30.10.07

Beibíkeiks

Einu sinni var Salka systir bara lítil og eins árs.





27.10.07

Föðursystir

Ég þurfti aðeins að læsa síðunni í gær, því það var ein "dama" með drama, hótanir og leiðindi. Manneskjan virðist vera farin að ná andanum núna, þannig að það hlýtur að vera í lagi að opna þessa búllu aftur.

Aðal fréttirnar eru nú samt þær að Hjalli stóri bróðir minn varð pabbi í nótt! Hann og Inga eignuðust lítinn dreng klukkan 5 í nótt. Veit ekki nákvæmlega hvað hann er stór, en orðin feitur og pattaralegur voru notuð til að lýsa barninu og svona miða við 3-D myndirnar þá erum við að tala um stóran og stæðilegan strák :) Enda Íslenskur.

Til Hamingju elsku Hjalli og Inga!!

25.10.07

Jæja, út með það!

Hver ykkar er ólétt?

Ég er svo samólétt einhverjum að það er ekki fyndið. Síðustu daga hefur mér verið svo óglatt á kvöldin að það hálfa væri bara fínt. Kvöldógleði sko. Svo þess á milli er bara tvennt sem mig langar að borða. Það er tómatsnakk og kók.
Ég er samt ekki ólétt. Skal lofa ykkur því!

23.10.07

Tiltekt

Ég ákvað að byrja á því að taka til á þessari blessuðu síðu hérna. Heimskulegt. Nú get ég ekki hætt. Er að fara í gegnum allar færslurnar, myndirnar og allt sem ég hef póstað hingað inn síðust a3 og hálfa árið. Ógeðslega fyndið að fara í gegnum þetta, rifjast ýmislegt upp :)
En ég er líka að fara í gegnum linkasafnið góða og ætla að henda út og bæta við. Þannig að ef einhverjum finnst að hann eigi skilið link hérna til hliðar þá getur sá hinn sami bara látið mig vita í kommentakerfinu og við kippum því í liðinn.



22.10.07

HA HA HA HA!!

Vá maður. Var að muna eftir því hvað ég var einu sinni með feitt frekjuskarð.
Fór í kjölfarið að skoða myndir frá því í Garðaskóla. Djísús hvað maður VAR ungur og vitlaus.

Langar á snjóbretti. Hver ætlar að koma með í brettaferð?

Hmm, held að þessi færsla meiki ekki rass sens, en það er líka mið nótt.


20.10.07

Birr

Sjitt hvað er kalt. Komið niður í 5 gráður og það er nánast ekki líft hérna. Legg ekki í veturinn, er flutt til Hawaii. Eða farin undir sæng, annað hvort.

18.10.07

Ba-ba

Brekamamma og pabbi komu heim frá Póllandi í gærkvöldi. Litla skrímslið var reyndar sofnaður en hefur eflaust verið voðalega feginn að sjá þau í morgun þegar að hann vaknaði.

Annars er búið að vera voða gaman hjá okkur Breka á meðan foreldrarnir smökkuðu pólskan vodka (í lítravís) og strunsuðu útum allt í leit að postulíni og kristal. Við gerðum allskonar skemmtilegt saman, fórum á róló, í göngutúra, kíktum í bæinn, Bilka,gáfum öndunum í Bygholm park og eitthvað fleira. Hélt reyndar að við myndum ekki lifa af þessa ferð í bygholm, því þegar við mættum með brauð í poka þá komu endur að okkur úr öllum áttum. Ógeðslega krípí. Breki svaka sáttur með brauðsneið í hvorri hönd og hljóp inní andahópinn eins og ekkert væri og sagði BA-BA, BA-BA (Brabra brabra). Var svo voða hissa þegar að endurnar eltu hann útum allan garðinn, en var ekkert að deila brauðinu með þeim neitt.

En eins og ég segi, svaka gaman að vera með þennan litla gorm. Samt líka örugglega besta getnaðarvörn í heimi. En það er eiginlega bara útaf því að sama hversu dásamlegt barnið er þá er ekki stuð að vakna klukkan 6 á morgnana..! Þannig að það væri fínt ef fólk gæti leyft mér að passa fyrir sig svona eina helgi í mánuði næstu svona 5 og hálfa árið, amk. Helst börn sem vakna svona snemma og á nóttunni.

Eníveis þá var ég búin að segja að ég ætlaði að kenna barninu að tala á meðan hann væri hjá mér. Það tókst, ég fékk hann til að segja, Brabra, Banani, Súpa, hoppa og VEIII!! Fékkst reyndar bara til að segja þetta svona þrisvar, en það er allavega byrjun. Heyrði í Bjarna áðan og hann sagði að Breki væri búinn að vera að segja VEIII við þau, þannig að þetta hefur skilað árangri.



Breki týndur..í gólfmottunni :/



Þarna var hann! (uppáhalds leikurinn okkar sko)


Með rottuna Preben á hausnum



Alveg að fara að lúlla


Bumbus litli

14.10.07

Hver er Alli?

Ég/við fór/um í útilegu á Snæfellsnesið helgina eftir Verslunarmannahelgina. Þar var fullt af fólki. Man samt ekki eftir að við höfum tekið með okkur fólk frá Sólheimum. Sá það fyrst þegar ég skoðaði myndirnar sem annar hvor Grundó bróðirinn tók.


Þetta eru nú samt bara myndir af okkur Villa bróðir í annarlegu ástandi. Ég í svefngalsakasti dauðans og fékk næstum því heilablóðfall úr hlátri meðan á þessum myndatökum stóð. Ég er heldur ekki full þarna, lööööngu runnið af mér, enda er þetta klukkan 6 um morgun þegar fólk var í keppni um hver gæti vakað lengst. Eitthvað útaf því að einn vinur minn fór svolítið snemma að "passa tjöldin*" þegar við vorum í Eyjum. Það átti víst ekki að gerast þarna og gerðist ekki.












Þessi brjálaða tungumynd af Villa fær að fylgja með, því hann er svo mikil dúlla!!


Og þessi af Stjána. Ég lít svo upp til hans. Samt bara því hann er hærri en ég..


Og þessi ferska af Svanhvíti og Jóni Pétri.


Þá eru komnar myndir af okkur öllum fulltrúum (Eyja)gengisins í þessari útilegu (langsótt) í þessa færslu.

Djöfull erum við eitthvað prófessjónal útilegufólk.

Það er bara eitt að segja.

Ég sakna þín síðasta sumar!





*Passa tjöldin þýðir að fara að sofa. Enda voru tjöldin ekki pössuð nógu vel. Allavega ekki tjaldið hans Pers :)

13.10.07

Vetrarfrí og Brekapass

Vetrarfríið byrjað. Voðalega dejligt að fá smá frí. Held samt að ég þurfi að fá mér frí til að jafna mig eftir fríið þar sem að ég ætla að flytja á Fjordsgade 20 snemma í fyrramálið og dveljast þar fram á miðvikudag. Verð sumsé að passa Breka Dreka meðan foreldrar hans, móðir mín, Íris og Garðar, Einar og Villi fara í "kúltúr" ferð til Póllands. Þar sem að við Breki erum yngst í þessari famelíu fáum við ekki að fara með. En við ætlum nú bara að hafa það kósý og ætla ég að spilla barninu gjörsamlega eins og enginn sé morgundagurinn. Allan tíman. Kannski að ég kenni honum að tala og svona á meðan. Verður bara gaman að vera með þennan litla strump.

Annars er allt við það sama bara. Ég er reyndar að flagna. Ég er eins og slanga í miðjum hamskiptum. Kannski er ég bara að stækka svona mikið, hver veit. Held nú annars að ég sé öfugsnúnasta manneskja sem til er. Maður flagnar ekki í oktober, nema maður búi á miðbaug.


Ég og Breki í afmælinu hans í vor


Gormur


Töffari

10.10.07

Dísess. Ég var að lesa moggan í rólegheitunum í morgun, reyna að gíra mig upp fyrir verkefni dagsins, en samt að kúpla mig niður eftir að hafa farið í ræktina fyrir allar aldir og tekið work out dauðans með mömmu.
Fékk svona líka nett í pirrurnar. Meðal annars útaf þessari frétt:

Karlmaður var fluttur á slysadeild með stungusár í nótt, skömmu eftir miðnætti, með stungusár á baki eftir að kona stakk hann með skærum í íbúð í Vesturborginni. Maðurinn flýði til nágranna og hringdi sjálfur eftir aðstoð, hann var fluttur á slysadeild en er ekki talinn hættulega slasaður. Konan sem grunuð er um verknaðinn gistir fangageymslu og verður yfirheyrð síðar í dag.

