27.2.08

Konur eru konum verstar :)

Jáhá.
Það er stelpa hérna í kantínunni í skólanum þar sem ég sit núna og er hágrátandi að tala við einhvern (örugglega kærastann, sem býr í öðru landi langt í burtu) á skype og er með hann í webcam.
Þau tala skrítna útlensku sem ég skil ekki.
En allt í einu þá leit hún svona flóttalega í kringum sig og fór svo að skellihlægja. Snéri svo tölvunni að mér þannig að ég sæist í webcaminu. Leiðinleg maður. Ég veit ég er eins og draugur, með bauga niður á nafla og orðin veik í þokkabót með hausverk, beinverki og hitavellu. En það á að vorkenna manni í svoleiðis ástandi, ekki hlægja eins og norn og sýna einhverjum gaur í Rússlandi hvað ég er tussuleg!
Kannski er ég bara svona ljót in general. Hvað veit maður!

Þá hætti ég allavega að vorkenna henni að vera svona í burtu frá kærastanum sínum og eitthvað. Langar að hrækja á hana.

En best að halda áfram að vinna. Þetta hjélvíti græjar sig ekki sjálft :)

4 ummæli:

Brynja Björk sagði...

Það rétta í þessari stöðu hefði verið að flassa í myndavélina. Tuðran hefði ekki verið sátt þá.

Ragga Rokkar sagði...

Sammála fyrsta ræðumanni ;);)
Hlakka til að sjá þig um páskana !!

Kristín Alma sagði...

Hahaa!

Já, dísess, en að fatta það ekki!!!

Nafnlaus sagði...

hahaha þú ert rugluð:D