15.4.08

Ammó!

Fínasti Brekinn okkar á afmæli í dag! Orðinn tveggja ára gormur. Og eins og vanalega þegar lítil börn sem ég þekki eiga afmæli þá finnst mér ég vera orðin svona 100 ára. Gaman að því.
En sendi nú samt sem áður afmælisstuðkveðjur í Lautina!!

Svo átti ég 6 ára fermingarafmæli í gær. Gífurleg stemmning. Gærdeginum eyddi ég bitur og leiðinleg í lærdóm og leti. En fór svo á fund í gær og fékk mat, og þá tók ég gleði mína á ný. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, þá var 14. apríl 2002 gleðilegasti dagur lífs míns.


6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vó! myndin greinlega tekin fyrir fermingarveisluna, Kristín allavega ekki búin að fá matinn sinn þarna..

Kristín Alma sagði...

Vá hvað þú ert skarpur.
Fór beint úr athöfninni og í myndatöku :)

Nafnlaus sagði...

hahahha! vá hvað þetta er fynndin mynd:D

Brynja Björk sagði...

Ok myndin sem ég var að segja þér frá er engan veginn lengur fyndnust. Þessi er æðisleg...ég elska pósuna!

Nafnlaus sagði...

takk fyrir afmæliskveðjuna í Lautina. Ekki skemmir fyrir fermingamyndinni þinni að hún er stærsta myndin á fjölskylduveggnum ;)

kv.
Brekamamma

Nafnlaus sagði...

MAN! Þú ert dropp ded gordjöss á þessari mynd darling!
Kv. Svanhvít