22.6.06

Nú er stuð í Kórsölum.
Ég og Ronja erum einar heima.
Ronja er eiginlega úti allan daginn að láta ólétta sig svo ég er ein.
Pabbi, Þóran, Salka og Katla eru í sveit að elta gamla geit.
Best að fara að taka til....

á nærbuxunum.

21.6.06

Eins og sjá má á fyrri færslu þá er ég komin á ísinn aftur eftir stutta dvöl í danaveldi.
Flaug út á laugardagsmorgun. Tók reyndar á mig örlítin krók og flaug til Oslo og þaðan yfir til Sjöppen. Fyrsta skiptið mitt í Oslo, ekki svo slæmt. Drakk goslaust pepsimax og keypti mér Samsonite dót á skít á priki.
Nú eftir að ég var búin að koma mér í gegnum skandinaviu þvera og endilanga, búin að rífast við 34 starfsmenn SAS og Icelandair, Búin að setja upp leikrit á flugvellinum hérna heima þar sem nokkuð mörg tár og veik frænka komu við sögu, eftir að hafa setið við hliðiná illa lyktandi þjóðverjum á leið til Oslo, eftir að lítil krumpuð kona var næstum búin að stela símanum mínum og eftir að ég lamdi litlu krumpuðu konuna og fékk símann aftur þá var ég loksins komin til Sjöppen. Þar var mannsæmandi loftslag, töttugu og femm stiga hiti og sól. Gummi og Kristín náðu í mig, ég setti upp sólgleraugun (loksins) og við brunuðum á vestur jótland, eða í gegnum alla danmörku.
Þegar að við komumst á leiðarenda biðu Amma, Afi, Mamma, Pabbi2, Systkinahrúgan, Fróði (hundurinn minn.) Óskar, Lija, litlufrændaskrímslin tvö eftir okkur í þessu líka svaka stóra sumarhúsi sem var með einkasundlaug, heitum potti, gufu, stórum garði og huge hvítri strönd
rétt við. Æðislegt. Ótrúlega gaman að hitta alla, sérstaklega mína famelíu sem ég hef ekki hitt í hálft ár. Þetta var æðislegt út í gegn, bara slakað á, sofið til hádegis,farið út að skoða ströndina og kíkt í legoland, svo var komið heim og maður lagði sig aðeins. Voðalega ljúft.
Ég þakka kærlega fyrir mig og legg til að þetta verði árlegur viðburður. Hvað segiði um að hittast næst á spáni? Hafið það sem best og vonandi getið þið skemmt ykkur jafn vel án mín.
Ég, Gummi og Kristín brunuðum svo í hádeginu á þriðjudag til Sjöppen aftur. Komum þangað um fjögurleytið þannig að við Kristín skelltum okkur á strikið, sem er handan við hornið frá staðnum sem þau búa á. þægilegt að eiga svona vel staðsetta ættingja. Ég setti evrópu met í fatakaupum innanhús án atrenu, keypti 2o kíló af fötum, slatta af skóm, töskur, glingur og aðrar nauðsynjar. Takið eftir því að ég verslaði allt þetta í tvem búðum. Geri aðrir betur.
Var mætt útá kastrup 22.00 og flaug svo heim klukkan 22.50.
Dröllu fallegt fólk í vélinni á leiðinni heim, en ég var látin sitja fyrir framan heila íslenska fjölskyldu. Börnin töluðu dönsku við hvort annað og görguðu. Mamman og pabbinn voru full.


Ég fékk gjöf frá systkinum mínum þegar að ég var að fara. Það var froskabangsi, því þeim finnst ég svo mikill froskur. Þau lesa ekki bloggið mitt - þetta var sætast í heimi :)

Já gott fólk.
Ég er lennt á klakanum og tók heldur betur sólina með mér.
Sjáum til hvað hún endist lengi...

Froggie ferðalangur

17.6.06

Farvel Kalda frón


Froggie.is er farin til Danaveldis að hitta stórfjölskylduna í huge sumarhúsi einhversstaðar á vesturströndinni. Fékk sendan miða á e-mail í fyrradag í boði Gummi group. Ákvað að skella mér.
Flogið í nótt til Köben og keyrt þaðan með Gumma og Kristínu.
GamanGaman.
Vona að ég geti notað sólgleraugun mín þar.

Gleðilegan 17.júní.

