12.3.08

Burðardýr

Ég ætlaði aldeilis að pakka létt fyrir þessa blessuðu Íslandsferð mína. En svo mundi ég eftir að ég er með hálfa búslóð fyrir vin minn. Hann sagðist nú hafa fengið gám þegar hann flutti frá DK fyrir mánuði síðan og að þetta væri bara svona restar. En svona þegar ég hugsa útí það þá sá ég aldrei þennan gám.
Uss, læt ekki plata mig svona aftur!
Ekki það, ef að ég hefði ekki verið með þessa hluti fyrir vin minn þá hefði ég nú bara pakkað einhverjum óþarfa í staðin fyrir bomsurnar og blómahanskana :)

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já eða tekið hálft tonn af kúlusúkk og bombum fyrir ákveðið félag sem að þú vinnur fyrir......þetta er þó skárra ljúfan, að taka fyrir félagann ;)

Kristín Alma sagði...

Miklu betra sko!
Væri kjánalegt að skilja þetta eftir hérna. Ég er ekki að fara að nota bomsurnar og það!! hehee!!

Nafnlaus sagði...

heyrðu skvis! Við Linda ætlum að biðja þig um að kaupa 1 hlut i fríhöfninni! (það er ekki áfengi, skal leyfa þér að eiga tollinn fyrir sjálfa þig!) en ég þarf að tala við þig áður en þú ferð litla min!

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn yndisleg. Eigðu góðan dag :) Bið að heilsa stóðinu okkar....

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið og velkomin í sama tug og ég :)

kv.
Brekamamma

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn, vona að hann verði ánægjulegur...
Kveðja frá Akureyri
Valdís

Nafnlaus sagði...

Tllykke með daginn skvis!

Nafnlaus sagði...

það getur ekki verið svona mikið að gera hjá þér í Grundafirði að þú getir ekki einu sinni skellt einni færslu hingað inn stelpa;D