Sko ég veit alveg að það sem ég skrifa inná þessa blessuðu bloggsíðu mína er ekki alltaf málfræðilega rétt, enda hefur málfræði og stafsetning ekki beint verið mitt sterkasta fag. En kommon. Flýði? Og róleg að segja átta sinnum í sömu setningunni að maðurinn hafi verið fluttur á slysadeild með stungusár.

Svo þetta:

Það færist í vöxt að Danir fljúgi til og frá vinnu og segir Berlingske Tidende frá því í dag að á stöðum þar sem skattar er lágir, t.a.m. í Álaborg og Hjørring hafi flugferðir innanlands aukist mikið. Á eynni Borgundarhólmi fljúga nú 300 íbúar daglega til vinnu með áætlunarflugi á hverjum degi, en flug fram og til baka til Kaupmannahafnar kostar um 600-700 danskar krónur, eða um 7000 - 8000 íslenskar.

Hvar í fjandanum er þessi Borgundarhólmur?

**Uppfært**
Mér var svo niðri fyrir að lesa þetta að ég gleymdi að koma því að að þeir fljúga daglega til vinnu á hverjum degi. Ég er hætt að treysta fjölmiðlum.

Fékk nett í pirrurnar við að lesa þetta. Get ég ekki fengið vinnu hjá mogganum bara?

8.10.07

Ofvirkir tárakirtlar

Er hægt að deyja úr heimþrá? Held að ég sé á góðri leið í gröfina, verð það allavega með þessu áframhaldi.

Trúi ekki að það séu tveir og hálfur mánuður þangað til að ég fer næst til Íslands. Finnst það alveg hræðilegt. Langar svo að komast heim og knúsast í litlu skrímslunum mínum. Katlan er farin að tala svo ótrúlega mikið og Salkan orðin svo stór og þroskuð. Og ég er að missa af þessu öllu.

Pleh, hvað er erfitt að búa í útlöndunum. Glötuð stóra systir alveg.

Kannski ég ætti að koma heim næstu helgi..




7.10.07

Myspace

Nú hefur fólk enga afsökun fyrir að vera ekki með myspace. Meira að segja mamma er komin á myspace. Núna er ég sem sagt með báðar mæður mínar í efsta sæti á vinalistanum mínum. Kynmóðirin og móðir mín í föðurætt.

Svaka sætt :)

5.10.07

Blogg fyrir mömmu



RÍÐA


Nú er mamma brjáluð og ég orðin dóttir hans pabba. Það má ekki segja ríða nefninlega.

Titillinn á þessu bloggi hljómar eins og lag með Bubba. Blús fyrir Rikka - Blogg fyrir mömmu.. :)

2.10.07

Síðbúin vorhreingerning á Kollegíinu..

Jee.
Nú getur mamma komið í heimsókn. Búin að eyða heilum degi í að taka til hjá mér og þrífa. Á bara eftir að fara í gegnum fataskápinn, kommóðuna og svo eldhússkápana. Þá er ég bara búin að taka allt í gegn. Ekki slæmt það. Mamma verður að koma í heimsókn á morgun, því hún droppar alltaf við óboðin þegar að það er allt í drasli. (Nei, það er ekki alltaf drasl hérna)
Svo reyndar þegar tiltektinni lauk þá var orðið svo hreint og fínt að ég tímdi ekki að vera hérna. Þá lét ég bara bjóða mér í heimsókn. Ekki flókið það. Ég ætla bara að vera einhversstaðar í heimsókn þangað til alltaf. Svo það draslist ekki út. Vill mig einhver?

Ég er svo orðin afrekskona í íþróttum. Jájá, fór í gær og keypti mér kort í ræktina. Sem ég er búin að ætla gera í 2 mánuði (Þjáist sko af framkvæmdarkvíða). Mér finnst þetta með að ég hafi keypt helvítis kortið nógu mikið afrek útaf fyrir sig, en það að ég hafi mætt Í ræktina eldsnemma í morgun, tólf tímum eftir að ég var búin að fjárfesta í kortinu er náttúrulega eitthvað sem má alveg skrifa á spjöld sögunar bara. Já og ég mætti ekki bara, heldur tók ég líka svona helvíti fínt á því líka. Allavega er ég komin með nettar "hassberrur" í efri hluta líkamans. Kvíði fyrir því að þurfa að þvo á mér hárið þegar ég fer í sturtu í fyrramálið. Ég labba líka eins og Arnar Grant. Með hendurnar svona tvo metra frá líkamanum. Ég er náttúrulega orðin svo helmössuð eftir þessar lyftingar.

Mömmu og Gúmmípabba fannst greinilega ekkert varið í Björn Borg nærbuxurnar sem við systkinin gáfum þeim í brúðkaupsafmælisgjöf og ákváðu að kaupa sér eitthvað smotterí í viðbót. Þau fóru í bæinn og komu heim nokkrum milljónum fátækari og einu húsi ríkari. Ég bjóst við svona einhverju smá húsi en sú var nú ekki aldeilis raunin. Þetta er heill helvítis herragarður. Sérherbergi fyrir alla krakkana og samt gestaherbergi. Svo er líka gestahús, sem er þrisvar sinnum stærra en "slotið" sem ég bý í. Lóðin er svo stór að við systkinin (sem erum 5 talsins) getum öll byggt okkur 500 fermetra hús þar og samt þurft að taka strætó á milli húsa.
Svo er þetta víst með frönsku gluggunum, stóra eldhúsinu og rúmgóða þvottahúsinu sem mömmu hefur alltaf dreymt um þannig að við kvörtum ekki mikið undan þessu. Frábært bara. Reyndar er ég ekki sátt við þetta því að núna verður ekkert skroppið í mat til mömmu bara þegar að manni dettur í hug. Þetta hús er nefninlega ekki í göngufæri :( En miða við lýsingarnar hennar mömmu á hversu frábært þvottahúsið þarna er, þá sé ég fram á að þurfa ekki að þvo fötin mín sjálf frá og með 1. desember, því hún talaði um það áðan að þvottahúsið væri svo frábært að hún ætlaði alltaf að vera þar...

Herragarðurinn

Enn af húsakaupum, því amma og afi keyptu sér líka hús um daginn. Á Selfossi. Nauðsynlegt að eiga tvö hús. Það hef ég alltaf sagt. Reyndar er víst stefnan hjá þeim að flytja á Selfoss þegar afi verður elliær og hættir að vinna. Þá ætlar gamli bara að skella sér í strípur og fá sér spoiler með hnökkunum. Geggjað töff.

1.10.07

Af MSN

Eftirfarandi átti sér stað á msn í dag.

Kristín Alma says:

ég er allavega búin að frekja þetta í gegn

Kristín Alma says:

núna er bara að fá að vita hvenær ég má byrja

Stjáni says:

ok gott mál

Stjáni says:

þú ert nagli ;)

Jebb, that's me. Ég er svo fokkíng hörð!!!

KlúðurSmúður

Jesús. Ég vaknaði ógeðslega illa í morgun. Sem mun líklega verða til þess að ég verð pirruð (meira en vanalega) fram að kvöldmat.
Mig var að dreyma svo ótrúlega mikið í nótt. Það var alveg brjálað að gera hjá mér. Fyrst var ég búin að finna Madeleine McCann. Lifandi. Síðan var ég í einhverjum svakalegum bardaga og ég veit ekki hvað. Það var einmitt eftir bardagann sem ég vaknaði, alveg pikkföst í sængunum og alveg trítilóð. Datt næstum framúr og allt.
Jájá, maður má ekkert vera að því að sofa á nóttunni. Ég er bara í því að slást við ófreskjur og bjarga heiminum.

Gott að frétta samt. Skólamálin eru að öllum líkindum að bjargast. En það er bara útaf því að ég er svo drullugóð í að röfla, tuða og grenja. Ok, ég er kannski pínu frek líka. Ég hef sko þurft að hafa fyrir þessu, og það ekkert smá. En vonandi er þetta komið í lag núna samt.

Svona í kjölfarið af þessum fréttum er kannski rétt að nefna það að ég var kosin í sem meðstjórnandi Íslendingafélagsins hérna í Horsens. Ákvað að taka þessari áskorun fráfarandi formanns eftir að ég kom þessu í gegn í skólanum. Hlýt að hafa svona gífurlega stjórnunarhæfileika bara.
Segi svona. Þetta verður gaman og fer á CV-ið :)

Hömmhömm. Afmæliskveðjur: Svanhvítin mín og Sindri kokteilbróðir minn áttu afmæli á föstudaginn og óska ég þeim til hamingju með það.
Lindan mín á afmæli í dag og fær knús með póstinum. :)
Mamma og Gúmmípabbi áttu svo tólf ára brúðkaupsafmæli í gær. Þau ættu samt eiginlega bara að fá fálkaorðuna eða eitthvað fyrir að þola okkur systkinin í þennan tíma...

27.9.07

Svo sniðugt




Við Arna að taka sjálfsmynd og Villi að taka mynd af okkur. Gaman að því. Þetta er reyndar ekki alveg beint bestu myndirnar sem hafa verið teknar af okkur, en skítt með það.
Hálftíma eftir þetta þá vorum við rennandi blautar á froðudiskó.. good times.

26.9.07

Greyið konan!

Þetta er ótrúlegt. Pannt ekki fæða svona stórt barn. Og heldur ekki svona mörg, ef útí það er farið..!

25.9.07

Ahh já!

Sælutilfinningin sem fór um kroppinn núna!!

Tölvan mín tók sig til og afneitaði MSN í morgun. Harðneitaði að skrá mig inn og var meira að segja með stæla við Web MSN-ið. Ég gafst upp á þessu öllu saman um hádegi og var MSN laus þangað til núna rétt áðan. Skelfilegur dagur.

Svo kom þetta bara að sjálfu sér rétt áðan. Það var gott. Var farin að kvíða morgundeginum alveg svakalega. Já, ég er fíkill.

HA HA HA HA!!

FiskarFiskar: Til að forðast það að brenna út í náinni framtíð, skaltu koma reglu á orkuna þína. Hvíldu þig vel og lengi, og segðu fólki að þú sért ekki latur bara klár.

Þetta er fyndið. Sérstaklega fyrir þá sem þekkja sófaskrímslið hana Kristínu Ölmu. Mikið OFBOÐSLEGA hlýt ég að vera klár...!!

24.9.07

Mánudagur

Af hverju er svona erfitt ad vera til á mánudogum?
Svaf orugglega ekki nogu mikid um helgina.. right.

22.9.07

Sjitt

Ég toppaði sjálfa mig núna.
Fattaði klukkan tólf að ég var ekki búin að borða neinn kvöldmat. Glooor hungruð æddi ég inní ísskáp og fann þar kalkúnabringu álegg og kassa af bjór.
Einum og hálfum tíma seinna hef ég komist að því að bjór er mjög svo saðsamur. Ég er ekki svöng lengur en á svolítið erfitt með að hitta á réttu takkana á lyklaborðinu og er orðin dofin í kinnunum.

Nú er bara tvennt í stöðunni. Detta í það eða fara heim að sofa. Eða reyndar bara sofa í mínu tilfelli þar sem ég er heima.

Held ég taki bara milliveginn á þetta og horfi á Stellu í orlofi á VHS. Æj, gleymdi samt að ég á ekki videotæki.

21.9.07

Pissss

Ohh ég var búin ad blogga gedveikt fyndid. En svo vildi skólanetid ekki birta thad. Enda var thad blogg myndskreytt med vægast sagt vafasomum myndum. Meira um thad seinna.

Ég er med fjorfisk í lærinu. Thad eitt og sér eru nú fréttir útaf fyrir sig, en thad sem mér finnst fréttnæmara er thad ad hann er búinn ad vera tharna sídan á midvikudagskvold. Og er enntha i horkufjori bara. Pirrandi.

19.9.07

Má ekkert vera að þessu..

Það er svo hræðilega mikið að ske á Íslandi frá og með helginni og þangað til í lok oktober að ég bara má ekkert vera að því að eiga heima í útlöndum. Væri svosem í lagi ef maður gæti bara farið heim um helgar, en skulum nú ekki fara að leggja það á vísað.
Vetrarfríið eftir minna en mánuð. Akkúrat í sömu viku og Airwaves. Langar svo mikið að koma heim í þessa 10 daga að ég er að deyja. Ég er að íhuga að senda meil á Icelandair og biðja þá um að gefa mér flugmiða. Í staðinn gæti ég til dæmis gengið um alla Airwaves hátíðina í Icelandairbol eða eitthvað. En ef ég hugsa útí það þá væri eiginlega ógeðslega fyndið ef ég myndi láta Express borga undir mig miðann og vera á Airwaves í Express bol. Það væri pínu fyndið.

Jæja það má alltaf láta sig dreyma.
FiskarFiskar: Hvern viltu þekkja? Sá sem þú hugsar um, laðast furðulega að þér. Þetta er líka ástæðan fyrir því að hugsa ekki um fólk sem maður vill forðast.

Boldsen verður kominn á tröppurnar hjá mér eftir korter.

Annars var ég að koma heim. Eins og blautur hundur. Rigndi akkúrat í þessar 3 mín sem ég var úti.
Nú væri gott að leggja sig aðeins :)

16.9.07

Sú sem aldrei sefur

Og við fáum punkta. Get ekki skrifað samfeldan texta. Samhæfing augna, heila og handa er eitthvað svolítið döpur þessa stundina.

  • Klakamótið búið
  • Karlarnir farnir heim til sín
  • Hrútalyktin að dofna
  • Fannst þetta löng helgi
  • Samt skemmtileg
  • Uppgötvaði áðan að helgin lengist svo um munar ef maður vakir á daginn og nóttunni
  • Svaf í 5 tíma um helgina
  • Ég sakna þín síðasta sumar
  • Horfði á fótbolta
  • Fór á edrú djamm á föstudaginn
  • Af djamminu og í næturgæsluna
  • Þar uppgötvaði ég Mohjong í tölvunni minni
  • Geggjaður leikur
  • Einn endajaxlinn minn er kominn upp
  • Niðri, hægra meginn
  • Hvar er tannféið mitt?
  • Það væri búið að dæma okkur báða úr leik
  • Fór kappklædd á völlinn á laugardaginn
  • Í íslenskum flísfatnaði frá toppi til táar
  • Til að tapa ekki kúlinu var ég nú samt með sólgleraugun
  • Í rokinu (og sólinni, dahh!)
  • Fór í fyndið partý
  • Absolute Bjarne aften
  • Fór á ekki svo mikið edrú djamm
  • Ball með Íslendingunum
  • ALLIR spaðölvaðir
  • Hef aldrei vitað annað eins
  • Ég var hress
  • Skömmuð fyrir að hafa verið dónaleg
  • Brynja veit að ég var bara hreinskilin :)
  • Mamma fór á veiðar á ballinu
  • Veiða tengdason
  • Fannst ég ekki að standa mig í þeim málum
  • Er slyddan kannski tárið í auganu á mér?
  • Mamma er ekki góð í að veiða sér tengdasyni
  • Flestir trúlofaðir
  • Næst fær pabbi að spreyta sig
  • Einar sagðist hafa þrifið allt með pompi og prakt
  • Okkur Villa fannst það ekkert lítið fyndið og trufluðumst úr hlátri
  • En fannst nú gott að Einar greyið hafi fengið hjálp
  • Pomp þreif klósettið og Prakt vaskaði upp :)
  • Ég gekk líka á eftir Einari og hafði vit fyrir Villa í leiðinni
  • Getið ímyndað ykkur hvað það var erfið ganga
  • Já, ótrúlegt hvað allt verður fyndið í svefngalsa
  • Ég komst líka nokkrum sinnum yfir þreytuna
  • Tónlistin var svört
  • Klukkan er margt
  • Væri skynsamlegt að fara að sofa
  • Það var matarboð heima hjá múttu áðan
  • Ógeðslega skemmtilegt fólk
  • Dýrka þetta pakk mitt - eru dásamleg
  • Ég og Breki fórum á trampólín
  • Við erum ótrúlega svipuð í þroska stundum
  • Fór í geðveikt partý á kollegíinu áðan
  • Lufsu partý
  • After Eight og Pepsí Max
  • Tapaði veðmáli
  • Ég er viss um að ef þú værir hér, þá myndi stytta upp
  • Þetta blogg er hrottalega leiðinlegt
  • Það eru allir hættir að lesa
  • Joachim Boldsen er svo ógeðslega drop fucking gordjöss að það hálfa væri fínt
  • Ég ætla að horfa á Vild med Dans í allan vetur útaf honum
  • Eins gott hann haldist inni
  • Hann er lélgur dansari samt
  • Svo innskeifur og hjólbeinóttur eitthvað
  • Fílaða
  • Ég er hætt
  • Mamma ætlar í ræktina klukkan 8
  • Ég gæti farið með
  • Gæti líka kúrt mér áfram bara til svona hálf tíu :)
  • Hvort haldiði að ég geri??
  • Svartir undir augunum fölir á kinn
Tak og på gensyn

Töff samt að blanda svona saman Nylon og Bubba inní færsluna..!

13.9.07

Svefn

Vaknaði klukkan sjö við það að það stóð einhver fyrir utan hjá mér og bankaði í hurðina af öllum lífs og sálarkröftum. Ég hélt að þetta væri Einar Páll eða Jón Pétur að gera svona líka fyndið grín að vekja mig fyrir allar aldir svo ég fór ekki til dyra. Grúfði hausinn bara undir koddann eins og pabbi gerir og reyndi að sofna. Þegar bankið hætti svo fór síminn að hringja. Ég nennti nú ekki að standa upp til að svara þessu og bölvaði hressilega og snéri mér útí horn. Síminn hélt áfram að hringja og bankið hélt einnig áfram. Þá fór ég nú að halda að þetta væri ekkert djók, heldur einhver að segja mér að mamma væri dáin eða eitthvað. Fór skíthrædd til dyra, nánast með tárin í augunum en samt tilbúin til að hreyta einhverjum ónotum í Einar Pál eða Jón Pétur, svona ef ske kynni að þetta væru þeir að gera grín.
Neinei, opna hurðina og hvað birtist þar. Engin önnur en hún Lára sem býr við hliðiná. Skælbrosandi og sagði "Hæ, má ég fá lánað hleðslutækið þitt?"
Pleh..!

Núna er ég ýkt þreytt og hef það á tilfinningunni að ég eigi eftir að sofa geðveikt vel. Vorum nefninlega að koma af barnum (Strákarnir að skipuleggja Klakann og ég varð að skipta mér af, auðvitað. ) og fengum okkur auðvitað svona eins og tvo bjóra.
Ótrúlegt samt. Ég er alltaf eitthvað að sniglast í kringum þessa stráka sem er að skipuleggja og er ekki komin í neitt djobb. Mér er greinilega ekki treyst fyrir neinu :)
En kannski er þetta því ég er bara búin að bjóðast til að smyrja hitakremi á þá og nudda fyrir leiki og svona..

11.9.07

Vó

Kom að því að nágranni minn fékk sér að ríða. Og það ekkert smá. Ég er bara feimin, enda er eins og þau séu bara hérna inná gafli hjá mér!!

Held ég verði bara að fá mér sígó þegar þau eru búin..!

Eitthvað mis

10.9.07

Dygtig pige

Ég opnaði ísskápinn hérna í morgun algjörlega hungurmorða og vonaðist eftir einhverju hollu og góðu til að fá sér svona í byrjun dags. Full bjartsýn. Það var ein coke zero dós og hálfur lítri af Matilda kókómjólk. Og jú, svona Aloe Vera aftersun dæmi eitthvað.

Svo ég át þurrt serjós í morgunmat og hafði coke zero með mér í skólann í nesti. Ætlaði svo bara í rema þegar að ég kæmi heim, en nennti því ekki þannig að ég át þurrt serjós fram til klukkan 19.00 í dag. Þá var ég alveg komin með ógeð af serjósinu og fór í búðina. Tvisvar. Gleymdi að kaupa djús og mjólk.. Ég þarf að fara með svona minnislista í búðina eins og gamla fólkið. Gleymi alltaf aðal atriðunum nefninlega.

Svo núna er ég á leið í þvottahúsið. Ætli ég verði ekki þar í allt kvöld, því þetta er ekkert lítið magn af þvotti sem flæðir hérna útum allt. Ég gæti samt alveg sleppt því að þvo í svona tíu daga í viðbót og samt verið alltaf í hreinum fötum. Bara ljótum hreinum fötum.

Annars var ég að taka til hérna uppí skáp hjá mér. Fann eitthvað sem heitir sólarvörn..hvað er það? Eitthvað sem maður setur á brauð??

Uhh já og ef einhver vill eiga hálfan líter af Matilda kókómjólk þá endilega kíkið við hérna í 306. Hún er köld og allt.
Ég er að hugsa um að mana mig upp í að fara í klippingu á eftir. Hjá danskri stelpu. Ég er hrædd. Danir eru hræðilega lélegir hárgreiðslumenn. En þegar maður er farin að lenda í sjálfheldu hvað eftir annað vegna lengd hársins þá held ég að maður verði að láta gera eitthvað við þetta.
Ég er orðin eins og Cousin Wig eða hvað hann hét þarna í Addams Family.





Svo er ég að hugsa um að taka til hérna hjá mér. Ég fékk eiginlega nettan viðbjóð eftir að ég skrifaði þessa ógeðis þrifa færslu...

Skírn

Litlasti frændinn minn var skírður í dag. Baldur Freyr. Við vissum nú reyndar nafnið, en samt sem áður vil ég senda hamingjuóskir á Stekkjarflötina.
Var ekki sátt við að vera í Danmörku og missa af fyrsta partý-inu hans Baldurs litla, en ég mæti bara í 1 árs afmælið á næsta ári :)



Flottir bræður. Tómas Orri og Baldur Freyr!

8.9.07

Ótrúlegt hvað maður getur komist lengi upp með að gera engin heimilisstörf.
Ég er alveg komin með þvílíka taktík í þessum efnum, þannig að það er alltaf eins og hjá fólki hérna en samt þríf ég mjööög sjaldan.

Hér koma nokkur heilræði - Njótið

  • Láta bjóða sér í mat sparar uppvask
  • Borða svo bara drykkjarjógúrt, drekka djús úr litlum fernum og gos úr dós
  • Til að spara ferðir í þvottahúsið þá kaupi ég mér bara ný föt
  • Það er reyndar svolítið dýrt
  • Sofa í svefnpoka - Þá þarf maður eiginlega ekki einu sinni lak
  • Fínt að taka með sér handklæði í sturtu af og til, henda svo bara á ofnin og þau eru sem ný næsta dag
  • Þegar rykhnoðrarnir eru orðnir mjög áberandi er fínt að hafa bara slökkt öll ljós og kveikja á kertum. Þá sést ekki að maður hafi ekki ryksugað síðan í maí
Ég kann fullt í viðbót ef þið viljið. Ég er að pæla í að fara að kenna kúrs í þessum efnum.
Það er samt ekki drasl hjá mér. Komið bara í heimsókn. Gæti samt verið að ég verði með slökkt öll ljós... ;)

6.9.07

Krafthelvede

Jájá, ég er svo þokkalega að massa þennan dag.
Byrjaði á því að sofa ekki neitt í nótt. Eða kannski dottaði ég í svona einn og hálfan tíma í mesta lagi. En það er mér að kenna. Ákvað nú samt að hendast fótgangandi í skólann. Ógreidd og ómáluð í jogging gallanum og adidas inniskónum. Algjört trash.
Tveir tímar af óskiljanlegri sölusálfræði. Carsten, umsjónarkennarinn minn sagði reyndar að ég hefði þetta í mér og mætti ekki pirrast svona hrottalega mikið ef að ég skildi ekki eitthvað. En núna er ég alveg búin að skilja hvernig á að feika verð og hvað er tilfinnginanæm vara og hvað er ótilfinninganæm vara. Dásemd.
Þriggja tíma eyða og ég fór EKKI heim að sofa.
Núna er svo komið að tvöföldum Private Økonomi. Fengum það skemmtilega verkefni að fara niðrí bæ og tala við einhvern lánagaur í einhverjum banka. Plehh.

Mig langar niðrí bæ og fá mér bjór á útikaffihúsi. Það er klikkað gott veður.
Hmm, ég er orðin geðvond. Var að uppgötva að ég er ekkert búin að éta í dag..

5.9.07

PappaRassi

Einhverjir bankastarfsmenn í strætó..




3.9.07

Stjörnurnar tala..

3.9.2007


Fiskar: Vissar upplifanir henta þér svo fullkomlega að þær gætu ekki verið ætlaðar öðrum. En passaðu þig á beitu ánægjunnar - hún er föst við öngul.

- Mig langar ekki að fá öngul í mig..!

4.9.2007

Fiskar: Reyndu að heilla almenning með þínum hámenntaða hugsanahætti. Þú heldur að þú hafir ekkert áhugavert um málið að segja, en það er alls ekki rétt. Byrjaðu bara að tala.

-Þetta er hillaríus. Ég er alltaf að tuða um að ég hafi ekkert að blogga um. Núna veit ég það að ég á bara að byrja að tala og hætta þessu tuði.


Pleeehhh hvað það er hræðilegur mánudagur í mér. Svaf næstum því yfir mig og allt. Samt átti ég að mæta klukkan 10.15 - Allir í skólanum svaka happy, með munnræpu og vilja endilega tala útí eitt um eitthvað sem mér er svooo alveg sama um. Það er ekki í lagi með fólk.
Nenni ekki í Private Økonomi. Þá þarf ég að hugsa OG berjast við að halda mér vakandi.
Langar í kaffi. Er ekki einhver sem nennir að fara á Starbucks og ná í einn latte? Bara svona svo að greyið stelpan við hliðiná mér missi ekki útlim..djöfull gæti ég bitið hana akkúrat núna. Leiðinleg gella.

2.9.07

Að gera ekkert

Djöfull er ég orðin ógeðslega góð í að gera ekkert. Ég sagði við einhvern hérna fyrir helgi að ég ætlaði ekki að gera neitt alla helgina. Ég vissi þó ekki að ég gæti tekið sjálfa mig svona alvarlega og gert bókstaflega ekkert heila helgi.

Reyndar var ég í Århus allan föstudaginn eftir skóla. En gerði ekkert af viti þar. Hékk í búðum, með iPodinn í eyrunum og drakk ótrúlega gott kaffi. Uppgötvaði reyndar að ég er mjög gráðug þegar kemur að kaffi. Ég er ennþá dofin í munninum eftir að hafa reynt að taka stóóóran sopa af latte-inu þegar það var nýkomið í bollann.

Ég er búin að vera svo mikil lufsa síðan ég kom til DK aftur að það hálfa væri ágætt. Til að mynda er ég búin að vera í joggingbuxum og hettupeysum síðan ég kom. Er búin að fara svona þrisvar í gallabuxur og tvisvar í pils á 3 vikum. Búin að vera ómáluð og mæta á inniskónum í skólann. Hvort sem er ekkert varið í þessa dani þannig að ég held nú að þetta sé í lagi.
Ég er komin með sjónvarpsdagskrána innprentaða inní hausinn á mér og svo þegar það er ekkert í sjónvarpinu þá horfi ég bara á Önnu Pihl eða einhverjar myndir. Viljiði pæla?
Spurning um að fara að stíga uppúr sófanum og fara að gera eitthvað.

Tölvubuff

Já það má sko með sanni segja að ég sé algjört tölvubuff. Ég er búin að gera froggie að upphafsíðu hjá mér. Þetta gerði ég ein og sjálf.

Síðan er ég búin að læra að setja svona mynd á desktopið hjá mér. Fyrst var ég með þessa líka fínu fínu mynd af Pabbanum (sem styrkti þessi tölvukaup um dáldið mörg prósent, eiginlega öll prósentin) og Sölkunni minni sætu. Takið eftir sólgleraugunum.


Núna er ég reyndar búin að vera með mynd af Per, mér og Svanhvíti sem ég tók á einhverjum kokteilbar í Århus síðustu helgi. Þetta var soldið seint um nóttina og við búin að sötra öl, mohito og G&T allt kvöldið. Meeen hvað við erum suddalega hörð!!


Þessi færsla er nýtt low. Trúi ekki að ég sé að blogga um desktopmyndirnar mínar.

30.8.07

Så er der kunder

Vá. Ég held að ég sé búin að blogga um allt. Allavega hef ég ekki haft neitt merkilegt að blogga um í viku eða eitthvað. Það kemur bara aldrei fyrir.
Ég er búin að horfa á Önnu Pihl seríu eitt - nú bíður bara sería tvö eftir að láta horfa á sig. Einhver sem á hana fyrir mig?

Eníveis þá er allt við það sama. Skólinn er að skríða í gang. Það bitnar á mér núna hvað ég var dugleg í fyrra. En ég tók stöðupróf í ensku þegar skólinn byrjaði í fyrra og þurfti bara að vera í einsku eina önn og þá var ég búin með hana. Síðan náði ég einhvernvegin að klóra mig í gegnum einhverja sálfræði og er búin með hana líka. Þannig að núna er ég með allskonar eyður í stundaskránni minni þriggja tíma eyða í dag, síðan á ég að mæta seinna suma daga og búin fyrr suma daga. Ég ætlaði að fá að klára þá bara námið á þessari önn með því að taka bara sjúkt marga tíma og vera þá í tímum frá 8-16 alla daga. En dönunum finnst það nú full mikið, ég má ekki taka nema 21 tíma á viku!! Sem er rugl. Ég held að ég sé með einhverja 17 tíma. Ætlaði þá að taka bara 4 spænskutíma á viku til að losna við þessar eyður og drasl. En það var ekki i boði. Það hefði verið svo mikið vesen að púsla því saman, því ég þyrfti þá líklega að vera með busunum í því og eitthvað crap. Blahh hvað ég er að verða geðveik á þessu. En á nú að fara á fund fljótlega með einhverjum "yfirmönnum" þarna uppí skóla til að greiða úr þessu.

Ég nenni þessu rugli ekki. Langar að sofa af mér þessi menntaskóla ár og vakna bara í háskólanámi. En það er nú ekki í boði. Ég lít á námið sem vinnu og ekkert rugl.

Hmmm, annars er ég búin að ver mjööög tussuleg í dag. Held að tennurnar á mér séu að springa útúr hausnum á mér útaf endajöxlunum sem eru að koma upp. Ég passa mig samt á að fara ekki til tannlæknis. Bætir reyndar ekki stöðuna að ég er svo kvefuð og allar holur stíflaðar þannig að mér líður eins og ég sé með þvingu á hausnum.
Kannski skildi þó aldrei vera að svefnleysi hefði eitthvað að gera með þetta?

29.8.07

Vissi þetta!

Ég er svo sjúk.
Það kom hingað ungur herramaður og hennti inn á tölvuna allri fyrstu seríu af Anna Pihl. Þetta var milli 00.00 - 01.00. Honum var svo nánast hennt út svo ég gæti farið að glápa. Núna er klukkan að slefa í 4 og ég búin með 3 þætti og langar hrottalega að kíkja aaaaðeins á næsta þátt. En ætla nú ekki að gera það. Hvílík sjálfstjórn sem ég hef.

Ég er skelfileg með þetta. Hver man ekki eftir því þegar Kristín Alma tók Grey's Anatomy session-ið hérna í vor. 3 seríur á einhverjum 10 dögum - þetta á ekki að vera hægt.

Skal veðja að eftir svona 35 tíma verð ég búin með seríuna. Get ekki hætt..

22.8.07

Enn af veðri

Vá hvað ég hlýt að vera að gera ykkur geðveik á að tala bara um veðrið.
Það er brjálað þrumuveður hérna og búið að vera í allt kvöld. Þegar eldingarnar koma lýsist allt upp hérna inni eins og ég sé með einhverja svakalega ljóskastara. Svo er að sjálfsögðu alveg kolvitlaus rigning líka. Ég þakka bara fyrir að vera uppá þriðju hæð núna, annars væri ég líklega drukknuð.
Annað fieldtrip með skólanum á morgun. Við erum að fara uppí Århus að skoða Handelshøjskolen þar. Svaka stuð. Förum á einhverja kynningu um hvaða framhaldsnám er í boði þarna, en eins og gefur að skilja er það Viðskiptafræði og þessháttar fög. Sem er reyndar alveg spennandi. Þó að ég ætli ekki í framhaldsnám í Danmörku. Allavega ekki eins og planið er núna. (Það heitir kannski ekki framhaldsnám á Ísl?)
Allavega, ég ætla svo að láta skilja mig eftir í Århus því að Svanhvít er einmitt í Danmörku núna og við ætlum að hittast og kaffihúsast aðeins og hugga okkur að hætti innfæddra ;)
Á föstudag er svo planið að kíkja aftur uppí Århus og þá á að djamma. Ætlum við að hitta Per Poulsen (sem var með okkur á Þjóðhátíð) og taka púlsinn á næturlífinu þarna uppfrá. Verður örugglega mikið grín og mikið gaman.
Á laugardaginn er svo háskólafólkið mitt væntanlegt til baka frá Íslandi. Skilst að það eigi að halda uppá það með tjútti. Middelalderfestival hérna í Horsens og ýmislegt að ske. Hver veit nema maður skelli sér bara á Crazy Daisy, enda ekki farið þangað síðan kvöldið sem við Íris fórum á hælaskóm á varðeld...good times :)

P.S. Nú þori ég ekki að fara í sjónmælingu. Ég er svo hrædd um að ég þurfi gleraugu. Hræðilett.
Það sem af er þessari önn hef ég ekki kíkt neitt á Perez félaga minn. En ég er búin að lesa rekstrarhagfræði tvisvar.
Eitthvað öfugsnúið dæmi. Ég hef nefninlega átt það til, einstaka sinnum að fara á einhverjar svona sniðugar síður þegar að ég á að vera að læra.
Nú get ég ekki lært neitt í tvær vikur því að það er svo mikið búið að ske á Perez síðan ég kíkti síðast.

