Jón Pétur farinn heim að sparka í tuðru fyrir vestan og pínu tómlegt hérna hjá okkur í Hrossanesi. Allavega búið að vera það í dag, en við verðum fljót að gleyma. Allir nema mamma, því hún virðist ekki ætla að sætta sig við að það séu allir að flytja frá henni þannig að hún ætlar að drífa sig til Íslands á fimmtudaginn til þess að kíkja á liðið og athuga hvort það sé ekki í lagi með alla.
Ég sjálf virðist ekki vera með jafn mikinn aðskilnaðarkvíða þannig að ég á ekki pantað far heim fyrr en eftir rúmar 3 vikur, eða 13 mars. Lendi eftir miðnætti þannig að næst þegar þið sjáið mig verð ég búin að vera tvítug í nokkra klukkutíma.
Mikil tilhlökkun, því kvöldið 14. mars (afmælisdaginn minn) ætla Sálin hans Jóns míns að halda uppá 20 ára afmælið sitt líka, svo í staðinn fyrir að halda brjálað partý þá ætla ég að skella mér bara í höllina ásamt fríðu föruneyti og gera allt vitlaust. Meeen hvað verður ruddalega gaman!!
Annars er allt í fínu formi bara. Skólinn alveg á skrilljón og það er sko engin afslöppun. Þorrablótið búið og var alveg ógeðslega skemmtilegt. Svo núna er fundarfrí í stjórninni í held ég alveg rúmlega viku.
Sumarið kíkti við í síðustu viku. Allt að verða grænt bara :)
Jæja, best að hætta þessu rugli, og koma sér af stað í smá vinnu :)
2 ummæli:
Við verðum aldeilis að halda uppá afmælið í flugvélinni, jaaaahá, ég held nú síður...
hlakka til að fá þig litla mín! En sumar? hér er nú allt í snjó og og rigningu! Viltu skipta?
Skrifa ummæli