24.2.08

Bara ein blaðamannaverðlaun!

Jæja, maður hefur kannski smá rétt á að vera montinn núna. Pabbi og Þóra voru að fá blaðamannaverðlaun. Alveg vissi ég að þau myndu "hneppa hrossið", þó að pabbi hafi verið hógværðin uppmáluð og sagt að þau myndu ekkert fá þessi verðlaun. Deildu þessum verðlaunum reyndar með DV, en hverjum er ekki sama.

Siimar og Fóra áttu þetta allavega skilið.




Svo vona ég innilega að þessi verðlaun hafi verið í formi styttu, eða bikar. Svo að þessi ljóta Edda geti farið niðrí geymslu :)

2 ummæli:

Brynja Björk sagði...

Svo myndarlegt fólk þessar sjónvarpsstjörnur!

Kristín Alma sagði...

Með andlit fyrir útvarp og rödd fyrir dagblað :)

Djók, best að haga sér svo afmælisgjöfin skerðist ekki.