsmeistarann á skautum. Við hefðum átt að senda Jón Pál á sínum tíma, þá hefðum við kannski unnið!
En lagið er fínt.

Skammast mín smá fyrir að hafa haldið með úkraínu (í laumi) útaf því að stelpan var svo fiiiiiiiine! Dísess, eruði að djóka, ekkert smá sæt. Með fótleggi uppað eyrum og ný brjóst. Ég tjáði Villa það að ég hefði viljað vera lesbísk núna og farið til Serbíu og náð mér í hana. Villi sagði (eftir að hann þurrkaði sleftaumana sem lágu úr munnvikinu) að hann myndi ekki gera það. Hann er að play-a hard to get, hún yrði bara að koma til hans. -Einmitt. Þar fóru draumar mínir um að hitta hana.
Villi er sem sagt á lausu, ef þú Ani Lórak ert að lesa þetta! (Eða bara einhverjar sem hafa áhuga, ég er að hugsa um að fara að gerast pimp.)

Franska lagið var kúl. Minnti mig bara á The royal tenenbaums. Frábær mynd.

Gríska lagið. Eruði ekki að kinda mig? Flatara og leiðinlegra lag hefur bara ekki verið skrifað.

Ætla ekki að tala um grámygluna, með hálft andlitið strekkt fyrir aftan eyrun frá Svíþjóð. Bara glötuð.

Þetta eru nú svona helstu lögin sem ég man eftir. Fyrir utan Ísland.

22.5.08

Af msn

Sko. Mér finnst þetta svolítið gróft. Ég er að reyna!
Eftirfarandi átti sér stað á daglegu-miðnætur-msn-spjalli við bóndann.

J.P. says:
Meðan ég man þá var ég að fá fyrir þig leikjapassa áðan á heimaleikina

Kristín Alma - ÁFRAM RÓSK OG FRÓMAS! says:
Haha What?

J.P. says:
Þá geturu komið á leik og verið með Birgittu og krökkunum á rólóvellinum

Kristín Alma - ÁFRAM RÓSK OG FRÓMAS! says:
Af hverju á rólóvellinum?

J.P. says:
Þeir sem mæta á leiki til að fá nammi, en nenna ekki að horfa eru á rólóvellinum

Eins fokkíng gott að maður fái þá eitthvað nammi ef maður dröslast til Ólafsvíkur á leik!

Hardcore chick!

Það er búið að sjúga úr mér allar hardcore frumurnar sem eftir voru í líkama mínum. Ekki eins og þær hafi verið eitthvað margar eftir og hef ég rembst eins og rjúpan við staurinn til að halda í þessi örfáu frumulíffæri sem áttu eitthvað eftir af hardcore.

Fór sem sagt í hormónabíó í gær, eða bólubíó eins og einhver sagði (fór með unglingaklúbbinn í Horsens í bíó sko). Fórum á What happens in Vegas og kræst, ég grenjaði alveg í öðru hvoru atriði. Framan af var það úr hlátri, en einhverntíman þarna um miðja mynd fóru tárin að streyma niður kinnarnar af öðrum ástæðum. Fyrst útaf því að þau voru svo krúttleg. Svo því að þau voru svo ástfangin, (gerði útslagið þegar þau fóru að vanga við eitthvað voða dramatískt 80's lag) svo af því að hún varð sár og svo aftur því að þau voru svo ástfanginn og svo gerði það næstum því útaf við mig að hann bað hennar í endann.

Maður er náttúrulega ekki í lagi. En núna er ég bara orðin vælandi kelling.

18.5.08

Aukaverkanir

Á föstudaginn skellti ég mér í stuðferð til læknisins að láta sprauta mig við ofnæminu. Gríðarleg stemmning var inná læknastofunni þegar ég vippaði niður buxunum og fékk sprautu á bólakaf í rassinn. Fór svo bara aftur í skólann og allt í fínasta með það.
Þar sem ég hef fengið þessi lyf áður þá var ég ekkert að lesa á fylgiseðilinn, því þetta hefur bara virkað eftir ca 3 daga og haldið niðri fílamannseinkennunum sem fylgja þessu ... ofnæmi.

Það var því ekki fyrr en um kvöldið að ég fór að lesa á fylgiseðilinn, vegna ógleði og doða og bólgum á stungustað. Ég tek sjaldan einhver svona lyfseðilsskyld lyf og hef bara þurft pensilín nokkrum sinnum við einhverju gleðilegu eins og streptakokkum eða blöðrubólgum. Aldrei fengið neinar aukaverkanir nema þegar ég tek inn pensilín án þess að borða með.
Þegar ég fór að lesa fylgiseðilinn við ofnæmislyfinu þá kom ýmislegt í ljós. Einar skemmti sér konunglega við að lesa fylgiseðilinn, þar sem við sátum 8 manns heima hjá Garðari og Írisi að borða grillaða banana.

Inndæling í vöðva:

Algengar-mjög algengar aukaverkanir
  • Alvarlegar sýkingar sem blossa upp, t.d. berklar
  • Afkölkun beina og beinþynning

Sjaldgæfar aukaverkanir

  • Höfuðverkur, Ógleði, Sjónskerðing og regnbogasjón
  • Alvarleg geðdeyfð, geðsjúkdómur (geðveiki)

Mjög sjaldgæfar aukaverkanir

  • Aukinn þrýstingur á heila með miklum höfuðverk og meðvitundarleysi
  • Aukinn þrýstingur á heila með sjónskertingu
  • Magasár með hættu á rofi og blæðingu

Aukaverkanir af óþekktri tíðni

  • Rof á sinum (einkum hásin)
  • Brisbólga með rofi á þörmum
  • Beinbrot og samfall á hryggjaliðum
  • Blinda ef inndæling er beint í meiðsli á höfði eða andliti

Aukaverkanir sem eru ekki alvarlegar

  • Aukin tíðni sýkinga, t.d. herpes
  • Vanstarfsemi í nýrnahettuberki
  • Mánaandlit
  • Breytt fitudreyfing, þybbinn líkami með grönnum handleggjum og fótleggjum, buffalómakki (breytingar í fituvef á hnakka)
  • Þrymlabólgur
  • Skeggvöxtur

Aukaverkanir af óþekktri tíðni

  • Útstæð augu
  • Bólga á stungustað
  • Litabreytingar í húð

Það var einhversstaðar þarna sem Villi spurði hvort ég væri einhver áhættufíkill. Benti honum á að ég fengi amk ekki ofnæmi, hvaða máli skipta þá svona smámunir eins og skeggvöxtur, mánaandlit, samfall á hryggjaliðum, buffalómakki og útstæð augu... Það er bara töff.