Ef einhver nennir þá má hann sækja mig útí Leifsstöð klukkan 23.55 á þriðjudagskvöld. Það eru allir sem ég þekki í útlöndum...

Verið góð hvort við annað...

13.6.06

Dæmigerður Íslendingur

Á sunnudaginn var hræðilega mikil rigning.
Ég ákvað nú samt að gera eitthvað sniðugt úr deginum og skella mér í sund. Það var reyndar alveg ógeðslega þægilegt að liggja í pottinum, hálf berrassaður, innan um 176 aðra berrassaða einstaklinga og láta rigninguna dúndrast á andlitið á sér, eftir að hafa synt marga kílómetra.
Þegar að ég var komin uppúr ákvað ég að fara út í stuttum gallabuxum og opnum skóm, því ég hélt að rigningin myndi ganga yfir. Kannski full mikil bjartsýni. Ég þurfti að labba tvo metra undir berum himni og á þeim tíma rigndi svo að ég hef aldrei kynnst öðru eins. Orðatiltækið "það rigndi eins og hellt væri úr fötu" fölnaði við hlið þessarar dembu.
Jæja, ég orðin blaut aftur og fötin líka, eins gott að ég var með handklæði í töskunni. Kíkti við í Smáralind, pælingin var sú að ég myndi kaupa mér einhver viskuleg föt, skó eða eitthvað sem að gerði gagn á þessu blauta landi.
Nei, ég kom út með Dolce og Gabbana sólgleraugu. Bráðnauðsynlegt að eiga svoleiðis í blíðunni hérna á Íslandi. Hefði betur keypt mér vöðlur, örugglega hægt að fá einhverjar súper góðar og flottar vöðlur fyrir sama pening - MIKIÐ meira notagildi.
Í dag var í fyrsta skipti sem að ég hef farið út með gleraugun. Labbaði úr vinnunni og útí matarbúð í hádeginu. Svo tók ég á mig extra krók á leið heim úr vinnunni, fór niður laugarveginn, svo það væri nú hægt að nota gersemina eitthvað.

Nú er ég hjá ömmu og afa, nema þau eru ekki heima. Er búin að fara í pottinn og liggja þar eins og skata. Svo gott, best í heimi.

10.6.06

Litlu-skrímsla-blogg







Já, þetta blogg verður tileinkað litlum börnum útum allan heim og foreldrum ungra barna, sem ég dáist að.
Passaði litla skrímslið mitt í gær, hún var ekki jafn stillt og vanalega, eða reyndar bara þreytt og ekki sátt við að vera sett í pössun í heilar 40 mín. En svo var núðlunni okkar bara skellt í bað og þá varð hún sátt og sofnaði í stólnum sínum.
YNDI þetta barn.

Nú, eins og flestir hafa tekið eftir, þá er óléttan að ganga og greinilegt að þegar að vorvindarnir fóru að blása að það hafi borist eitthvað annað en birkifræ með þeim. Best að passa sig, því að ég held að þetta sé smitandi. Get svarið fyrir það, það er önnur hver kona á Íslandi ólétt. Mjög skæð pest. Þori ekki út, ef maður á það á hættu að smitast.
Fékk einmitt óléttufréttir númer 37 áðan, hitti fyrrverandi vinnufélaga úr Samskip sem sagði mér það að þau hjónin ættu von á litlu kríli. Loksins :)
Gaman Gaman.

En jæja, best að fara að sofa í hausinn á sér, þarf að vinna eins og mófó næstu vikur til að eiga fyrir öllum sængurgjöfunum, eins gott að maður er á sérdíl hjá BabySam...

