Sko. Mér finnst þetta svolítið gróft. Ég er að reyna!
Eftirfarandi átti sér stað á daglegu-miðnætur-msn-spjalli við bóndann.
J.P. says:
Meðan ég man þá var ég að fá fyrir þig leikjapassa áðan á heimaleikina
Kristín Alma - ÁFRAM RÓSK OG FRÓMAS! says:
Haha What?
J.P. says:
Þá geturu komið á leik og verið með Birgittu og krökkunum á rólóvellinum
Kristín Alma - ÁFRAM RÓSK OG FRÓMAS! says:
Af hverju á rólóvellinum?
J.P. says:
Þeir sem mæta á leiki til að fá nammi, en nenna ekki að horfa eru á rólóvellinum
Eins fokkíng gott að maður fái þá eitthvað nammi ef maður dröslast til Ólafsvíkur á leik!
4 ummæli:
aldrei hef ég fengið nammi á heimaleik í Grindavík og samt er ég alveg að horfa.. vissi t.d. eitt tímabilið hvaða leikmenn spiluðu í hvaða skóm, enginn sem segir að maður þurfi að horfa á boltann ;)
kv.
Brekamamma
Áfram ísland !!!
Eins gott að þú farir að venja þig strax við að þurfa að horfa (alla vega hlusta)á fótbolaleiki eða umræðu um þá. Lífið snýst hvorki meira né minna um boltann í þessari fjölskyldu. Var ég ekki búinn að segja þér frá því þegar allir karlmenn sem voru í skírnarveislunni hennar Birgittu Sólar týndust. Jú, þeir fundust inn í svefnherbergi hjá mömmu og pabba að horfa á leik.
Hei, við verðum aðal skvísurnar í brekkunni í sumar:) með nammi og í sjóræningjabolum stuðningsmannahópsins.
Áfram Víkingur.
Arna: Einmitt. Ég hugsa að ég verði ekki lengi að spotta út flottustu lærin (má það annars?) og hver er með best teypuðustu legghlífarnar.
Ragga: Haha, nei varstu ekki búin að ákveða að halda með Víking R í sumar. Stefán Kári er þar sko!!!
Þú ert kannski bara að tala um Júró, hihi?
Ásdís: hehe, Já, ég er alveg voða áhugasöm.. um fótboltan sem Jón Pétur er að spila, mér er sama um Enska boltan og þannig, eða svo til.
En þegar einhver leikur (Mikilvægasti leikurinn á tímabilinu hjá man.u, var mér sagt) var í tv síðast þegar ég var í Grundó þá sá ég alveg að fótbolti er líflínan hjá sumum. Pabbi þinn ljómaði eins og sólin þegar ég þrammaði inn um dyrnar á Grundargötunni, í man. u. treyjunni, hlammaði mér í sófann og sagði "Lífið er fótbolti" - Þetta var einn af leikjunum sem JP mátti ekki vera að því að skipta um föt eftir æfingu af hræðslu við að missa af fyrstu mínútunum. Guð hjálpi okkur :)
Annars leggst sumarið vel í mig sko, hlakka bara til að fara á leikina og læra hvað horn er og hvað er að vera rangstæður... :)
Skrifa ummæli