16.5.08

Frægð

Það er naumast. Maður hefur bara ekki undan að lesa greinar um hina og þessa foreldra mína, hjálegur og kunningja inní internetinu.
Núna síðast var það Gummi Frændi sem tókst að troðast inní netið. Svikarinn sá. Flytja til Íslands með lítið kríli á leiðinni. Er alveg að sjá það betur og betur að ég hef bara engann tilgang í Danmörku lengur.

Fínt að frétta annars. Geri ekkert mikið fyrir utan skóla og svo er búið að vera smá stúss í kringum IFH. Bæði unglingaklúbb, kvennahlaup og Grísaveisluna sem er á morgun.
Pabbi farinn í hommana í Serbíu. Kræst, langar svo út líka. Er júró nörd og er hætt að reyna að fela það. Komin útúr skápnum með það sem sagt :)

Jæja, farin út í sólina.

14.5.08

Harður vetur?

Nú í ljósi þess að það er farið að hlýna all verulega í veðri þá er flíkum fólks farið að fækka og að auki farnar að vera töluvert efnisminni en vetrarpelsarnir.
Það er ýmislegt sem kemur í ljós á þessum tíma árs. Það mætti eflaust klippa táneglur, raspa hælana, vaxa helst öll hár fyrir neðan háls og só on. Oft kemur í ljós að maður passar ekki í sumarfötin frá síðasta sumri eða þá að björgunarhringurinn hefur stækkað og konur hætta að borða til þess að geta látið sjá sig í bikiníi niðrá strönd.
Allt eru þetta nánast eðlilegir hlutir og kemur fyrir besta fólk svona á vorin.
Það sem ég hef hins vegar tekið eftir, svona þegar ég sit niðrí bæ á kaffihúsi og virði fyrir mér fólkið sem gengur framhjá er að það er önnur hver kona ófrísk!
Veturinn hefur líklega verið alveg skelfilega harður og flestar konur leitað sér hlýju hjá hinu kyninu (má ekki segja að fólk hafi verið að ríða, þá snappar móðir mín).
Þetta er skondið. Því veturinn 87 var einmitt sjómannaverkfall og þess vegna er minn árgangur svona stór (þó að ég hafi nú bara komið undir eftir Bowie tónleika). Það eru til fleiri svona dæmi, nenni bara ekki að finna þau. En er bara að pæla hvað var eiginlega í vetur sem gerði það að verkum að fólk fór að makast (eða guð má vita hvað þetta heitir)
Fyrst var þetta sætt, en ekki lengur. Ég er ofsótt af ófrískum konum. Það finnst mér ekki fyndið. Ófrískar konur eru eitt það hættulegasta í heimi, reyndar líka svoldið sætar, svo ég lendi nú ekki í því að einhver óléttínan setjist ofaná mig eða eitthvað þaðan af verra.
Held ég haldi mig bara innandyra það sem eftir er sumars, vil ekki eiga það á hættu að einhver svona ólétt andi á mig og ég smitist :)
(Samt hlakka ég alveg mest mikið til að sjá öll krílin sem eru að fæðast í kringum mig í sumar og haust)

12.5.08

Tár, bros og takkaskór

Jæja. Mótið byrjað og almáttugur minn hvað ég vona að viðburðir dagsins sé ekki það sem koma skal í sumar.
Þó að ég hafi alveg mínus núll áhuga á fótbolta þá veit ég að gult og rautt er ekki gott.

Annars ætlaði ég nú bara að koma með smá myndir fyrir ömmu Stínu. Frá 25 stiga hitanum mínum og 37 stiga hitanum hennar mömmu. Svo segir mamma að ég ýkji í bloggfærslunum mínum. Man ekki eftir þessum 37 stigum nefninlega :)









11.5.08

Mæðradagur

Já, í dag er sko ekki aldeilis bara einhver svona guðadagur, heldur er líka mömmudagur. Færði móðir minni blómvönd í tilefni dagsins og er því búin að tryggja mér betri arf en systkini mín.

Annars er þessi Hvítasunnuhelgi búin að vera sweet. 25 stiga hiti og glampandi sól. Á góðri leið með að vera tönuð í drasl.
Reyndar með alveg viðbjóðsleg för hér og þar um líkamann. Eftir hlírabolinn minn á annari öxlinni (sat á kaffihúsi í tvo tíma með sólina hægra megin við mig) svo er ég hvít niður á mið læri eftir pilsið mitt og svona eitt og annað sem á eftir að jafnast út. Vonandi.

En núna er ég nú að hugsa um að fara í þvottahúsið. Það nennir enginn þangað á nóttunni þannig að maður getur haft eins margar vélar og maður vill :)

9.5.08

Oðnæmi

Dí marr. Ég er ekki að nenna þessari sól svona meðan maður er á lokasprettinum í skólanum. En yfir öllu er nú hægt að kvarta.

Markmið dagsins í dag var að fá lit. Sem ég tók mjög alvarlega og um leið og ég var búin að skila enskuverkefni þá fór ég með teppi, kodda, bók og iPod útí garð og þrjóskaðist við að liggja þar í einn og hálfan tíma.
Þá var ég orðin svo bólgin í kokinu (veit, skemmtilegt) og augum af ofnæminu að ég stökk upp til að taka töflu. Var búin að gleyma því að það eru svefnlyf eða einhver sljófgandi lyf í þessum töflum þannig að ég gat ekki haldið augunum uppi eftir korter og rétt náði inní rúm áður en ég drapst. Svaf í alvöru svo fast að ég held að hjartað hafi hætt að slá.
Fer í sprautu í næstu viku þannig að þetta lagast þá. Guði sé lof, nenni ekki að vera eins og fílamaðurinn í mjög langan tíma.
En svo til að segja ykkur frá því að þá tókst mér aldeilis að fá lit. Ca 3 freknur á nefið og svo er ég orðin mega brún á ristunum. Ég er svo gölluð - Það er auðvitað til of mikils að ætlast að verða brúnn á handleggjunum til dæmis!!!