6.6.06

Froskurinn.is virðist bara ekki geta rifið sig uppúr blogglægðinni, ætti kannski að ræða við Sigga Storm um það hvernig spáin verður næstu daga.
Partý stand er líklega það sem einna helst hefur einkennt síðustu daga.
Þrítugsafmælið hjá Gumma var auðvitað ekki af verri endanum og ekki neitt venjulegt partý þar á ferð skal ég segja ykkur. Mætti klukkan 5 í mínu fínasta pússi, með gloss og allt. Þá var matur sem undirbúinn var af meistarakokkum, auðvitað. Gott vín og engar djöfuls knorr sósur skal ég segja ykkur. Svo klukkan 20.00 var svo partýið, þjónustufólkið merkt, huge banner á húsinu, golfkúlur fyrir alla, merkt, hljómsveit, flæðandi áfengi, bjór í fiskikörum, sem voru full af ís og ég veit ekki hvað og hvað. Mjög gaman og ég vil nota tækifærið hérna til að þakka kærlega fyrir mig!
Sunnudaginn var svo BS djamm, og það ekki af verri endanum. Byrjað á að borða saman á Ítalíu, mjög góður matur og fín þjónusta. Svo var farið heim til Elfu, setið og spjallað fram yfir miðnætti. Þá tíuðum við okkur í bæinn, fórum á Sólon, Hressó og Pravda. Enduðum með einhverjum ameríkönum í einhverju "vip" herbergi á pravda. Get svarið fyrir það, ALDREI ALDREI AFTUR (á pravda)! Var lokuð inní rými með 1000 aflituðum, appelsínugulum karlmönnum, 50 gellum sem voru með svo mikið sílicon í hinum ýmsu líkamspörtum að það kæmi mér virkilega ekki á óvart ef einhverjar þeirra væru í heimsmetabók ginnes - Svossem kannski gott að fylla uppí það sem hægt að er fylla uppí til að tómarúmið í hausnum verði ekki jafn áberandi. En hvað veit ég, bráðgáfaður kvennmaður með ekta brjóst, glötuð pía? (lennti sko í atviki inná Pravda, þar sem tvær svona píur komu við sögu, svo vitlausar!)
En í heildina var nú ótrúlega skemmtilegt þetta kvöld, mjög vel heppnað. Takk fyrir síðast skvísur.
Í gær átti (lang)Amma Ragga svo níræðisafmæli, að því tilefni var liðinu smalað saman í flottan dinner á skólabrú. Þarna vorum við samankomin, börnin hennar, barnabörn og svo við Skúli, tvö elstu langömmubörnin. Svaka gaman, voða flottur matur, vín, flott fólk og ræður. Amma Ragga er bara svo mikill töffari að ég held að ég eigi töffuðustu langömmu í heimi, gamaldags er nú varla til í orðabók þeirrar gömlu.
Hafdís frænka sagði við mig, Jæja Kristín Alma mín, það er nú meira hvað þú ert ORÐIN falleg og yndisleg stúlka. Fór heim á bömmer yfir því að hafa verið svona ljótt og glatað barn.
Þetta var reyndar ekki það sem hún átti við, sagði svo að ég hefði nú alltaf verið þetta, bara orðin meiri dama núna heldur en fyrir 10 árum.
Svo verður meira partýhald með gömlu 24-25 júní - útí sveit, þar sem að ég hef ekki komið síðan að beljan sleikti á mér eyrað forðum daga, verð að horfast í augu við óttann.
Áðan hitti ég svo Helgu á Oliver, fengum okkur að borða og planið var nú að spjalla saman, en það varð eitthvað minna af því þar sem að Helga var nánast óviðræðuhæf, bæði því hún var svo upptekin af matnum og svo þegar að hún leit upp frá disknum þá var það til að kíkja aðeins á danska barþjóninn og segja svo "frígging heitur gaur" Ég er ekki sammála. Sagði henni að allir væru svona sætir í Danmörku. Nú skyndilega vill hún ólm koma í heimsókn til Danmerkur. Skrýtið.



Lifið vel.

1.6.06

Afmælisfólkið

Jeminn eini hvað ég er þreytt.
Nýkomin heim af Seltjarnarnesinu gamla og góða, fór þangað beint eftir vinnu.
Mættum nokkur í Sævargarða 1 til að skúra skrúbba og bóna fyrir veisluna á laugardaginn. Voum á 100 að þrífa, við kvennsurnar inni að þurrka af og svona en karlarnir úti að þrífa glugga og ditta að hinu og þessu. Þegar að þrifunum lauk þá vorum við í því að skipuleggja hvar hvað ætti að vera, vorum nú reyndar með smá fyrirmæli frá afmælismanninum, en samt sem áður þurfti að sjá þetta allt fyrir sér, hvar hljómsveitin eigi að vera, hvernig væri best að hafa borðhaldið þarna fyrst, þegar að við famelían erum bara og svona allskonar. Svo sagði afmælismaðurinn að það kæmu svona fiskiker (að mér skilst) full af ís á laugardaginn, hvernig svosem í fjandanum þeim verður komið fyrir þar sem þau eiga að vera, en ég ætla samt að horfa á það - verður spennandi. eða ekki?