Ég held annars að ég þurfi gleraugu - Hvert fer maður í sjónmælingu?

21.8.07

Síðan skein sól

Hvar er sólin?
Það er ekki búið að vera einn sólardagur síðan ég kom út. Hvað er málið með það?
Ég sem var orðin ógeðslega brún í apríl og maí, en núna er ég eins og ég hafi verið lokuð inni í 5 mánuði. Hvítari en krít.
Núna er einhver crazy ass rigning og mér sýnist á öllu að það sé ekkert að fara að stytta upp, frekar að það sé að koma þrumuveður.
Vanalega finnst mér bara kósý í svona veðrum. Hanga uppí sófa með bók og teppi. En þegar að það er búið að vera svona veður stanslaust í 10 daga þá er það orðið boring og maður búin að lesa allar bækurnar sem maður á.

Dásemd.
Skulda engum pening. Fór 5 km og var viðræðuhæf í dag. Eftir að ég hafði tekið hádegislúrinn.
Ætla samt ekki í fyrramálið aftur. Það var svo erfitt að vakna.

Ég má ekki vera að því að blogga. Ég er að skoða háskólanám í háskóla í henni Ameríku. Ógeðslega spennandi. Langar út ekki seinna en í gær :)

19.8.07

Happy feet

Ef ég fer EKKI út að hlaupa í fyrramálið klukkan 05.45 þá gef ég ykkur öllum 1000 kr. Öllum.
Það er samt bannað að koma heim til mín og afstilla vekjaraklukkuna.

Mjög sniðugt að segja þetta. Nú verð ég að fara út að hlaupa því að ég á ekki 350.000kr sem ég má missa :)

Ég hef líka heyrt að maður verði glaður ef maður hreyfir sig. Ég verð þá kannski jákvæð á morgun.

Edderkoppegrisebassemand...

Mig langar að fara á Simpsons myndina á dönsku bara til að heyra Spiderpig atriðið. Því spiderpig er sagt; Edderkoppegrisebassemand á dönsku. Það er fyndið.


Edderkoppegrisebassemand

18.8.07

Næturblogg

Ég get ekki sofið. Ég var að horfa á Harry Potter í sleik. Ég get svarið fyrir það, ég hefði frekar viljað horfa á mömmu og pabba í sleik heldur en þetta. Vandræðalegt. Ef hann fær sér að ríða í næstu mynd ætla ég ekki að sjá hana. (Er sko ekki búin að lesa bók nr 6)

Ég er ógeðslega bitur útí Danmörku þessa dagana. Mjög slæmt þar sem ég bý víst hérna. Danskt nammi er ógeð, danskur matur er viðbjóður, dönsk hús eru asnaleg, danskt skólakerfi er útí hött, ætla ekki einu sinni að ræða tungumálið og veðrið er fáránlegt. Síðan ég kom er búið að vera GRENJANDI rigning eina mínútuna og svo alveg GLAMPANDI sól hina mínútuna. Svona skiptist þetta á ALLAN daginn. Þreytandi.
Þetta lagast samt, ég vildi bara fá að vera aðeins lengur á Íslandi. Ég var eins og ég væri á leið í aftöku þegar ég var að fara í skólann í síðustu viku. Kannski ekki skrítið því að við erum bara búin að vera í einhverjum leikskóla leikjum alla vikuna. Bygholm Park í ratleik og svo kíktum við í Danish Crown - eitt stærsta sláturhús í Evrópu og sáum hvernig grísir eru slátraðir svo við getum nú fengið flæskesteg.

Hvað get ég sagt ykkur fleira neikvætt?

Ég er að taka endajaxla - ENNÞÁ! Er með verk frá góm uppí kinnbein og þaðan uppí eyru. Ég er öll alveg stökk bólgin í kjaftinum og er að fatta það núna að það er örugglega þess vegna sem ég er svona hrottalega bitur og geðvond. Ætti kannski að finna mér tannlækni..
Ég þarf að fara í klippingu. Hvert sinn sem ég geri tilraun til þess að vera með slegið hár, þá fæ ég köfnunartilfinningu, án gríns. Of mikið hár, ég er komin með hár lengst niður á bak og er ekki að nenna svona síðháraleik - sérstaklega ekki þar sem sléttujárnið mitt er á Íslandi og hárblásarinn död. Svo ég er skiljanlega með crazy hair.

Hugs hugs hugs.

Klukkan er orðin alltof margt. Ég þarf að vakna með barnið í fyrramálið. Hann heppinn að fá að eyða morgninum með ósofinni systur sinni. Þeir skilja það sem hafa lennt í að þurfa að vera í 5km radíus við mig fyrir hádegi :)

17.8.07

Andskotinn

Fiskar: Samkomur sem þú skipuleggur nú takast mjög vel. Þú gætir fengið vinnu út á það. Í kvöld er sá sem þú ert að hugsa um, líka að hugsa um þig. Hringdu.

Ohh, ég man ekkert um hvern ég var að hugsa í kvöld. Enda búin að horfa á 3 chick flick myndir með unglingi B.
En svona vegna þess að ég klikkaði, er sá sem var að hugsa um mig í kvöld til í að hringja bara? Ég er svo forvitin.

(+45) 20 95 46 55

Damn. Klukkan orðin 02.00 - Ég á aldrei eftir að vakna í þennan djöfuls spinning tíma sem ég ætlaði í í fyrramálið.

16.8.07

Nokkrir góðir dagar án..Mömmu

Jæja, þá er maður fluttur aftur heim. Reyndar bara yfir helgina því ég er með unglingana í minni umsjá meðan kynmóðir okkar er í saumaklúbbaferð í Amsterdam. Ekkert djamm fyrir mig um helgina. Bara gera eitthvað sem húsmæður gera.
Ég er alveg komin með to do lista og allt.
  • Ryksuga
  • Viðra hundinn
  • Þrífa skjaldbökubúrið - hefur víst ekki verið gert síðan í maí að mér skilst
  • Þvo þvott
  • Þrífa heima hjá mér
  • Fara í genbrug
  • Gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með unglingunum
Spennandi helgi frammundan eins og þið sjáið. En hvað gerir maður ekki fyrir yfirvaldið.

Ég hefði kannski átt að hafa hærra um það að ég eldi ekki. Tók mig til í gær og eldaði þessa líka dýrindis máltíð fyrir okkur systur. Hafði einfaldlega ekki í mér að bjóða unglingnum (Unglingur B er í næturgistingu) uppá serjós í kvöldmatinn. Þannig að það var skundað útí Rema 1000 og keypt kjúlla og eitthvað sem ég gat hugsað mér að malla með. Þegar heim var komið var þetta steikt, sullað í eldfast mót og hálftíma seinna var komin þessi líka dýrindis réttur. Maður er ekki lengi að hrissta kræsingarnar fram úr erminni þegar maður tekur sig til. Ónei.
Mamma heldur að ég hugsi ekki nógu vel um systkini mín þegar að ég er með þau svona í nokkra daga í einu. Þess vegna tók ég video og myndir til þess að sanna að ég leggji mig virkilega fram í að vera góð við þau greyin.
Ég kann ekki að setja myndbönd á netið þannig að myndirnar verða að duga.


Kveikt á kertinu góða


Að fá sér


Afvelta


Fróði vildi ólmur smakka

Annars vil ég bæta því við að Móðir mín í föðurætt á afmæli og vil ég nýta tækifærið og senda henni hamingjuóskir í tilefni dagsins. Orðin heilum 9 árum eldri en ég. Geri aðrir betur.
Hún ákvað að svara ekki símum í tilefni dagsins, eða allavega ekki svara mér svo kveðjan er netvæn í ár.


Pabbi og afmæliskonan

14.8.07

Íslensk Kjötsúpa

Myndi gefa annan handlegginn ef ekki meira fyrir venjulegan heimilismat núna. Ég held svei mér þá að ég hafi ekki fengið almennilega eldaða máltíð í meira en mánuð. Svona ef maður telur ekki sveittu borgarana og fýlu pullurnar sem var étið í Eyjum með. Enda var það nú ekki matur fyrir 5 aura.
Mér dettur samt ekki til hugar að elda mér eitthvað. Frekar held ég áfram að éta túnfisk í dós og Cheerios-ið sem ég hafði mikið fyrir að taka með frá Íslandi. Get líka alveg hætt að tuða. Allur veturinn framundan á þessu mataræði, svo það er bara eins gott að maður fari að venjast þessu.