Verð að vera duglegri að wörka tanið, get ekki tönglast á því að það sé alltaf svona gott veður hérna og komið svo bara sjálflýsandi heim í sumar..!

5.5.08

Púha

Komin heim. 4 tímar í lest er OF mikið eftir 3 tíma í flugi. Verið að laga lestarteinana og þess vegna lullast maður bara áfram í þessari blessuðu lest og mætti halda að maður væri kominn með njálg þegar að til Odense er komið -Þá eru bara tveir tímar eftir..!
Sem betur fer keypti ég mér bók í fríhöfninni og var því niðursokkin í hana alla leið.

Annars var þetta ferðalag alveg þess virði. Það var svo ótrúlega gott og gaman að koma aðeins og gera eitthvað annað og hitta annað fólk. Það er nefninlega voða mikið alltaf sama rútínan hérna úti.

Ég náði ekki að hitta nærri því alla sem ég ætlaði að hitta, enda var ég bara tvo daga í Reykjavík. Næst verðið þið bara að taka road trip til Grundarfjarðar!

Annars er bara alveg megahega gott veður hérna. Yfir 20 stiga hiti og sól. Verst að maður getur hvergi wörkað tanið þannig að ég verð bara eins og vofa áfram.

Svo eru Íslenskir dagar í skólanum. Frekar spes, en kitlar samt þjóðarstoltið svolítið þegar það er kjötsúpa og kjöt í Karrý í matinn í hádeginu, spiluð íslensk tónlist og kleinur og snúðar í kaffinu.
Samt viðbjóður að éta heita kjötsúpu í þessum hita. Maður ætti að borða ferska, suðræna ávexti á svona dögum. En maður lætur sig hafa það - svona er stoltið mikið.

Jæja, dönskutími. Þarf að skila ritgerð um eitthvað gasalega spennandi efni!!

1.5.08

Ótitlað

Það varð eitthvað lítið úr kaupstaðarferðinni minni þar sem ég tók mig til og nældi mér í þessa líka eðal gubbupest. Hélt ég myndi deyja, þannig að ég var ekkert að koma suður.
Við ætlum hins vegar að kíkja í bæinn eftir æfingu á laugardag og ég verð í bænum fram að flugi á mánudag. Gisting og skutl á flugvöll væri vel þegin.

Annars líður mér voða vel í Grundó. Orðin algjör "dreibbari" eins og einhver myndi kalla það. Ég á líka svo marga vini og vinkonur hérna. Reyndar eru þau flest vel undir 12 árunum.
Brjálað að gera hjá mér í að vera heimavinnandi húsmóðir og svo er ég send í pössun á meðan það eru æfingar í Ólafsvík.

Fólkið hérna er nú flest voðalega viðkunnalegt, en hef sottlar áhyggjur af því að það eigi eftir að snúa sig alveg úr hálslið þegar það labbar framhjá mér.
Jebb, ég er the new kid in town..!

Ætla að setja mynd af litlustu vinkonu minni í Grundó með.


29.4.08

Jájájá

Ég er ekkert búin að vera inní internetinu síðustu daga og þar af leiðandi ekkert bloggað.
Svosem heldur ekki mikið skeð í millitíðinni.
Flest allir Flórídafarar komnir heim. Nema tvö elstu. Þau skruppu aðeins til Danmerkur svona til að ná sér niður eftir Bahamas.
Sjálf sætti ég mig alveg við það að hafa ekki farið með og fékk líka góðar sárabætur frá sjálfri mér. Keypti one way ticket to Grundarfjörður og er núna hérna á Grundargötunni bara að tjilla meðan bóndinn er útí móa að mæla fyrir nýju íþróttahúsi.
Reyndar búin að vera að setja í þvottavélar og svona - maður er ekki alveg gagnslaus!
Stefnan er tekin á Reykjavík í fyrramálið. Smá kaupsstaðarferð og Sölkuknús vonandi.


Adios amigos

15.4.08

Ammó!

Fínasti Brekinn okkar á afmæli í dag! Orðinn tveggja ára gormur. Og eins og vanalega þegar lítil börn sem ég þekki eiga afmæli þá finnst mér ég vera orðin svona 100 ára. Gaman að því.
En sendi nú samt sem áður afmælisstuðkveðjur í Lautina!!

Svo átti ég 6 ára fermingarafmæli í gær. Gífurleg stemmning. Gærdeginum eyddi ég bitur og leiðinleg í lærdóm og leti. En fór svo á fund í gær og fékk mat, og þá tók ég gleði mína á ný. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, þá var 14. apríl 2002 gleðilegasti dagur lífs míns.


13.4.08

Búið að vera brjúlet að gera svo að ég hef ekki mikið verið með hugann við blogg síðustu daga. Skóli útí hið óendanlega og ég búin að sökkva mér alveg í hann og loksins komin á eitthvað almennilegt skrið með þetta allt saman. Vona bara að það haldist aðeins áfram.

Við Fróði, Fífí og "Gunnar" unum hag okkar vel hérna í sveitinni. Ég er reyndar ekkert alveg að fíla að vera ein í 300 fermetra húsi einhverstaðar í burtu frá bænum, en hlýt að lifa þetta af.

Fróði greyið hatar að hafa mig bara eina hérna. Hann er vanur að það sé alltaf einhver heima nema rétt á morgnana. Núna er aldrei neinn heima og þegar ég kem heim seint á daginn þá sér maður vonbrigðin í augunum alveg um leið "ohh þetta er bara hún AFTUR!". Greyið litla.


Eyjólfur litli bróðir minn varð 7 ára á föstudaginn. Hann er í Ameríkunni að spóka sig og hélt víst bara pool partý og var með græna AMERÍSKA afmælisköku. Þær kökur eru viðbjóður. En ekki þegar maður er 7 ára gæji.

Annars finnst mér alveg bara vika síðan hann var alveg pínkupons lítið spons. En í dag er hann bara orðinn einhver töffari.





Svo á föstudaginn átti Ásdís systir hans Jóns Péturs pííínulitla og ofboðslega sæta stelpu. Alveg eins og ég var búin að halda fram allan tíman (sko að þetta væri stelpa).
Sendi hamingjuóskir í fjörðinn, svona ef ske kynni að tengdafjölskyldan skyldi villast hingað inn :)

Fróði vill fara út, svo það er best að sinna honum..

