1.4.08

Lífsreynslusagan

Ég hef ákveðið að taka upp nýjan lið hérna á froggie.com. Svona í ljósi þess að ég er orðin tvítug. Tvítug brussa. Ég hef því ákveðið að miðla reyslu minni til annara brussna. Þar sem ég hef nú einu sinni verið brussa í tuttugu ár og brussið virðist ekki ætla að vaxa af mér, þó að mér takist einstaka sinnum að feika'ða með að þykjast vera kvennleg. Þá verður fólk svo sjokkerað að ég skuli vera glossuð og með sléttað hár að það virðist ekki taka eftir því að ég brýt hælinn á skónum eða festi tyggjó í hárinu.

Síðasta miðvikudag átti ég mitt brussmóment. Ágætt að það kom þegar ég var komin til Danmerkur en ekki þegar ég var í kökuboði í Grundarfirði.
Semsagt, ef ég væri þið þá myndi ég ekki reyna að beygja mig eftir húslyklunum þegar að þið eruð með tveggja vikna byrgðir af fötum og skóm í bakpokanum og lífsbirgðir af kókópöffsi og ostum, því þá gerist þetta..

Held ég fari að mæta í ræktina.



3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Held að hjólamyndin sé flottari!
Kveðjur frá ömmu Stínu

Kristín Alma sagði...

Hehe. Eða myndin þegar ég var að fara í Jólaboðið með 4 heil dress meðferðis :)

Nafnlaus sagði...

það er vel hægt að lifa með því að vera brussa :)

Brekamamma