Annars langar mig að vita eitt. Af hverju þurfa fartölvur að vera svona marglitar alltaf. Ég þoli það ekki. Aldrei hægt að fá alveg svartar tölvur, verður allt að vera með gráu lyklaborði, hvítum ramma og einhverjum krúsídúllum.
Annað, er ekki hægt að fá töff fartölvutöskur? Allar ljótar, eða bara svona venjulegar. Mig til dæmis langar ekki í svarta venjulega. Var búin að finna eina frá Samsonite, en hún er auðvitað uppseld núna. Blehh

Geng í málið á morgun. Ætli ég endi ekki bara með skræpótta tölvu og svarta tösku..

13.8.07

Hver er Alli?

Það hefur nú ýmislegt á daga mína drifið síðan ég fékk hugmyndina hér að neðan. Ég er til að mynda hætt að vinna í Samskip. Það var alveg hrottalega fínt að ganga þaðan út í síðasta skipti. Enda er þetta búið að vera mitt annað heimili í sumar og ég komin með snert af ógeði.
Á föstudaginn skellti ég mér svo í útilegu á Snæfellsnes með Svanhvíti, Stjána, JP, VP, Ásdísi systur þeirra og famelíu. Og reyndar einhverju öðru fólki líka. En við vorum samt svo ógeðslega hress að við þurftum ekkert á öðru fólki að halda.
Ég var reyndar löngu búin að ákveða að vera bara heima með Pabba gamla á föstudaginn, en síðan ákvað ég að láta undan hópþrýstingi og kíkja með. Þetta var eiginlega þannig að Svanhvít bara ruddist inn heima hjá mér, tók undir handlegginn á mér, bar mig útí Prinsinn og brunaði af stað. Ok, kannski ekki alveg, en þetta hefði getað verið þannig.
Eníveis það var mjög gaman í þessu litla roadtrippi okkar og skemmtilegt að fara svona í útilegu líka. Varðeldur, Gítar, hefði verið nikka líka ef einhver hefði ekki beilað, áfengi, skemmtilegt fólk og frábært veður.
Brunað í bæinn um hádegi á laugardag til þess að geta eytt deginum með fjölskyldunni. Á gaypride.
Það var reyndar helvíti fínt. Katla kippti sér ekkert upp við þetta, en sölku fannst þessi ganga æði. Einhverra hluta vegna hélt hún að þetta væri Skátaskrúðganga og skátafánar og skátalög. Síðan fórum við að reyna að útskýra þetta fyrir henni að þetta væri gaypride gangan og jaríjarí. En hún nennti ekkert að hlusta á það. Bara hélt áfram að horfa á skátana og drotninguna..krúttrassgat þetta barn.
Pabbi fór svo með okkur Sölku á Fridays í Smáralind þar sem mér tókst að hrynja á rassgatið fyrir framan staffið þar. Þeim til gleði og yndisauka. Mér fannst þetta takmarkað fyndið og fékk marblett.
Þetta kvöld var svo allt mjög hræðilegt. Dó næstum úr sjálfsvorkun þegar að ég var að pakka. Svo að kveðja alla. Það var viðbjóður og grenjaði ég alveg hellings þá.
Síðan var haldið útá flugvöll og hangið þar í því gleðilandi til kl.01.00 þá fórum við í loftið. Ætlaði aldeilis að sofa, enda sama og ekki neitt sofið nóttina áður, en nei. Voru ekki öll heimsins organdi ungabörn í flugvélinni og þar á meðal eitt við hliðiná mér sem sparkaði ítrekað í mig og lét öllum illum látum.
Skil ekki hvað fólk er að pæla með að taka börnin sín með sér í svona næturflug.. auðvitað sofa þau ekkert bara allan tíman þegar búið að er rótast svona með þau. Síðan voru þau orðin alveg trítilóð þegar að við vorum að ná í töskurnar og bætti það ekki að seinu danirnir gátu ekki komið töskunum á bandið fyrr en að verða 2 tímum eftir lendingu. Þá átti ég eftir 3 tíma lestarferð, gat ekkert sofið þar heldur svo ég var orðin VEL pirruð þegar ég komst loksins heim til mín. Svaf þá í 21.klst nánast samfleytt.

Í morgun vaknaði ég svo, mjög hress en var komin hálfa leiðina í skólann þegar að ég gerði mér grein fyrir að ég hefði ekki stillt klukkuna á danska tímann og var því ekki nema 2 tímum of sein fyrsta daginn. Gaman af því.

8.8.07

Fékk þá frábæru hugmynd að taka strætó frá Samskip uppí Rúv, eftir að faðir minn hafði læst mig úti og skilið bílinn eftir heima.
Var fljót að hætta við þegar ég sá á Bus.is að það myndi taka mig 56 mín. og kosta mig 280kr.

Af hverju velja ekki fleiri þennan frábæra ferðamáta?

7.8.07

Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að blogga um helgina.
En samt bara á morgun.

Þangað til.. "HVAR ER PER??"

(Það er eitthvað lítið um myndir vegna rafhlöðuleysis. Þannig að orð verða að duga)

2.8.07

Artífartí Þjóðhátíð

Sjáiði hvað ég er sjúklega frumleg og artý á Myspace. Var að breyta til. Snjóhúsið var ekki alveg að gera sig og ég ákvað að skipta yfir í egg vegna þess að ég er nú einu sinni að vinna í þessu yndislega mötuneyti í Samskip. Love my job!!
Jájá, þetta er svona gaman af þessu.
Allt að verða klárt fyrir Þjóðhátíð 07. Ég er búin að vera óþolandi þessa vikuna, ekki búin að tala um annað og búin að blasta "Í brekkunni" 24/7. Miða við hversu mikið og hátt þessi diskur hefur verið spilaður í Kórsölum eru nágrannarnir eflaust líka bara komnir í Þjóðhátíðargírinn.
Faðir minn röflaði yfir þessari tónlist í nokkur skipti. Síðan tilkynnti hann mér að hann ætli að koma "með" til eyja. Segist vera að fara að vinna, en ég trúi því ekki. Gæti reyndar verið að hann sé bara svona hræddur um frumburðinn, rúllandi fullann í brekkunni..
Ég skreið um háaloftið hjá ömmu og afa í gær og fann til sjógalla (ekki nema 8 sett) og annan nauðsynlegan búnað. Síðan er bara að henda gúmmítúttunum og lopasokkunum í tösku og þá er maður klár. Móðir mín búin að fara í ríkið fyrir mig og þar með búin að garentera að ég verði þunn fram í september.
Ég gerðist voðalega séð og fékk símadömurnar í Samskip til þess að hnýsast aðeins fyrir mig hverjir frá fyrirtækinu væru að fara á Þjóðhátíð. Þar sem ég þarf að mæta í vinnuna á þriðjudag og miðvikudag eftir Þjóðarann þá vil ég vita hversu mikið ég get gert af mér og hversu mikið ég get drukkið. Ætla ekki að vera búin að hrauna yfir forstjórann og síðan kemur hann í mat á þriðjudaginn. Vandræðalegt.
Símakonurnar eru hins vegar ekki að standa sig. Þær eru búnar að hafa alla vikuna til þess að finna þetta út, en einungis búnar að segja mér frá einum strák sem er að fara. Fyrir vissi ég um einn ungann mann og einhverja pjakka úr vöruhúsinu. Þetta er nú allt karlkyns, svo ekki fer ég að ræða við svoleiðis, hversu drukkin sem ég nú verð.

Annars er planið samt að haga sér vel, enda er það ég sem þarf að hafa vit fyrir Stjána, JP og helvítis útlendingnum.
Vona að ég komist lifandi frá þessu öllu saman, annars bið ég ykkur bara vel að lifa, þetta hefur verið skemmtilegur tími hérna á jörðinni og ykkur er öllum boðið í jarðaförina.

Bless.

31.7.07

Búin að finna sjálfa mig

Það virðist vera mikið í tísku að fara og finna sjálfan sig. Fólk er að taka árs leyfi frá skóla, ferðast og leika sér. Allt á þeim forsendum að finna sjálfan sig.
Ég þurfti ekki að fara lengra en í Samskip í nokkrar vikur. Ég er Control freak.
Hef bara aldrei tekið eftir þessu áður. Skrýtið. Ég sem er alltaf svo ljúf og góð :)

29.7.07

Fundinn og Ferming

Mikilvæg skilaboð til eina myndarlega karlmansins á Íslandi:

Ég sá þig í bænum á laugardagskvöldið en þorði ekki að tala við þig. Þú varst klæddur í brúnan leðurjakka og hvíta converse skó.