9.4.08

8.4.08

Jæja, allir farnir og bara ég, Fróði, Fífí, og gullfiskurinn hennar Vilborgar sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir. Held ég kalli hann bara Gunnar.
Við bara alein í sveitinni hennar mömmu. Og ég með hræðilett. Og heimavinnu dauðans. Samt er ég bara í 3 fögum. Skil þetta ekki.
Samt fínt að hafa nóg að gera.

Plehh, jæja best að fara út að ganga með Fróða. Verður ágætt að fá sér smá frískt loft.

7.4.08

Afmælis

Pabbi gamli á afmæli í dag og langar mig að óska honum til hamingju með það. Jafnframt við ég benda honum á að njóta síðasta ársins sem hann á sem þrjátíu og eitthvað.
Þetta setur reyndar gífurlega pressu á mig. Verð að vera komin með barn fyrir 7. apríl á næsta ári, ef ég ætla að þóknast föður mínum, sem vill ólmur verða afi fyrir fertugt.



Einar Páll á líka afmæli í dag. Og fær hamingjuóskir frá mér. Hjalli (my brother from another mother) á líka afmæli í dag. Óska honum líka til hamingju með áfangann.

Allir á leið í karabíska á morgun. Er að kafna úr öfund og langar mest að grenja. Vil komast í sól og hita. Fínt veður hér reyndar, en ekki nógu heitt til að stripplast um berleggjaður í flippflopps. En ég verð hérna bitur í gluggaveðrinu að læra stærðfræði eins og enginn sé morgundagurinn.

Sem betur fer stendur svolítið skemmtilegt á dagatalinu mínu í lok apríl. Bara rúmar tvær vikur..!


6.4.08

Well

Held að bráðum verði bloggverndarnefnd sigað á mig fyrir vanrækslu á annars ágætu bloggi.

Það er reyndar ekkert að frétta svosem. Helgin var svaka fín. Sérstaklega föstudagskvöldið. Of mikið hlegið. Maskari niðrá kinnar og kviðslit. Var dama í gær. Í kjól og hælaskóm. Augnskuggi og gloss. Og Gucci. Gleymdi að taka mynd. Í dag var það joggingbuxur og hettupeysa vegna lærdóms. Verður eitthvað svipað á morgun líka.

Alveg að fá magasár útaf vinnu og búsetumálum í sumar. Kem heim í 6-8 vikur og vantar vinnu heima. Helst á Snæfellsnesi. Eða bara í Grundarfirði.
Annars á Seltjarnarnesi og nágrenni.
Ef einhver sniðugur þarna úti vill ráða mig í vinnu þennan tíma þá myndi það lækna geðheilsuna alveg um heilan helling...

3.4.08

Baddý og Haddý

Handywomen!


Í janúar brotnaði síminn minn aðeins. Ég var nýbúin að senda sms liggjandi uppí rúmi. Svo ætlaði ég að opna gluggan og fór með hnéið á símann, hann lá í rúminu og rúmdýnan náttúrulega gaf undan og hann brotnaði. Svona..



Jón Pétur var svo indæll að lána mér staðgengil, því ég fann/finn engan flottan síma sem mig langar í.

Svo í mars fékk Villi þessa snilldarhugmynd að líma bara símann með svona superglue. Sem ég og gerði. Fór sérferð í Harald Nyborg og valdi mér extra sterkt superglue til að það væri hægt að laga símagreyið. Síðan skundaði ég heim og púslaði símanum saman og límdi eins og enginn væri morgundagurinn. Lét símann svo liggja undir blómavasa yfir nótt. Daginn eftir var hann eins og nýr..


Ég var yfir mig ánægð með að hafa sjálf lagað síman. En það entist ekki lengi. Ég lennti á Íslandi og gat ekki opnað símann til að taka kortið úr. Hafði þá límt hann það vel saman að danska kortið mitt var fast inní honum. Okay, fór aftur í að nota símann hans Jóns Péturs og ekkert mál. (Tók hann með til Íslands því ég ætlaði að skila honum til eigandans)

Síðan í gær þá byrjaði síminn minn að vera með einhverja sambands stæla. Sem sagt, var ekkert samband á honum. Ég náttúrulega hélt að hann væri orðinn alveg ónýtur núna og eftir nokkra klukkutíma gafst ég upp á að laga hann. Þá mundi ég að ég hefði límt kortið mitt inní honum. Svo þetta er afrakstur gærkvöldsins.

Ég er því aftur farin að nota síman hans Jóns Péturs með tilheyrandi samviskubiti. Held ég verði að fara útí búð og versla síma.. :)

1.4.08

Lífsreynslusagan

Ég hef ákveðið að taka upp nýjan lið hérna á froggie.com. Svona í ljósi þess að ég er orðin tvítug. Tvítug brussa. Ég hef því ákveðið að miðla reyslu minni til annara brussna. Þar sem ég hef nú einu sinni verið brussa í tuttugu ár og brussið virðist ekki ætla að vaxa af mér, þó að mér takist einstaka sinnum að feika'ða með að þykjast vera kvennleg. Þá verður fólk svo sjokkerað að ég skuli vera glossuð og með sléttað hár að það virðist ekki taka eftir því að ég brýt hælinn á skónum eða festi tyggjó í hárinu.

Síðasta miðvikudag átti ég mitt brussmóment. Ágætt að það kom þegar ég var komin til Danmerkur en ekki þegar ég var í kökuboði í Grundarfirði.
Semsagt, ef ég væri þið þá myndi ég ekki reyna að beygja mig eftir húslyklunum þegar að þið eruð með tveggja vikna byrgðir af fötum og skóm í bakpokanum og lífsbirgðir af kókópöffsi og ostum, því þá gerist þetta..

Held ég fari að mæta í ræktina.



31.3.08

Sjiii hvað þetta er fyndið!

I KILL YOU!!!