Ok, þetta er svona líka leiðinlegt blogg - endum þetta á afmæliskveðjum til vandamanna.

Litla systir á afmæli í dag, SiggaSoffa litla orðin 12 ára gömul. Finnst mjög stutt síðan ég sá hana fyrst, fannst hún nú ekki sæt, verð ég að viðurkenna, bara lítil krumpuð og eins og kínverji, með voða mikið svart hár - En hún er nú þvílík myndardama í dag, Til hamingju með afmælið krútta!

Best að óska Guðmundi Óskarssyni líka til hamingju með stórafmælið, orðinn 3o ára, Til hamingju með það! Þess má til gamans geta að Gummi er einmitt guðfaðir SigguSoffu, ekki amalegur guðfaðir sem hún á, stelpan.

P.S. Hérna er svo mynd af boðskortinu sem ég fékk, dáldið öðruvísi, það verður ekki annað sagt.

30.5.06

Ég verð víst að viðurkenna það að ég hef ekki verið að sinna skyldum mínum sem bloggari síðustu daga og vikur. En það er reyndar búið að vera hundmikið að gera hjá mér og froskurinn.is var settur á hold á meðan.

Mikið hefur nú ekki skeð síðan síðast. Jú við skitum uppá bak í Júróvisjón. Ekki í fyrsta skiptið og ekki það síðasta. Svo var það feministinn Kristín Alma sem að horfði á aðalkeppnina. Hlýtur að hafa verið mjög heitt í Aþenu - Allir bara berrassaðir. Bókstaflega á rassinum. Meira að segja gellan sem að fékk allar millurnar til að dressa sig upp ákvað að mæta bara á nærbol og stígvélum. Töff.
Reyndar toppuðu Bretar kvöldið með barnakláminu, aldeilis flott hjá þeim. Júróvísjón sökkaði feitt þetta árið, gjersamlega gleited dæmi - Fyrir utan danska lagið að sjálfsögðu, gå denmark.

Kosningar riðu yfir landið síðustu helgi. Allir sigurvegarar eins og komið hefur fram einu sinni eða tvisvar. Get ekki ákveðið hvort ég eigi að vera Kommatittur eða Sjalli. Sem er mjög spes. Finnst margt af því sem að Vinstri Græn eru að gera mjög frábært og æðislegt. Annað glatað. Eins með Sjálfstæðisflokkinn. Finnst þeir vera með hausinn alltof mikið inní síns eigins rassgati - mættu alveg kíkja út við og við.

Hmm. Massa mikið að gera um helgina er á fullu við að finna mér date til að taka með mér í þrítugsafmæli á laugardag. Hangi á Sólon á kvöldin og á Subway niðrí Faxafeni milli 13-14 alla daga til að finna útúr hvern ég eigi nú að taka með mér, ekki getur maður mætt einn í svona samkvæmi. Það er bara lummó.
(ætti kannski að finna mér betri staði til að hugsa á?)

Mamma á afmæli í dag, 22 ára þessi elska, óska afmæliskonunni til hamingju með það.
Lifðu í lukku en ekki í krukku.

Lifið heil


17.5.06

Illa útleikin eftir Kötlugos




Katla gerði sér lítið fyrir þegar að ég tók hana í fangið á mánudag.
Gaus 30 lítrum af brjóstamjólk yfir mig.

Þetta er mynd af ælinu.

Lítið bloggstuð, fékk hræðilegar fréttir fyrr í dag. Sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur í Sandgerði.

Guð veri með ykkur á þessum erfiðu tímum.