Hringdu: 848-5313

Eða msn-aðu: kristinalma@hotmail.com

Og ef þið lesendur góðir hafið séð þennan mann, vitið hver hann er eða hafið einhverjar upplýsingar um hann þá megið þið líka vera í bandi.

Annars var ógeðslega gaman á staffadjammi BabySam á laugardagskvöldið. Takk kærlega fyrir frábært kvöld, stelpur. Þið bættuð nokkrum stigum við geðheilsu mína.

"Who the fuck is Kormákur?"

---

Systur mínar, Vilborg Unnur og Sigríður Soffía fermdust í dag. Vil óska þeim innilega til hamingju með það.


Man eftir því þegar ég fermdist að ég hló þegar ömmurnar og afarnir komu til mín eftir atöfnina og sögðu mér að þau hefðu bara ekki getað haldið aftur tárunum, þetta var allt svo fallegt og þeim fannst svo stutt síðan að ég var ósjálfbjarga ungbarn í vögg og eitthvað jaríjarí.


Ég held að ég hafi verið sú eina sem grenjaði í kirkjunni. Finnst hræðilegt að þær séu orðnar svona stórar. Reyndar táraðist ég mest þegar ég kom inn í andyrið á Garðakirkju og sá þær standa þar. Svo glæsilegar og fallegar.

Eníveis, þá er ótrúlega fyndið hvað þær eru ólíkar. Mamma talar alltaf um að þær séu ólíkastar af okkur 5 systkinunum. Sem er rétt. Bæði í útliti og persónuleika. Til að mynda var önnur þeirra í strigaskóm í dag og hin í hælum ;)

Veislan var ótrúlega skemmtileg. Ingibjörg Elín, litla systir okkar söng og veitingarnar ekki af verri endanum. Enda er það yfirleitt ekkert slor þegar Óskar er annars vegar. Hérastubbur félagi minn sá svo um kökurnar, sem voru ekki þessar týpísku marsípan ógeðskökur, heldur bountykökur. Sjúkt gott.

Frábær dagur.









26.7.07

Vó

Voðaleg sprengja varð allt í einu inná síðuna. Næstum 200 fleiri heimsóknir í gær heldur en aðra daga. Er ég að missa af einhverju?
Var amma Stína að læra á refresh takkan?

25.7.07

Þetta er dásamlegt.
Nú bíð ég bara eftir að það komi frétt um það að ég sé að passa kisuna þeirra.

(Stal þessu frá DiscoDóra)

23.7.07

Dáin

Hafiði lent í að segja eitthvað sem á að vera ógeðslega fyndið við manneskju sem misskildi djókinn og horfði á ykkur eins og þið væruð holdsveik, en ekki bara ófyndin? Og ykkur langaði að deyja? - Kom fyrir mig í morgun.
Ég lendi oft í þessu (er ekki fyndin manneskja og á ekki að reyna að segja djóka, hvað þá ef mér finnst þeir fyndnir..), en aldrei fyrr virkilega reynt að snúa mig úr hálslið til að komast útúr aðstæðunum.

Hafiði lent í því að segja eitthvað ógeðslega asnalegt eða hallærislegt við einhvern, vegna þess að þið frusuð á staðnum þegar viðkomandi yrti á ykkur? - kom fyrir mig áðan.
Lendi líka stundum í þessu - frekar óþægilegt.

Ég er farin að strauja á mér tunguna.

20.7.07

Í fréttum er þetta helst:

Flíspeysumálið ógurlega: Peysan fannst loksins eftir að hafa verið týnd í 3 vikur. Þóra fann hana í skottinu á bílnum hennar SóleyjarTó. Ég hef ekkert verið að væflast þar, þannig að þetta er dáldið dularfullt mál.

Þjóðhátíð: Búið að borga í dallinn, förum út á föstudeginum og komum "uppá land" á mánudeginum. Íris og Garðar eru búin að beila þannig að ég verð eina stelpan. Hópurinn samanstendur af: Mér, Stjána, JP, Danska gaurnum og Villa bróðir (held ég). Verður áhugavert. Ég er búin að pannta að sofa í miðjunni - og núna er ekki hægt að setja mig í annað herbergi..
Þetta verður feiknar fjör og er mikil tilhlökkun. Ég og sá danski erum að fara í fyrsta skipti svo þetta verður þvílíkt ævintýri fyrir okkur, túristana.
Kvíði reyndar pínu fyrir einu og það er að miða við hvað strákarnir eru búnir að tala mikið um hvað þeir ætla að gera í Eyjum er ég hrædd um að ég komi lesbísk heim. Það á nefninlega að fara í Dalinn og finna sér KJÉLLINGAR. Ég verð annað hvort að gjöra svo vel að fara með, þar sem að ég er kjúklingur og þori ekki að vera ein í kringum svona fullt fólk sem ég þekki ekki eða bara vera heima í tjaldi og prjóna. Því ekki fer ég á fyllerí eða kallafar, (Er það orð til?) Geri ekki svoleiðis.

Ferming: Nú er famelían mín öll komin til landsins og fermingarstúlkurnar þylja trúarjátninguna, faðirvorið, ritningarorðin og boðorðin alveg útí eitt, bæði á Íslensku og dönsku. Fermingarfötin eru tilbúin og allt að verða klappað og klárt.
Ég reyndar get ekki með nokkru móti fundið föt á mig. Mér finnst allt ljótt og asnalegt, enda eru þessar heimsku útsölur í gangi núna og bara eintómt drasl á þeim eins og vanalega. Ég er búin að þræða hverja einustu búð í bænum og finn ekki neitt. Þetta hlýtur að reddast.

Vinnan: Það er svona líka þrælskemmtilegt í vinnunni alltaf hreint. Eða ég lýg því að mér að minnsta kosti. "Góðan daginnnn Gjössoveeeeel" Okkur Óskari semur alveg fínt, ennþá allavega. Konurnar í vinnunni duglegar að ota að mér sonum sínum og segja mér frá hvað þessi Siggi í Innflutningi sé agalega huggulegur og á lausu. Fengu svo taugaáfall þegar ég sagði að ég væri nú meira fyrir hann Gunna í landflutningum. Þá hljóðuðu þær upp yfir sig að hann væri að verða þrítugur og væri fráskilinn. Baneitraður greinilega.

Fjölskyldan: Það dró aldeilis til tíðinda í gær. Litli frændi minn Almarsson fékk nafn. BALDUR FREYR. Baldur í höfuðuð á afa og Freyr er víst bara Freestyle að mér skilst.
Gaman að segja frá því að ef að ég hefði verið strákur þá hefði ég verið skírð Baldur. Ég hefði orðið góður Baldur. En litli frændi ber þetta nafn svo sannarlega vel, enda er hann miklu myndarlegri en ég.
Til hamingju með þetta fallega nafn.

Helgin: Frænkufyllerí á morgun, hlakka mikið til. Síðan er það afslöppun útí eitt.

Þessi færsla: Er alveg ógeðslega leiðinleg. Með þeim leiðinlegri, enda er löngu komin háttatími á mig og ég er því ekki alveg í sambandi í hausnum.

Ble

19.7.07

17.7.07

Mánudagur til..mæðu?

Mér finnst að það ætti að vera mynd af mér við orðið "heppni" í orðabókinni. Einnig fyndist mér réttast að það væri mynd af mér við orðið "kaldhæðni."

Það er einhver sem er farinn yfir móðuna miklu sem er að bögga mig alveg hræðilega. Síðan ég kom til Íslands fyrir tæpum mánuði síðan þá hafa ótrúlegustu hlutir horfið, sporlaust.
Byrjaði voða saklaust, fyrst fann ég ekki sokkana mína, hárspennur, húslykla og þess háttar. Þá var mér sama. En manni finnst þetta lélegur djókur þegar að splunkuný cintamani peysa sem kostaði ekki nema rúmar 12.000 kr týnist og fleira af svona stærri og dýrum hlutum (sé samt mest eftir fu.. peysunni, nú dey ég úr kulda í Eyjum).
Þetta bara gufar upp, gjörsamlega. Einn daginn eru hlutirnir á sínum stað og svo bara búmm, horfnir.

Ekki láta ykkur bregða þó að ég hverfi bráðum, miða við áhuga þessa "félaga" míns á dótinu mínu þá hlýtur hann að fara að taka mig með sér bráðum.

16.7.07

Mánudagur

Í dag er mánudagur. Um helgina var gott veður, það er nokkuð ljóst. 90% af fólkinu sem ég er búin að hitta síðan ég vaknaði klukkan 06:15 er eins og það hafi lennt í sinueldinum á Grundartanga.
Þekkja Íslendingar ekki sólarvörn?