Lægð

Það hefur verið lægð yfir landinu. Eða aðalega mér. Margt að hugsa, stórir bitar að kyngja og sætta sig við og ég að berjast við að koma lífinu í fastar skorður eftir að hafa látið dekra við rassgatið á mér í tvær vikur.
En hugsa ég sé nú að koma til. Það er komið svo ógeðslega gott veður hérna úti. Orðið hlýtt og notalegt. Hægt að fara út án þess að fá kalsár á tærnar. Það rignir reyndar núna, en það er önnur saga.
Ég er að reyna að sætta mig við það að kærastinn sé bara að spóka sig með fótboltanum hérna (reyndar í æfingabúðum) og að öll fjölskyldan mín eins og hún leggur sig (mömmumegin) verði hér að dunda sér í karabíska eftir rúma viku.
Ég ætla bara í mína eigin útlanda/ævintýraferð í haustfríinu mínu. Hvort sem ég þarf að fara ein eða ekki :)

Vantar vinnu. Eða bara peninga. Eða flugmiða til Íslands bara..

Erfitt líf :)

26.3.08

Æji ég er svo mikil barnagæla. Sjáiði bara hvað Aníta Ósk alveg malar eins og köttur í fanginu á mér.

Well, ætli maður myndi ekki brjótast um og og vera með læti ef að það kæmi allt í einu einhver ókunnug kjélling og rifi mann í fangið.

Annars er ég bara að græja mig fyrir flug. Pakka niður öllum ostunum og kókópöffsinu sem ég keypti í bónus til að taka með mér út. Þarf svo að klára eitthvað svona smásnatt í bænum í fyrramálið og svo bara bruna útá völl. Verð komin inn um dyrnar hjá mér klukkan 1 næstu nótt. En sem betur fer ætlar Villi að vera samferða mér til Horsens og ég keypti Fuglastríðið í Lumbruskógi til að horfa á í lestinni. Víjjj!
Ég er annars með blöðrubólgu fyrir allan peninginn. Get ekki setið. Verður gaman á morgun!
Einhver töfraráð til að koma blöðrubólgu fyrir kattarnef?

25.3.08

Stikklað á stóru

Er ekki í bloggstuði, enda að vinna upp tveggja vikna tölvuleysi. Búin að missa af helling í internetinu á þeim tíma, en damn hvað ég er afslöppuð.
Set inn punkta og myndir. Reyndar er ég búin að vera alltof ódugleg við að taka myndir uppá síðkastið. Sem er til skammar!!

Elska Ísland. Búin að..


  • Eiga afmæli
  • Kaupa áfengi
  • Fara á Sálina
  • Vera með famelíunni
  • Halda uppá afmæli
  • Hitta skemmtilegu vinkonur mínar
  • Knúsast í kærastanum mínum
  • Borða yfir mig nokkrum sinnum
  • Kynnast ótrúlega skemmtilegu fólki
  • Gera allskonar ótrúlega skemmtilegt
  • Gera ekki neitt
  • Vera í Grundarfirði
  • ...fíla það í ræmur
  • Koma til Stykkishólms
  • Fara í sund
  • Fara í sumarbústaði
  • Skíttapa í Mini-golfi
  • Horfa á fótboltaleik (alveg fyrsta korterið)
  • Hafa það allt allt allt of gott!

Takk fyrir mig allir :)





Við Eva í góðu geimi!


Líka BJARNA

Afmæliskakan


Við Gamli

Aníta og Andrea sætu sætu



Að tapa í Minigolfi og vera alveg sama yfir því!!!


Páskaskraut(ið) verðlaun fyrir þann sem sér það!

12.3.08

Burðardýr

Ég ætlaði aldeilis að pakka létt fyrir þessa blessuðu Íslandsferð mína. En svo mundi ég eftir að ég er með hálfa búslóð fyrir vin minn. Hann sagðist nú hafa fengið gám þegar hann flutti frá DK fyrir mánuði síðan og að þetta væri bara svona restar. En svona þegar ég hugsa útí það þá sá ég aldrei þennan gám.
Uss, læt ekki plata mig svona aftur!
Ekki það, ef að ég hefði ekki verið með þessa hluti fyrir vin minn þá hefði ég nú bara pakkað einhverjum óþarfa í staðin fyrir bomsurnar og blómahanskana :)

11.3.08

Kræst


Almáttugur á himnum!
Ég tók einhverja voða svefntöflu fyrir tveim tímum og er búin að liggja andvaka síðan. Bara alveg í hörku stuði. Svo ég gafst upp. Veit ekki alveg hvernig ég á að tækla þessi svefnvandamál mín. Komst í lag í nokkra daga en núna virðist sama sagan ætla að endurtaka sig. Veit ekki hvort ég eigi að reyna að halda mér vakandi í sólarhring eða hvað. Kann ekki á þetta. Þetta er allavega ekki fyndið lengur. Ég ætlaði ekki að þurfa að díla við svefnleysi fyrr en ég eignast börn.

En nóg um það.
Það verður tekið maraþon í fólkshitting um helgina. Seisei já. Helgin er pökkuð með plönum um að hitta uppáhalds fólkið mitt. Vííj hvað verður gaman. Svo verða bara rólegheit og "sill" þangað til ég fer heim þann 26. mars.

Fór til Vejle á laugardagskvöldið. Datt nú ekki alveg í það eins og stóð til en Svanhildur reyndi samt sitt besta. Gaf mér þennan líka yndislega "kokteil". Frosin jarðaber og Bacardi. Skulum bara orða það þannig að næst ætla ég ekki að fá mér "kokteil" hjá sveitastelpu, heldur flóaða mjólk og kleinur :)
En það var nú svosem bara útaf því að klukkan var orðin svo margt og allt hráefni búið þegar við loksins létum sjá okkur í Vejle. Það sást líka vel á fólkinu sem var fyrir í partýinu.
Annars var stuð í Vejle bara. Fórum svo á Krokowski. Þar þarf maður að vera 24 ára til að komast inn. Við notuðum bara gamla góða, sendum Einar inn fyrst, því hann var með skilríki, settum brjóstin uppí höku og töluðum bara ensku. Redda sér. Þegar inn var komið fórum við svo og stigum trylltan dans á dansgólfinu með fertugum verðbréfamiðlurum og 18 ára kærustum þeirra sem voru úti að leika með nýju sílíkon brjóstin sín. Voða sætt.
Kannski ágætt að segja frá því líka að síðast þegar ég fór á þennan stað þá sá ég tvífara hans Þolla þarna á dansgólfinu í vægast sagt villtum og trylltum dansi. Það var fyndið.

Ágústa og ég andsetin!




Well, best að athuga hvort ég geti ekki sofnað smá áður en ég fer í skólann.


