1.10.07

KlúðurSmúður

Jesús. Ég vaknaði ógeðslega illa í morgun. Sem mun líklega verða til þess að ég verð pirruð (meira en vanalega) fram að kvöldmat.
Mig var að dreyma svo ótrúlega mikið í nótt. Það var alveg brjálað að gera hjá mér. Fyrst var ég búin að finna Madeleine McCann. Lifandi. Síðan var ég í einhverjum svakalegum bardaga og ég veit ekki hvað. Það var einmitt eftir bardagann sem ég vaknaði, alveg pikkföst í sængunum og alveg trítilóð. Datt næstum framúr og allt.
Jájá, maður má ekkert vera að því að sofa á nóttunni. Ég er bara í því að slást við ófreskjur og bjarga heiminum.

Gott að frétta samt. Skólamálin eru að öllum líkindum að bjargast. En það er bara útaf því að ég er svo drullugóð í að röfla, tuða og grenja. Ok, ég er kannski pínu frek líka. Ég hef sko þurft að hafa fyrir þessu, og það ekkert smá. En vonandi er þetta komið í lag núna samt.

Svona í kjölfarið af þessum fréttum er kannski rétt að nefna það að ég var kosin í sem meðstjórnandi Íslendingafélagsins hérna í Horsens. Ákvað að taka þessari áskorun fráfarandi formanns eftir að ég kom þessu í gegn í skólanum. Hlýt að hafa svona gífurlega stjórnunarhæfileika bara.
Segi svona. Þetta verður gaman og fer á CV-ið :)

Hömmhömm. Afmæliskveðjur: Svanhvítin mín og Sindri kokteilbróðir minn áttu afmæli á föstudaginn og óska ég þeim til hamingju með það.
Lindan mín á afmæli í dag og fær knús með póstinum. :)
Mamma og Gúmmípabbi áttu svo tólf ára brúðkaupsafmæli í gær. Þau ættu samt eiginlega bara að fá fálkaorðuna eða eitthvað fyrir að þola okkur systkinin í þennan tíma...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já sammála og sérstaklega fyrir síðbúna gelgju þeirrar elstu á frumfullorðinsárum.....getur ekki bara frekjað fálkaorðuna í gegn fyrir okkur ;-) ??

Kristín Alma sagði...

Jú, heldur þú að ég myndi eiga í miklum vandræðum með það? híhíhí