Ég opnaði ísskápinn hérna í morgun algjörlega hungurmorða og vonaðist eftir einhverju hollu og góðu til að fá sér svona í byrjun dags. Full bjartsýn. Það var ein coke zero dós og hálfur lítri af Matilda kókómjólk. Og jú, svona Aloe Vera aftersun dæmi eitthvað.
Svo ég át þurrt serjós í morgunmat og hafði coke zero með mér í skólann í nesti. Ætlaði svo bara í rema þegar að ég kæmi heim, en nennti því ekki þannig að ég át þurrt serjós fram til klukkan 19.00 í dag. Þá var ég alveg komin með ógeð af serjósinu og fór í búðina. Tvisvar. Gleymdi að kaupa djús og mjólk.. Ég þarf að fara með svona minnislista í búðina eins og gamla fólkið. Gleymi alltaf aðal atriðunum nefninlega.
Svo núna er ég á leið í þvottahúsið. Ætli ég verði ekki þar í allt kvöld, því þetta er ekkert lítið magn af þvotti sem flæðir hérna útum allt. Ég gæti samt alveg sleppt því að þvo í svona tíu daga í viðbót og samt verið alltaf í hreinum fötum. Bara ljótum hreinum fötum.
Annars var ég að taka til hérna uppí skáp hjá mér. Fann eitthvað sem heitir sólarvörn..hvað er það? Eitthvað sem maður setur á brauð??
Uhh já og ef einhver vill eiga hálfan líter af Matilda kókómjólk þá endilega kíkið við hérna í 306. Hún er köld og allt.
1 ummæli:
hahaha... ég skil þig svoooo vel með þvottinn og ljótu fötin... eða gömlu fötin amk sem eru bara ekki lengur töff ;)
ég veit bara ekki hver gerir öll þessi föt skítug... held að ég búi með draug... nei, fjórum draugum...
Skrifa ummæli