P.S. Þið þarna "gömlu" Hrossanesbúar?! Þurfum að plana föstudaginn..!

8.3.08

Stjáni


á afmæli í dag.

Ég vildi nú bara óska honum til hamingju með að eiga bara eitt ár eftir í fertugsaldurinn.

Afmælisbarnið verður að heiman í dag. Hann ætlar að vera viðstaddur lessubrúðkaup í Kaupmannahöfn!

Við Stjáni á Þorrablóti IFH!

6.3.08

Vika


5.3.08

Ekki neitt!

Draslið heima hjá mér hefur náð nýjum víddum. Það er útum allt! Reyndar eru þetta einungis föt og skólabækur sem liggur hér á víð og dreif, en það er sama. Verð að koma einhverju skipulagi á þetta, helst ekki seinna en í gær.

Mig vantar líka einhvern sem er sjúklega klár að innrétta. Veit ekkert hvernig ég á að hafa hérna heima hjá mér. Ætli það sé samt ekki sama hvernig maður hefur þetta, það verður alltaf þannig að maður leggur frá sér einn hlut og þá er komið drasl.

Var annars að koma heim. Unglingaklúbburinn minn hittist á Onsdagsbarnum áðan og ég bustaði þau öll í singstar. Dúettinn okkar Vilborgar sló samt öll met. "I WANNA KNOW WHAT LOVE IS!!"

Jæja, svefnleysið loksins farið að segja almennilega til sín. Ég er svo þreytt að ég gæti sprungið. Hugsa að ég taki smá til og fari svo í bælið.

Ehh, já eitt enn. Var að taka til í linkunum mínum og bætti við nokkrum. Ef einhver vill ekki vera með link á síðuna sína þarna eða telur sig eiga skilið að fá link, sendið þá póst á kristinalma@hotmail.com

:)

4.3.08

Fyrirgefðu

Í færslunni hér að neðan tala ég um að ég sé að fara í ökumat í Grundarfirði. Svo segi ég að það yrði helvíti vandræðalegt að falla á þessu svona lengst útí sveit.
Vil biðjast afsökunar á þessu. Grundarfjörður er nafli alheimsins. Ekki Reykjavík eins og ég hef haldið fram statt og stöðugt frá því ég gat talað. Heldur Grundarfjörður.
Máli mínu til stuðnings vil ég benda á að Bangsi Bestaskinn leitaði að Grundó þegar sá ágæti þáttur var og hét...




Smellið HÉR til að sjá allt Intróið.

3.3.08

9 dagar

Það eru 9 dagar í að ég komist heim til Íslands. Er of snemmt að byrja að pakka núna?

Við vorum að fatta að við verðum í loftinu þegar ég á afmæli. Lendum held ég klukkan 00.30 þann 14. mars. Þannig að ég get stokkið beint út og keypt tollinn!
Er á fullu að reyna að plana þessa Íslandsferð. Þarf nefninlega nauðsynlega að fara í Grundarfjörð. Í ökumat. Og bara mat. Er svo stressuð fyrir því, vandræðalegt að falla á ökumati lengst útí sveit!!

Ég er að reyna að ákveða mig hvort að ég eigi að vera að hafa kökuboð fyrir famelíuna. Það er nú bara hægara sagt en gert með þessa huges famelíu mína :) En langar svo að hitta alla, þannig að það verður nú líklegast samt eitthvað smá kökukaffi. Bara á eftir að finna stað til að hafa það á. Kemur í ljós. Væri náttúrulega sniðugast að við Salka myndum bara halda uppá 25 ára afmælið okkar. Þar sem litla sponsið mitt verður 5 ára 25. mars. Hræðilegt hvað þessi börn stækka.

---

Fékk snemmbúna afmælisgjöf á sunnudaginn. Abba showið frá London var hérna í Horsens í einhverja 10 daga og Villi var svo sætur að bjóða mér á það. Svo ég þyrfti nú ekki að fara til London(s) í leikhús. Var ekkert smá flott, maður var með tár í augunum og gæsahúð til skiptis.
Svo kíktum við á Svanhildi í Vejle. Fórum á Konrads og kjöftuðum þar fram að lokun. Voða gaman hjá okkur. Er búin að fatta það núna að það er ekkert langt að fara til Vejle í heimsókn.

Well, best að fara að horfa á Juno. Unglingaklúbburinn minn hérna í Horsens er með Video-kósý kvöld á miðvikudaginn og ég þarf að athuga hvort þessi mynd sé nokkuð ógeðsleg. Ætla ekki að fá símhringingar frá brjáluðum mosamömmum á fimmtudaginn :)

Tvífarar





Held ég fari bara að splæsa í klippingu. Vantar krullur líka, hvar kaupir maður svoleiðis?

1.3.08

Enn meira svefnleysi

Já, get nú aldeils sagt að ég hafi tekið framförum í dag. Náði að festa svefn að verða 7 í morgun og svaf til 10:45 í einum rykk. Ekki slæmt það. Fannst ég líka úthvíld þegar ég vaknaði.

Maður verður dáldið geðveikur á svona svefnleysi og held ég að það sé kominn tími til að láta athuga þetta eitthvað, svo það verður farin læknisferð í vikunni, ef ég fer ekki að ná að sofa, enda ekki alveg eðlilegt að tvítug og hraust stelpa hætti að sofa allt í einu! Kannski er þetta ellimerki..?

Verð allavega að vera búin að sofa eitthvað áður en ég kem til Íslands, því annars eru mikil hætta á að ég sofi bara útí eitt í sveitinni, svo rólegt þar.

Já, það er kannski rétt að benda dyggum lesendum frosksins á að jólarósin dó drottni sínum í vikunni. Enda ef eigandinn er eins og liðið lík, þá verður blómið það líka.
Hélt lífinu í blessuðu blóminu í rúma 3 mánuði! Núna get ég fengið mér gæludýr og prufað að halda lífinu í því, ef það gengur upp og ég skola ekki gullfiskabúrið með sápu þá er mér óhætt að fara að hrúga niður börnum. Það er víst reglan.
Svo vill pabbi líka verða afi fyrir fertugt þannig að það er eins gott að fara að haska sér!!!
Djóóók :)

Jæja, best að pilla sér, er að fara í matarboð til Stjána. Hann býr í Köben og þetta var ákveðið fyrir korteri að við myndum fara. Elska skyndiákvarðanir :)

28.2.08

Það hefur verið staðfest!