Eitt af börnunum sem ég var að passa úti í USA, þegar að ég fór þangað sem aupair er að koma til Íslands með mömmu sinni. Hún verður eins árs á morgun, lítla snúllan. (var alveg ný þegar ég fór út) Hún verður hjá mér um alla helgina, og ég ætla að fara með hana í húsdýragarðinn og við ætlum að gera allskonar skemmtilegt saman, hlakka þvílíkt mikið til, finnst ég eiga svo mikið í henni, og þeim systkinum reyndar líka.
En ef að það er einhver sem á Vagn eða svefnkerru sem að ég get fengið lánaða yfir helgina væri það frábært :)

10.5.06

Ohh, þar fóru grillpartýin

Gat nú verið, loksins þegar að það var kominn svo fínn mórall hérna í úthverfið okkar útaf öllum grillveislunum, sem brennuvargurinn sá fyrir og skipulagði alveg sjálfur. Gleited.
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1200723

Annars var ég að ræða við Brynju Rún vinkonu mína.
Fann út að ég væri ekki tilbúin til að vera full time mom, allavega ekki eins og er, þannig að ég ákvað það að það væri fullkomið fyrir mig að fá mér kærasta sem er barn, nei fyrirgefið Á barn. Pælið í hvað það myndi hennta vel, bara vera með kallinn alla daga og svo barnið aðra hvora helgi (Þ.e. ef að móðirin væri með forræði.) og kannski nokkrum sinnum á virkum dögum. Hanga svo aðeins í Smáralind með grenjandi krakkann og kaupa svo ís, fara í bíó og gera ALLT svona til að maður þurfi nú örugglega ekki að eyða svona "mommy and me time" með barninu.
Fullkomið.
Svo ef þið vitið um einhvern svoleiðis, 82-86 módel þá bara bjallið þið í mig.
(Verður samt að standast gæðastuðla (er það orð?) og þær kröfur sem eru settar.)

Kannski að setja þetta í einkamál? Eða barnaland.is?

9.5.06

Aldrei kaus ég framsókn



Fór á kosningaskrifstofuna til Sóleyjar móðursystur minnar í föðurætt um daginn, í kommúnistapartý. Auðvitað var dælt í mann merkjum sem á stóð "Ég rokka til vinstri" og svona skemmtilegt.

Hún Sóley sagðist ætla að bíða með að taka "ræðuna" á mig þangað til pabbi væri kominn til Aþenu. Eftir þessa ræðu á ég víst að vera orðin græn í gegn. Hún á góða möguleika, þar sem að ég er ekki neitt eins og er. En hver veit hvort að ég fari bara að leggja í fatlaðrastæði og verði exbé.

Það er búið að vera geggjað veður í Reykjavík síðustu daga. Eða svona geggjað á íslenskan mælikvarða. Enda liggur það í augum uppi að þegar að ég á að vera inni að lesa fyrir eitthvað bjévítans próf, þá er rjómablíða úti. Mér reyndar er búið að takast að gera ýmislegt til að njóta veðurblíðunar. Fór í sund og í langan göngutúr í gær, labbaði alveg út um allt breiðholtið - finnst það nú dáldið vel af sér vikið.

Köttur móður minnar í föðurætt* (sem hún skyldi eftir, alveg óvart heima hjá mér) er farin að fara sjálf út núna, uppgötvaði það einn daginn að hún komst útum eldhúsgluggan og inn aftur. Mikil uppgötvun fyrir svona animal. Enda síðan að hún fór út í fyrsta sinn þá er hún búin að príla inn og útum gluggan líkt og enginn sé morgundagurinn. Greyið. Núna þarf ég að hafa áhyggjur af því að kattarkvikindið láti barna sig.

Best að halda áfram að læra, svo að ég eigi smá möguleika á að ná þessu prófi.

*Móðir mín í föðurætt er Þóra, hún er að sjálfsögðu mamma mín, en til að skilgreina hana frá mömmu verður hún að vera móðir mín í föðurætt, þar sem að hún er mamma mín pabbamegin. Og þá er það nokkuð ljóst að móðursystir mín í föðurætt er systir Þóru

7.5.06

Til hamingju kæru landar!

Loksins settum við Íslandsmetið langþráða
Í dag 07.05.06, tróðum við okkur öll saman, á sama tíma ofaní Salalaugina í Kópavogi.
Fámennt en góðmennt.
Samt var ekki hægt að skipta um skoðun í pottinum, til dæmis.

