6.4.08

Well

Held að bráðum verði bloggverndarnefnd sigað á mig fyrir vanrækslu á annars ágætu bloggi.

Það er reyndar ekkert að frétta svosem. Helgin var svaka fín. Sérstaklega föstudagskvöldið. Of mikið hlegið. Maskari niðrá kinnar og kviðslit. Var dama í gær. Í kjól og hælaskóm. Augnskuggi og gloss. Og Gucci. Gleymdi að taka mynd. Í dag var það joggingbuxur og hettupeysa vegna lærdóms. Verður eitthvað svipað á morgun líka.

Alveg að fá magasár útaf vinnu og búsetumálum í sumar. Kem heim í 6-8 vikur og vantar vinnu heima. Helst á Snæfellsnesi. Eða bara í Grundarfirði.
Annars á Seltjarnarnesi og nágrenni.
Ef einhver sniðugur þarna úti vill ráða mig í vinnu þennan tíma þá myndi það lækna geðheilsuna alveg um heilan helling...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú getur alltaf komið í byggingavinnu til mín;-)

Nafnlaus sagði...

geturu ekki bara farið í bæjarvinnuna á grundó? :) Allt fyrir ástina!!!

kv.
Brekamamma

Kristín Alma sagði...

Gúmmípabbi: Ehh, já er það rétt hjá seltjarnarnesi eða Grundarfirði? :þ

Arna: Maður segir Í Grundarfirði en ekki Á!!

Allt fyrir ástina? Ertu nú búin að hlusta of mikið á Pál Óskar?