Þegar ég var búin til, var greinilega ekki verið að vanda sig. Það liggur í augum uppi að það hafi verið spreðað óþarflega mikið af karla-genum í mig.
Allavega svona ef þið horfið á þetta myndband (ekki myndband af þeirri athöfn samt).

Ég verð svona þegar ég er veik. Eins og núna. Ég á svooooo bágt að mig langar bara að fara heim til mömmu og liggja í mömmuholu þangað til mér batnar.

Er samt bara með smá hita, beinverki og hálsbólgu. Ekkert alvarlegt..

27.2.08

Konur eru konum verstar :)

Jáhá.
Það er stelpa hérna í kantínunni í skólanum þar sem ég sit núna og er hágrátandi að tala við einhvern (örugglega kærastann, sem býr í öðru landi langt í burtu) á skype og er með hann í webcam.
Þau tala skrítna útlensku sem ég skil ekki.
En allt í einu þá leit hún svona flóttalega í kringum sig og fór svo að skellihlægja. Snéri svo tölvunni að mér þannig að ég sæist í webcaminu. Leiðinleg maður. Ég veit ég er eins og draugur, með bauga niður á nafla og orðin veik í þokkabót með hausverk, beinverki og hitavellu. En það á að vorkenna manni í svoleiðis ástandi, ekki hlægja eins og norn og sýna einhverjum gaur í Rússlandi hvað ég er tussuleg!
Kannski er ég bara svona ljót in general. Hvað veit maður!

Þá hætti ég allavega að vorkenna henni að vera svona í burtu frá kærastanum sínum og eitthvað. Langar að hrækja á hana.

En best að halda áfram að vinna. Þetta hjélvíti græjar sig ekki sjálft :)

26.2.08

16 dagar

Jeminn.
Það eru alveg takmörk fyrir hvað maður nennir að hlusta á eitthvað röfl um Sókrates eftir þriggja tíma svefn. Sérstaklega þegar maður svaf í 2 tíma nóttina á undan.
Virðist þjást af einhverjum svefnörðuleikum þessa dagana sem lýsa sér þannig að ég ligg andvaka hálfa nóttina, svo loksins þegar ég festi svefn þá hrekk ég upp aftur eftir smá stund og þá verð ég aftur andvaka, sofna svo loksins og vakna aftur eftir smá stund. Svona genga næturnar á Kollegievænget fyrir sig þessa dagana. Gífurleg stemmning!!
Vona að þetta fari að ganga yfir.
Annars verður að fara að gera einhverjar róttækar ráðstafanir. Því ekki hef ég tíma til að leggja mig á daginn.

16 dagar í að ég, Villi og Stjáni fljúgum til Íslands og ég held að ég sé bara hreinlega að deyja úr spenning. Langt síðan ég hef hlakkað svona mikið til einhvers. Er alveg eins og lítið barn að bíða eftir jólunum.
Verður alveg frábært að komast aðeins heim og hitta alla :)
*Á myndinni er Baldur Freyr Almarsson

24.2.08

Konudagur

Arna mín, til hamingju með daginn :)

Bara ein blaðamannaverðlaun!

Jæja, maður hefur kannski smá rétt á að vera montinn núna. Pabbi og Þóra voru að fá blaðamannaverðlaun. Alveg vissi ég að þau myndu "hneppa hrossið", þó að pabbi hafi verið hógværðin uppmáluð og sagt að þau myndu ekkert fá þessi verðlaun. Deildu þessum verðlaunum reyndar með DV, en hverjum er ekki sama.

Siimar og Fóra áttu þetta allavega skilið.




Svo vona ég innilega að þessi verðlaun hafi verið í formi styttu, eða bikar. Svo að þessi ljóta Edda geti farið niðrí geymslu :)

22.2.08

Aldrei kaus ég Framsókn!?

Mikið ofboðslega finnst mér íslensk pólitík eitthvað sandkassaleiksleg þessa dagana.

Er ekki lýðræði á Íslandi lengur?
Er Össur Skarphéðinsson ekki farinn sooooldið langt yfir strikið?

Í næstu kosningum ætla ég bara að kjósa Framsókn. Því Guðni Ágústson sagði að ég væri falleg stúlka þegar hann kom og var veislustjóri á þorrablótinu okkar síðustu helgi.



Svona leit ég út þegar ég hitti Guðna. Veit ekki hvað greyið maðurinn hefur haldið :)

21.2.08

Love will keep you warm..

Mikið ofboðslega leiðist mér útlenska sem ég skil ekki.
Sko, ég sit nefninlega uppí skóla og það eru einhverjir frakkar (eða jakkar) að tala við aðra frakka á skype eða eitthvað. Sitja tveir í sitthvorri tölvunni og blaðra eins og enginn sé morgundagurinn. Fáið ykkur headset fólk!
Síðan eru öðruvísi útlendingar að éta einhverjar gamlar matarleyfar úr kantínunni. Ojbarasta! Frekar myndi ég borða ælu sem hefði kúkað á súrt hey heldur en að borða gamlan mat úr þessari kantínu, eiginlega heldur ekki nýjan, ef útí það er farið - Ógeðs fólk og ógeðs kantína.
Gleðileg færsla maður.
Er í tilvistarkreppu dauðans.

------

Mamma elti Jón Pétur til Íslands í gær. Kom við hjá Stjána í leiðinni. Ótrúlegt með mömmu, hún á 5 börn en verður samt að vera mamma allra. Því 5 börn og hundur er jú ekki nóg :)
Meðan hún er á Íslandi þá ætla ég að stjórnast á litlu greyjunum. Held þeim finnist það ágætt. Mér finnst það allvega fínt, þá hefur maður allavega nóg fyrir stafni.

-----

Kræst hvað Pernille Rosendal er ógeðslega töff gella.

Varð bara að koma því að, því ég er í einhverju "nostalgíu" kasti að hlusta á Swan Lee..

20.2.08

Jemundur minn!

