Já, í dag er sko ekki aldeilis bara einhver svona guðadagur, heldur er líka mömmudagur. Færði móðir minni blómvönd í tilefni dagsins og er því búin að tryggja mér betri arf en systkini mín.
Annars er þessi Hvítasunnuhelgi búin að vera sweet. 25 stiga hiti og glampandi sól. Á góðri leið með að vera tönuð í drasl.
Reyndar með alveg viðbjóðsleg för hér og þar um líkamann. Eftir hlírabolinn minn á annari öxlinni (sat á kaffihúsi í tvo tíma með sólina hægra megin við mig) svo er ég hvít niður á mið læri eftir pilsið mitt og svona eitt og annað sem á eftir að jafnast út. Vonandi.
En núna er ég nú að hugsa um að fara í þvottahúsið. Það nennir enginn þangað á nóttunni þannig að maður getur haft eins margar vélar og maður vill :)
1 ummæli:
Við sem erum hér á Islandinu góða í 9 stigum og rigningu, fylgjumst mjög vel með veðurfarinu hjá ykkur þarna. Þið mamma þín ættuð kannski að samræma hitamælana ykkar hehe.
Kveðjur frá ömmu Stínu
Skrifa ummæli