14.10.07

Hver er Alli?

Ég/við fór/um í útilegu á Snæfellsnesið helgina eftir Verslunarmannahelgina. Þar var fullt af fólki. Man samt ekki eftir að við höfum tekið með okkur fólk frá Sólheimum. Sá það fyrst þegar ég skoðaði myndirnar sem annar hvor Grundó bróðirinn tók.


Þetta eru nú samt bara myndir af okkur Villa bróðir í annarlegu ástandi. Ég í svefngalsakasti dauðans og fékk næstum því heilablóðfall úr hlátri meðan á þessum myndatökum stóð. Ég er heldur ekki full þarna, lööööngu runnið af mér, enda er þetta klukkan 6 um morgun þegar fólk var í keppni um hver gæti vakað lengst. Eitthvað útaf því að einn vinur minn fór svolítið snemma að "passa tjöldin*" þegar við vorum í Eyjum. Það átti víst ekki að gerast þarna og gerðist ekki.












Þessi brjálaða tungumynd af Villa fær að fylgja með, því hann er svo mikil dúlla!!


Og þessi af Stjána. Ég lít svo upp til hans. Samt bara því hann er hærri en ég..


Og þessi ferska af Svanhvíti og Jóni Pétri.


Þá eru komnar myndir af okkur öllum fulltrúum (Eyja)gengisins í þessari útilegu (langsótt) í þessa færslu.

Djöfull erum við eitthvað prófessjónal útilegufólk.

Það er bara eitt að segja.

Ég sakna þín síðasta sumar!





*Passa tjöldin þýðir að fara að sofa. Enda voru tjöldin ekki pössuð nógu vel. Allavega ekki tjaldið hans Pers :)

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábærar myndir af þér og mínum yndislega tengdasyni honum Villa ....fyndið samt hvað hann minnir mig á pabba þinn :-)

Nafnlaus sagði...

Glæsilegur svipurinn á þér á mynd nr. 3 ;-)

Kristín Alma sagði...

Mamma mín. Vilhjálmur er ekki tengdasonur þinn. Get over it.
Hann er svoldið líkur pabba stundum, enda er lítill simmi í okkur öllum.

Stjáni: Takk, ég var líka að vanda mig geðveikt, eins og þú kannski manst :-þ

Nafnlaus sagði...

ohhhhhh....

Brynja Björk sagði...

Ég sagði þetta líka, að þeir væru líkir:)

Nafnlaus sagði...

ég get svarið það, ertu viss um að þessi strakur sé ekki bara týndi sonur pabba þíns? jiminn ! ;)

-KarenHelga

Nafnlaus sagði...

Jeminn... ég fæ bara tár í augun að skoða þetta.... dem það var gaman bæði í eyjumo og á snæfellsnesi ..... böhöö hööööö.. væl, væl....

Komiði heim... og komum í pústað eða eitthvað... dem

Nafnlaus sagði...

Jeminn... ég fæ bara tár í augun að skoða þetta.... dem það var gaman bæði í eyjumo og á snæfellsnesi ..... böhöö hööööö.. væl, væl....

Komiði heim... og komum í pústað eða eitthvað... dem