Litla systir mín, hún Sigríður Soffía á afmæli í dag. Orðin 14 ára. Og ég man eins og það hafi verið í gær þegar við fórum hjólandi uppá spítala úr Skaftahlíðinni til að sjá liltu systur. Þegar ég sá hana fyrst varð ég líka fyrir smá vonbrigðum, enda hafi ég hugsað mér að eignast litla systur sem var ljóshærð með krullur. Alveg eins og Magga (litla systirin í Krakkarnir í Krummavík) var. Það skorti nú ekki hárið á barnið. Og ekki krullurnar (aldrei séð ungbarn með svona miklar krullur) en háraliturinn var alveg kolvitlaus. Svartur!
Var samt fljót að sætta mig þegar ég fékk trópí og the boys plagat.
Versta samt að 13 mánuðum áður fór ég líka uppá fæðingardeild og varð fyrir álíka miklum vonbrigðum. Vilborg Unnur var nefninlega ekki lítill bróðir eins og ég var búin að ákveða. Þvílík meðferð á mér sem stóru systur!
Til hamingju með afmælið greyið mitt!
Það er annað afmæli í dag. Guðmundur (móður) bróðir minn á afmæli í dag. Hann er nú orðinn 32 ára, ætla ég að skjóta á. Til hamingju með það! Ég man ekki eftir því þegar þú fæddist, en gæti hins vegar þulið upp nokkrar sögur af því þegar þú píndir mig, kvaldir mig, lést jóa gúrku hringja í mig, sagðir við mig að "steinarnir, eða kjarninn" í gulri melónu væri æla, lést mig þrífa herbergið þitt fyrir 200 kall, lést mig segja söguna um hænuna sem pissaði á sig og svínið sem gerði það líka í æsku á video, lést mig vera með í allskonar video djóki sem þið Einar voruð að taka upp (ættum að horfa á það næst þegar við erum í S1) og svo mætti leeengi telja.
Vona að þú farir að þroskast, amk áður en þú verður pabbi eftir nokkra mánuði.
Afi týndi á nú líka afmæli. En þar sem hann er týndur er ekki mikið hægt að skrifa um það.
Jæja, læt þetta gott heita í bili. Orðin rangeygð af þreytu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli