14.5.08

Harður vetur?

Nú í ljósi þess að það er farið að hlýna all verulega í veðri þá er flíkum fólks farið að fækka og að auki farnar að vera töluvert efnisminni en vetrarpelsarnir.
Það er ýmislegt sem kemur í ljós á þessum tíma árs. Það mætti eflaust klippa táneglur, raspa hælana, vaxa helst öll hár fyrir neðan háls og só on. Oft kemur í ljós að maður passar ekki í sumarfötin frá síðasta sumri eða þá að björgunarhringurinn hefur stækkað og konur hætta að borða til þess að geta látið sjá sig í bikiníi niðrá strönd.
Allt eru þetta nánast eðlilegir hlutir og kemur fyrir besta fólk svona á vorin.
Það sem ég hef hins vegar tekið eftir, svona þegar ég sit niðrí bæ á kaffihúsi og virði fyrir mér fólkið sem gengur framhjá er að það er önnur hver kona ófrísk!
Veturinn hefur líklega verið alveg skelfilega harður og flestar konur leitað sér hlýju hjá hinu kyninu (má ekki segja að fólk hafi verið að ríða, þá snappar móðir mín).
Þetta er skondið. Því veturinn 87 var einmitt sjómannaverkfall og þess vegna er minn árgangur svona stór (þó að ég hafi nú bara komið undir eftir Bowie tónleika). Það eru til fleiri svona dæmi, nenni bara ekki að finna þau. En er bara að pæla hvað var eiginlega í vetur sem gerði það að verkum að fólk fór að makast (eða guð má vita hvað þetta heitir)
Fyrst var þetta sætt, en ekki lengur. Ég er ofsótt af ófrískum konum. Það finnst mér ekki fyndið. Ófrískar konur eru eitt það hættulegasta í heimi, reyndar líka svoldið sætar, svo ég lendi nú ekki í því að einhver óléttínan setjist ofaná mig eða eitthvað þaðan af verra.
Held ég haldi mig bara innandyra það sem eftir er sumars, vil ekki eiga það á hættu að einhver svona ólétt andi á mig og ég smitist :)
(Samt hlakka ég alveg mest mikið til að sjá öll krílin sem eru að fæðast í kringum mig í sumar og haust)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ahahahaha....!!
Eitthvad bogid vid thetta.....kvenfólk fer sko ad sjá óléttínur alls stadar thegar ad thær langar sjálfar í óléttustand. Så pas på !!

Nafnlaus sagði...

Bara aðeins að kvitta hjá þér skvísa þar sem maður fylgist nú alltaf með "froskinum" í Horsens;-) Get nú ekki verið alveg sammála henni móður þinni hehehehehhehe Það eru ekkert nema óléttar konur í kringum mig og þar sem ég fer á kaffihús eða annað eru ekkert nema óléttar konur og EKKI langar mig í barn strax hehehehehehe
Knús á ykkur sætu og verð að koma í heimsókn fljótlega