Í nótt var hið árlega grillpartý hérna í Salahverfinu.
Afrakstur næturinnar eru 3 skemmdir bílar.
En þess má til gamans geta að á síðasta ári kveiktum við í heilli blokk til þess að smala nú saman nágrönnunum og halda almennilegt partý.
Án gríns þá er einhver brennuvargur hérna í blokkinni fyrir aftan. Alltaf allt í björtu báli þarna.
En stuð var það, hitti Höbbu nágranna minn og svona ýmislegt, allir með öl að horfa á bílana brenna.
Mæli með þessu, fá sér einn brennuvarg í hverfið og þið munið öll sameinast og verða bestu vinir.

























































5.5.06

X-Sigmarsdóttir


Ég er að hugsa um að kjósa sjálfa mig í kosningunum sem fara munu fram eftir 22 daga.
Bara X-Sigmarsdóttir, eða eitthvað álíka töff.
Reyndar var ég farin að þjást af mjög alvarlegum valkvíða, því ég vissi/veit ekkert hvaða pakk maður á að kjósa. Maður getur ekki einu sinni kosið eftir því hver er sætastur, því að allir svona kallar eru ljótir, allavega ekki minn tebolli. Nema kannski GMB, hann er nú alveg killer dúllurass.
Var líka að hugsa um að fara í heimsókn á kosningaskrifstofurnar og fá mér pulsu (pylsu, whatever) og helíumblöðrur - Sjá svo bara hvaða pulsa,pylsa væri best og kjósa eftir því. Fannst það dáldið sniðug lausn. Var mjög hamingjusöm þegar að ég ákvað að bera þetta undir Guðmund, stóra frænda minn, hann sagði mér að ég væri virkilega mikið Þvaghænsni að halda það að ég ætti að kjósa. Ég var alveg gáttuð á þessu og spurði hann hvað í ósköpunum væri nú að þessari hugmynd. Hann sagði að við sem værum með lögheimili erlendis myndum ekki kjósa.
Damn, þar fór það.
Valkvíðinn færist bara til næsta árs.
Þið hafið þá heilt ár til þess að sannfæra mig um það hvort ég eigi að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eins og fólk hefur gert í mínum ættum í hundrað ár, eða þá hvort ég eigi bara gefa skít í famelíuna og gerast kommúnisti.

eins og þið sjáið þá hef ég ekki hundsvit á þessu.

X-Sigmarsdóttir er farin að sofa í hausinn á sér

3.5.06

Ég fíla DillaDilla

Er búin að vera með þetta lag á heilanum alla helgina.
Gerði þau skemmtilegu "Mistök" að fjárfesta í Madagascar fyrir Sölku.
Æðisleg mynd, á ensku.
Glötuð á Íslensku.
Í lagi á sænsku.
Salka er búin að syngja hástöfum alla helgina "Ég fíla DillaDilla"
Man reyndar, þegar að ég sá þessa mynd úti í Ameríku með April, þá var ég með sama stefið "I like to move it, move it" á heilanum í 27 daga á eftir.



ÉG FÍLA DILLA DILLA!!!!!!

