Þegar ég var búin til, var greinilega ekki verið að vanda sig. Það liggur í augum uppi að það hafi verið spreðað óþarflega mikið af karla-genum í mig.
Allavega svona ef þið horfið á þetta myndband (ekki myndband af þeirri athöfn samt).
Ég verð svona þegar ég er veik. Eins og núna. Ég á svooooo bágt að mig langar bara að fara heim til mömmu og liggja í mömmuholu þangað til mér batnar.
Er samt bara með smá hita, beinverki og hálsbólgu. Ekkert alvarlegt..
5 ummæli:
Elsku kerlingin mín! Nú reglulega vorkenni ég þér. Mundu að taka lýsið þitt og vertu fljót að láta þér batna.
Kveðjur frá ömmu Stínu
Láttu þér batna fljótt sæta. Við hlökkum svooo til að sjá þig! Afmælisveisla 24.mars.
Knús, Gúa
ÆÆÆ knús á þig frænkz !!!
ohhh.. það er líka svo ógeðslega leiðinlegt að vera einn lasinn.... farðu bara til mömmu þinnar - miklu betra að hanga þar undir sæng heldur en ein heima sko.
Hlakka svoo til að sjá ykkur snúllurnar mínar ;o)
æji little babycakes !
En getur samt verið ánægð með það að þú gladdir mig með þessu myndbandi, ég sá þig bara fyrir mér og grenjaði úr hlátri og vorkunnsemi ;**
Láttu þér batna sweety
-KarenHelga
Skrifa ummæli