10.10.07

Dísess. Ég var að lesa moggan í rólegheitunum í morgun, reyna að gíra mig upp fyrir verkefni dagsins, en samt að kúpla mig niður eftir að hafa farið í ræktina fyrir allar aldir og tekið work out dauðans með mömmu.
Fékk svona líka nett í pirrurnar. Meðal annars útaf þessari frétt:

Karlmaður var fluttur á slysadeild með stungusár í nótt, skömmu eftir miðnætti, með stungusár á baki eftir að kona stakk hann með skærum í íbúð í Vesturborginni. Maðurinn flýði til nágranna og hringdi sjálfur eftir aðstoð, hann var fluttur á slysadeild en er ekki talinn hættulega slasaður. Konan sem grunuð er um verknaðinn gistir fangageymslu og verður yfirheyrð síðar í dag.

Sko ég veit alveg að það sem ég skrifa inná þessa blessuðu bloggsíðu mína er ekki alltaf málfræðilega rétt, enda hefur málfræði og stafsetning ekki beint verið mitt sterkasta fag. En kommon. Flýði? Og róleg að segja átta sinnum í sömu setningunni að maðurinn hafi verið fluttur á slysadeild með stungusár.

Svo þetta:

Það færist í vöxt að Danir fljúgi til og frá vinnu og segir Berlingske Tidende frá því í dag að á stöðum þar sem skattar er lágir, t.a.m. í Álaborg og Hjørring hafi flugferðir innanlands aukist mikið. Á eynni Borgundarhólmi fljúga nú 300 íbúar daglega til vinnu með áætlunarflugi á hverjum degi, en flug fram og til baka til Kaupmannahafnar kostar um 600-700 danskar krónur, eða um 7000 - 8000 íslenskar.

Hvar í fjandanum er þessi Borgundarhólmur?

**Uppfært**
Mér var svo niðri fyrir að lesa þetta að ég gleymdi að koma því að að þeir fljúga daglega til vinnu á hverjum degi. Ég er hætt að treysta fjölmiðlum.

Fékk nett í pirrurnar við að lesa þetta. Get ég ekki fengið vinnu hjá mogganum bara?

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hey, þeir fljúga líka daglega til vinnu á hverjum degi :) haha

Kristín Alma sagði...

HAHAHAHAHA já fyrir utan það..!!

Nafnlaus sagði...

Hey - Borgundarhólmur er Bornholm... en ég væri nú alveg til í að "fljúga til vinnu daglega" HAHAHHAA þetta hljómar fáránlega...

Kristín Alma sagði...

Veit það alveg. Hata þegar að þetta er þýtt..!

Nafnlaus sagði...

Þú ert snillingur!!! Hugsaðu þér. Það eru fjöldinn allur af fólki sem les svona lagað án þess að sjá neinar vitleysur. HÚRRA fyrir þér.
Amma Stína

Nafnlaus sagði...

Sæktu um sem pistlahöfundur stelpa!