30.4.06

Sænskar Skólastelpur og Helgarpabbar

Get ekki sofið, bara alls ekki.
Lögleg afsökun, sem ég hef núna.
Var mjög þreytt eftir erfiðan dag og sofnaði yfir einhverri leiðinlegri mynd á Rúv, þar sem meðal annars var fertugt fólk að leika 18 ára menntaskólakrakka í sleik. Geðslegt. Svo þegar að þau voru ekki í sleik, þá dönsuðu þau ballett eða voru á ballettæfingum, held að þetta hafi verið ballettæfingar, leit samt út eins og kynlífsorgía, dáltið spes bíómynd til að sýna svona klukkan 20.00 á laugarsdagskvöldi. Enda sofnaði ég bara og svaf til 23.00
En núna er klukkan orðin 04.00 og ég get ekki sofið, af hverju? Jú, ég er að fara ótrúlega fínt á morgun, út að borða og allskonar og ég hef enga hugmynd í hverju ég á að fara. Af hverju er svona erfitt að ákveða í hvaða dressi maður á að fara? Ég er ekki búin að hugsa um þetta nema í svona viku og nú, 17 tímum fyrir dinner, hef ég ekki ennþá ákveðið í hvaða nærbuxum ég ætla.
Ætlaði að fara í Kringluna í dag, sem ég og gerði, eða svona má segja það allavega. Kom inn, heyrði ekkert nema sænsku, já, Kringlan troðin af sænskum skólastúlkum, í karrýgulum uppháum kuldaskóm með lopaleystana uppá hné og buxurnar girtar uppí handakrika.
Ég fór rúntinn sem ég tek alltaf í Kringlunni, 17-centrum-gs-Oasis-Retro-all saints og fleiri.
Kem inn, fórna höndum yfir öllum sænsku skólastúlkunum og yfirþyrmandi magninu af helgarpöbbum, hver með minnst 5 organdi krakka. Stappaði í mig stálinu og tróð mér í gegnum þvöguna. Var komin þar sem að Centrum á að vera, ætlaði að labba inn, en greip í tómt - "Hér opnar Kultur fyrir menn!"
Þrátt fyrir mikil vonbrigði sá ég ekki fram á það að geta gert neitt í málinu þannig að ég ákvað að kíkja inní 17. Mikið ofboðslega er sniðugt fyrirkomulagið þarna hjá þeim í NTC, "Ráðum bara fólk í vinnu sem er með greindarvísitölu á við gangstétt" Get svo svarið fyrir það, ég fann mér einn bol þarna, án þess að nokkur af þessum gangstéttarpíum horfði svo mikið sem í áttina til mín.
Svo var ég eitthvað að pæla í hvort hann væri til í öðrum lit, tók mig háltíma að ná sambandi við stelpurnar sem að stóðu allar í hnapp fyrir framan spegilinn og skoðuðu hvor aðra, voru eflaust allar að segja "ohh ég er svo feit" eða "Ohh, ég er svo hvít" (þarf varla að taka fram að þær voru allar vaxnar eins og ljósastaurar, með lappir sem náðu uppað eyrum og appelsínugular eins og Ásgeir Kolbeins í sólsetri)
Jæja, ég náði í skottið á einni þarna og spurði hana hvort hún ætti nokkuð þennan bol í hvítu. Hún leit á mig, svo bolinn og sagði svo þessi feikigáfulegu orð "Ég veit það ekki" svo snéri hún sér aftur að hinum gangstéttarstelpunum.
V-Æ-R-I-R-Ð-U TIL Í AÐ A-T-H-U-G-A?
Jú, haldiði að hún hafi ekki bara farið inná lager og tékkað á þessu fyrir mig, en ég lét mig bara hverfa, þar sem að ég fann að IQ-ið mitt var farið að lækka eftir því sem mínútunum leið þarna í þessari búllu.
Eftir þetta, var ég orðin svo pirruð að ég gat ekki meira af þessu Kringlu ævintýri mínu.
Keypti samt DVD, en fer samt ekki mikið í honum grand út að borða - Þó hann sé skemmtilegur.

Svona í lokin, ef að einhver vill koma til mín á morgun og mála mig, greiða og klæða, þá er það alveg guðvelkomið.
Í alvöru, ég er desperat eftir hjálp.
848-5313 - Plíííís

(P.S. Hef ekkert á móti helgarpöbbum eða Svíum.)

28.4.06

Hver á fallegasta barnið í heiminum?

Ég!
Kannski ekki alveg ein, en samt.
Þetta er Katla, orðin 5 vikna, ótrúlega stór og hlottust. (hlottust=flottust)
Alger töffari, fór með mömmu sinni í myndatöku í vikunni
og var með stílista sem valdi dressið og allt.
Töffaðasta barnið :)


















26.4.06

Kærastar

Geta verið óþolandi.
sérstaklega þegar að þeir eru ekki mans eigins.
Núna til dæmis þurfti ég að skemmta mér sjálf í kvöld því að allir eru að kærastast.
Svosem í lagi, ég eldaði og er búin að taka til og þrífa allt hátt og lágt.
Hefði ekki gerst annars, svo kærastar annara eru kannski ekki svo slæmir eftir allt.
Pabbi kíkti í heimsókn til mín hérna í gær, var búin að gleyma hvernig hann leit út, þannig að þegar að ég kom heim úr vinnunni í gær, þá sat bara einhver maður í sófanum mínum og drakk kaffi. Ég auðvitað hélt bara að þetta væri einhver bófi sem ætlaði að ræna allt - Þegar að hann væri búinn að drekka kaffið mitt og lesa blöðin mín.
En þá var þetta bara öldungurinn minn.
En við horfðum saman á leikinn, leikurinn var svo spennandi að ég sofnaði, vaknaði svo upp í hálfleik og ekkert var búið að gerast, þeir lufsuðust bara þarna um eins og skemmdar mandarínur, en þeim tókst samt að vera svo litlir og sætir.
Í morgun þá kvaddi ég svo SAMSKIP fyrir fullt og allt.
Fór og náði í skattkortið mitt og skilaði flíspeysunni góðu, þessari sem var jafn stór og tveggja manna kúlustjald, þið munið.
Kíkti líka á hvort að það væri ekki allt í lagi með drengina, þeir spjara sig ennþá, en greinilega sakna mín rosa mikið, enda enginn sem er þorir að rífa kjaft við þá lengur, eins og Birna sagði. Ætla nú samt að vera með annan fótinn niðurfrá og fylgjast með þeim, þessum elskum.

