19.9.07

Má ekkert vera að þessu..

Það er svo hræðilega mikið að ske á Íslandi frá og með helginni og þangað til í lok oktober að ég bara má ekkert vera að því að eiga heima í útlöndum. Væri svosem í lagi ef maður gæti bara farið heim um helgar, en skulum nú ekki fara að leggja það á vísað.
Vetrarfríið eftir minna en mánuð. Akkúrat í sömu viku og Airwaves. Langar svo mikið að koma heim í þessa 10 daga að ég er að deyja. Ég er að íhuga að senda meil á Icelandair og biðja þá um að gefa mér flugmiða. Í staðinn gæti ég til dæmis gengið um alla Airwaves hátíðina í Icelandairbol eða eitthvað. En ef ég hugsa útí það þá væri eiginlega ógeðslega fyndið ef ég myndi láta Express borga undir mig miðann og vera á Airwaves í Express bol. Það væri pínu fyndið.

Jæja það má alltaf láta sig dreyma.

4 ummæli:

Ragga Rokkar sagði...

Hey beibs.
Var að læsa blogginu mínu og mig vantar e-mail adressu frá þér svo ég geti gefið þér permission :)
Sendu mér línu á raggaha@hotmail.com .
Luv !!!!

Nafnlaus sagði...

eg myndi með glööðu geði styrkja þig ef ég ætti pening! er annars ekki bara hægt að selja eitt stykki nyra eða eitthvað?:) haha reeeedda sér:D

Nafnlaus sagði...

mér líst alveg rosalega vel á þessa hugmynd hjá þér!

Nafnlaus sagði...

Iceland Express er ekki vel liðið. Þú ættir endilega að skella þér á Airwaves!! Það hefur aldrei í sögunni farið eins mikill fjöldi Norðurlandabúa á Airwaves og í ár!

Á ég að gera þér tilboð?

http://www.icelandair.dk/crunchy