2.9.07

Að gera ekkert

Djöfull er ég orðin ógeðslega góð í að gera ekkert. Ég sagði við einhvern hérna fyrir helgi að ég ætlaði ekki að gera neitt alla helgina. Ég vissi þó ekki að ég gæti tekið sjálfa mig svona alvarlega og gert bókstaflega ekkert heila helgi.

Reyndar var ég í Århus allan föstudaginn eftir skóla. En gerði ekkert af viti þar. Hékk í búðum, með iPodinn í eyrunum og drakk ótrúlega gott kaffi. Uppgötvaði reyndar að ég er mjög gráðug þegar kemur að kaffi. Ég er ennþá dofin í munninum eftir að hafa reynt að taka stóóóran sopa af latte-inu þegar það var nýkomið í bollann.

Ég er búin að vera svo mikil lufsa síðan ég kom til DK aftur að það hálfa væri ágætt. Til að mynda er ég búin að vera í joggingbuxum og hettupeysum síðan ég kom. Er búin að fara svona þrisvar í gallabuxur og tvisvar í pils á 3 vikum. Búin að vera ómáluð og mæta á inniskónum í skólann. Hvort sem er ekkert varið í þessa dani þannig að ég held nú að þetta sé í lagi.
Ég er komin með sjónvarpsdagskrána innprentaða inní hausinn á mér og svo þegar það er ekkert í sjónvarpinu þá horfi ég bara á Önnu Pihl eða einhverjar myndir. Viljiði pæla?
Spurning um að fara að stíga uppúr sófanum og fara að gera eitthvað.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er ekki hægt kona... næst kemuru með okkur Einari í IKEA... það eru 3 tímar sem er vel eytt ;) (5 ef þú telur Mcdonalds og að keyra fram og til baka með )...