Jæja, það er löng helgi framundan, ég ætlaði að læra voða mikið um helgina og vonast til að geta staðið við það - allavega reynt að frumlesa efnið og svona.
Annars er planið að djamma og svo var mér boðið út að borða á Sunnudaginn, voða grand og svo verður eflaust djamm eftir það líka.
En ekki á Sólon, perradyravörður með brennandi áhuga á stjörnumerkjum ungra kvenna er ástæðan fyrir því að ég fer ekki þangað aftur.

Jæja, http://sigmarg.blogspot.com er farinn að blogga um nakta karlmenn, spurning um að vera í stíl og birta mynd af Ljungberg...


Ástæðan fyrir að ég held með Arsenal.

22.4.06

Fuglaflensa my ass!

...Fuglahræðusyndromið er miklu verra.
Ákvað að snooza dáldið oft í morgun, þannig á endanum var bara tími til að annað hvort mála sig eða fara í sturtu, ég valdi að fara í sturtu.
Mætti í vinnuna, með óblásið og ósléttað hár í einhverju afbrigði af hnút, í strigaskóm, gallabuxum og pólóbol, ómáluð og mér leið furðuvel.
Allt gekk eins og í sögu þangað til að það kom hádegismatur. Þá ákvað ég að ég væri ekkert svöng og fékk mér bara kaffi, en ákvað svo að ég væri svöng svo ég ákvað að skjótast inná kaffihús í Smáralind og fá mér örlítið að borða.
Good idea, Kristín Alma, Good idea.
Var búin að gleyma að ég var ekki vel til höfð eins og vanalega.
Þá byrjaði katastroffið.
Síminn hringdi rétt þegar að ég var að koma inn, og ég var í einhverjum æðibunugangi að drekka kaffi, hélt á einhverju dóti og var þvílíkt að rífast í símann og veitti veruleikanum litla athygli þegar að ég er í dyrunum á kaffihúsinu og BANG!
Labbaði í fangið á the cute dude.
Ég dó.
Er ekki búin að sjá hann lengi, en hugsaði nú til hans hérna í gær eða fyrradag.
God damn it hvað ég er stupid að halda að ég kæmist upp með það að fara út eins og fuglahræða.

Honum var samt ekkert svo brugðið, held ég, vona ég - Kvaddi hann svo bara, fyrir fullt og allt

20.4.06

Seltjarnarnes-Garðabær-Kópavogur

Tók þennan rúnt áðan.
Með háaldraðan, dauðhræddann föður minn í framsætinu og litlu börnin, Sindra og Sölku í aftursætinu.
Tók ekki nema 35 mínútur að fara frá Seltjarnarnesi og skötla börnunum heim til sín í Garðabæinn og svo fara heim í Kópavoginn - MORÐ
Komst að því að það er ekki gott að keyra, eða bara gera eitthvað "gáfulegt" yfir höfuð þegar að maður er nýkominn úr mat hjá afa og ömmu. Grill og meððí, Ís og meððí og kaffi og meððí. Get eiginlega ekki pikkað á lyklaborðið fyrir seddu.
Vonast nú til að vera komin með þetta bílpróf 8 maí, vegna þess að þá fer öldungurinn til Aþenu með Silvíu og ég get fengið bílinn - right.
Annars er allt fínt að frétta, fékk reyndar ekki mikil viðbrögð útá þessa kattaauglýsingu, skil það ekki, þetta er eðalgripur.
5 mánaða læða, heitir ekki Ronja og er voðalega blíð og góð. Svakaleg kelirófa og er svona people person, greyið.
Megið koma heim til mín og skoða hana ef þið viljið, bara láta vita áður. (Ég er ekki í skránni, held ég)
Jæja, best að fara að skila myndunum sem ég tók fyrir svona ári síðan, og borga skuld.