Ég er koffín fíkill.
Ætlaði að reyna að komast í gegnum daginn án þess að fá mér coke eða kaffi. Dó næstum.
Endaði með því klukkan 18:00 að ég fékk mér coke og var það einungis til þess að ég myndi ekki ráðast á systkini mín. 18:03 var ég orðin ljúf sem lamb.
Síðan drakk ég smá meira coke þegar ég fór að passa bróðurson minn, hann Gunnar rúsínukrúttrass. Svo tapaði ég mér alveg í gleðinni þegar að ég fór hingað uppí skóla um 10 leytið. Kaaaaafffffffiiiiiii!!!!!! :)

Taka tvö á morgun..

19.2.08

Ha já!


Jón Pétur farinn heim að sparka í tuðru fyrir vestan og pínu tómlegt hérna hjá okkur í Hrossanesi. Allavega búið að vera það í dag, en við verðum fljót að gleyma. Allir nema mamma, því hún virðist ekki ætla að sætta sig við að það séu allir að flytja frá henni þannig að hún ætlar að drífa sig til Íslands á fimmtudaginn til þess að kíkja á liðið og athuga hvort það sé ekki í lagi með alla.

Ég sjálf virðist ekki vera með jafn mikinn aðskilnaðarkvíða þannig að ég á ekki pantað far heim fyrr en eftir rúmar 3 vikur, eða 13 mars. Lendi eftir miðnætti þannig að næst þegar þið sjáið mig verð ég búin að vera tvítug í nokkra klukkutíma.

Mikil tilhlökkun, því kvöldið 14. mars (afmælisdaginn minn) ætla Sálin hans Jóns míns að halda uppá 20 ára afmælið sitt líka, svo í staðinn fyrir að halda brjálað partý þá ætla ég að skella mér bara í höllina ásamt fríðu föruneyti og gera allt vitlaust. Meeen hvað verður ruddalega gaman!!


Annars er allt í fínu formi bara. Skólinn alveg á skrilljón og það er sko engin afslöppun. Þorrablótið búið og var alveg ógeðslega skemmtilegt. Svo núna er fundarfrí í stjórninni í held ég alveg rúmlega viku.

Sumarið kíkti við í síðustu viku. Allt að verða grænt bara :)



Jæja, best að hætta þessu rugli, og koma sér af stað í smá vinnu :)


15.2.08

Fyrir þann gamla og Valdísi

Uppskriftin er svona, alveg megahega einföld..

Ca 4 kjúklingabringur
Ostasósa
Salsasósa
Rifinn ostur
1 poki Doritos snakk

Aðferð:

Kjúklingabringurnar eru skornar í bita, steiktar á pönnu og kryddaðar vel eftir smekk (finnst best að nota fahitas kryddblöndu).
Doritos snakk er mulið og sett í botn á eldföstu móti. Ostasósan þar ofaná og síðan salsasósan. Síðan eru steiktar kjúklingabringurnar settar þar ofaná og síðan rifinn ostur. Sett inn í ofn í 15-20 mín 200°

Mér finnst líka fínt að hafa bara hreinan smurost í staðinn fyrir ostasósuna. Ég gerði það þegar þið voruð í mat. Þá blanda ég bara saman salsasósu og smurosti og dembi yfir snakkið.

14.2.08

Tilvalið

Finnst tilvalið að birta mynd af jólarósinni sem er tveggja og hálfs mánaða í dag. Ég er sem sagt buin að setja nýtt met í uppihaldi blóma í fjölskyldunni. Fyrir utan ömmu.
Hún er alveg í þrusu stuði og hress sem fress (blómið sko) Fær vatn að drekka öðru hvoru og síðan finnst virðist hún líta best út þegar hún fær afgangs coke, eða annað gos. Skil þetta ekki alveg.
Hér er ein artý ljósmynd sem ég tók af henni um daginn. Held ég þurfi að fara að þurrka af kvikindinu..




13.2.08

up-date

Ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg.
Ég held áfram að græða á Íslendingunum sem eru að flytja í burtu. Svo virðist sem þeir keppist um að reyna að toppa hvern annan, sem ég skil svona ekki alveg, en það er nú víst ég sem er að græða þannig að maður kvartar ekki.

Stjáni:

  • Copy kort sem maður getur notað í skólanum, kom sér einstaklega vel!
  • Jagermaster svitaband á hendina

Bjarni og Arna:

  • Vatnskanna
  • Straujárn
  • Þráðlaus sími

Garðar og Íris

  • Örbylgjuofn

Jón Pétur

  • Lager af bollasúpum (Enda greyið líklega kominn með ógeð eftir sumarbústaðarferðina þar sem hann svolgraði í sig svona 30 lítrum af þessu)
  • Fótboltasokkar og stuttbuxur
  • Stóll
  • Heimabíó
  • Sjónvarp

Víjj, hvað ég hlakka til þegar að næsta fólk flytur :)

Annars er allt frábært að frétta.
Það er reyndar alveg nóg að gera, sem er alveg fínt. Brjálað að gera í verkefninu fyrir Frikka og ég held barasta að þetta sé besti landafræði kennsla sem ég hef fengið í lífinu. En jafnframt sú strembnasta, því þetta er svoldið mikil handavinna, en samt bara gaman svona þegar að er farið að síga á seinni hlutann.

Skólinn byrjaði á milljón og tíu á mánudaginn, og þetta er alveg svaka keyrsla, svona þegar að það er ekki verið að breyta stundartöflunni og eitthvað vesen. En ég er reyndar svo heppin að ég er ekki í Eðlisfræði og Efnafræði þannig að ég mæti klukkan 10 nánast alla daga og er búin fyrr tvisvar eða þrisvar í viku. Annars líst mér bara mjög vel á þetta allt. Erum 8 Íslendingar í bekknum, allir nýfluttir nema ég, þannig að við reynum svona að hjálpast að með námið, sem er fínt.
Sem sagt allt komið á blússandi sving, eins og pabbi orðaði svo skemmtilega.

Svo er ég komin með herbergisfélaga. Jón Pétur flutti inn á mánudaginn og ætlar að vera fram á þriðjudag, þá flytur hann til Íslands. Voðalega notalegt að búa svona tveir einstaklingar í öllu þessu plássi :) Ég, hann og Jólarósin sem er enn á lífi unum okkur nú samt bara vel þarna saman.

Þorrablót á laugardaginn og mikið stúss sem fylgir því, ég ásamt öðrum kjéllingum úr stjórninni erum að fara að baka rúgbrauð ofaní 200 mans á morgun. Hressandi!!

Jæja, held að allir séu löngu hættir að lesa núna, svo best að slútta þessu.