29.4.08

Jájájá

Ég er ekkert búin að vera inní internetinu síðustu daga og þar af leiðandi ekkert bloggað.
Svosem heldur ekki mikið skeð í millitíðinni.
Flest allir Flórídafarar komnir heim. Nema tvö elstu. Þau skruppu aðeins til Danmerkur svona til að ná sér niður eftir Bahamas.
Sjálf sætti ég mig alveg við það að hafa ekki farið með og fékk líka góðar sárabætur frá sjálfri mér. Keypti one way ticket to Grundarfjörður og er núna hérna á Grundargötunni bara að tjilla meðan bóndinn er útí móa að mæla fyrir nýju íþróttahúsi.
Reyndar búin að vera að setja í þvottavélar og svona - maður er ekki alveg gagnslaus!
Stefnan er tekin á Reykjavík í fyrramálið. Smá kaupsstaðarferð og Sölkuknús vonandi.


Adios amigos

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mikið var... var farin að halda að þú værir dauð... ;)

one way ticket... trúi því ekki...

Nafnlaus sagði...

Lucky Luke!

Ragga Rokkar sagði...

Bara orðin svona myndarleg húsfrú elskan :):)

Nafnlaus sagði...

nei heyrðu á landinu??!!! endilega hitta mig í smá stund á morgun?? bjallaðu allavena í mig sæta:)