Er hægt að deyja úr heimþrá? Held að ég sé á góðri leið í gröfina, verð það allavega með þessu áframhaldi.
Trúi ekki að það séu tveir og hálfur mánuður þangað til að ég fer næst til Íslands. Finnst það alveg hræðilegt. Langar svo að komast heim og knúsast í litlu skrímslunum mínum. Katlan er farin að tala svo ótrúlega mikið og Salkan orðin svo stór og þroskuð. Og ég er að missa af þessu öllu.
Pleh, hvað er erfitt að búa í útlöndunum. Glötuð stóra systir alveg.
Kannski ég ætti að koma heim næstu helgi..

4 ummæli:
ÚPS! Ekki minnst á ömmu og afa. Sakna þín líka snúllan mín.
Amma Stína
æ æ mússí múss......þú ert nú heppin að hafa þó okkur....ikk ? En hva....verður þú ekki með okkur á jólunum í nýja húsinu ?
Já eg styð að koma til Íslands.. jájájá. Þú getur ekki látið líða svona langt þangað til þú kemur snúllan mín:)
Æi snúllan mín - ég skil þig svooo vel - ógisslega leiðinlegt að vera bara stóra systir í útlöndum... :(
Koddu bara heim...!!
Skrifa ummæli