Hvernig ertu í lit?
Ég er að henda inná tölvuflakið mitt 100 íslenskum sumarsmellum og þetta er nú meiri snilldin. (Tekur hálftíma fyrir hvert lag að hlaðast inn) Allskonar ódauðlegir slagarar á borð við "Toppurinn að vera í teinóttu", "Frækorn og flugur" og "Rabbabara Rúna". Mæli með þessu!
Helgin var aldeilis tekin með trompi.
Byrjað á fimmtudaginn í afmæli á Nørregade 9 þar sem allir 40 fermetrarnir voru pakkaðir af karlmönnum og mér. Svo lá leiðin á Koks þar sem að nokkrar gajol (Vá, fer ósjálfrátt að syngja
Gajol lagið góða) flöskur fengu að fjúka. Var dáldið svakalegt að horfa uppá þetta, en skemmtilegt engu að síður.
Á föstudaginn var svo kíkt á skólabarinn um 4 leytið. Páskabjórinn kominn og stemmning í liðinu. Um kvoldið var það svo innflutningspartý hjá Ara og Sigrúnu en ég var ekki alveg að standa mig í að vera hressa gellan og geispaði næstum golunni þar. Ekki vegna þess að það hafi verið svo leiðinlegt, heldur vegna þess að ég hafði sofið tvo tíma nóttina áður. En reif mig uppúr þessu þar sem ég var búin að lofa fólki að vera hress til klukkan 6 um morguninn. Og aftur var ferðinni heitið á Koks þar sem að leiðinlegi trúbadorinn í gulltakkaskónum var að spila, reyndar hætti hann mjög fljótlega eftir að við komum og þá tókum við uppá því að syngja Íslensk dægurlög, barnalög og þjóðlög okkur til mikillar skemmtunar og öðrum til ekki jafn mikilla skemmtunar. Síðan hvenær fór dönum að finnast íslenski þjóðsöngurinn leiðinlegur?
Crazy Daisy beið svo og það var sko dansað af sér rassgatið. Síðan var það bara pizza hjá Ronní og félögum á Delons og þeir gáfu mér rós. Spurning um að slaka aðeins á í pizzu átinu eftir djömm, ef að maður er orðinn svona uppáhaldskúnni.
Laugardagurinn var heldur ekki á verri endanum, en Jói varð 25 ára og að sjálfsögðu var partý á
The mansion bar. Við Stjáni,
Herra Bjarni baun,Einar og Jón Pétur létum okkur ekki vanta og það var líka þetta feiknastuð á liðinu. Afmælisbarnið í Buffaló skóm með dead bindi á hausnum, ráptuðra sem tók hvern sem vildi í kirtlaskoðun og notaði pikköpplínur eins og "Þú ert bara eins og selur" og önnur sem tjáði fólki að hún elskaði að fara í 3-some.
Ég var bara dömuleg í þessu partýi. Var í hælum með sléttað hár og glossuð. Með rakaðar lappir og Gucci tösku. Ekki á hverjum degi sem það gerist, en er farið að verða æ algengara.
Kom svo heim, fór í tölvuna og ropaði. Enda búin að vera dama frekar lengi og það er ekki létt.
Rétt að taka það fram svona áður en að fjölskyldan á Íslandi pantar fyrir mig pláss hjá SÁÁ að ég var edrú allahelgina og á bíl, skemmti mér samt alveg konunglega - Ekki allir sem geta það.
Í dag var ekki nema 15 stiga hiti og glampandi sól svo ég og Fróðinn minn skelltum okkur út að hlaupa. Næstum 5 kílómetra, sem ég hélt að ég myndi ekki lifa af og var orðin blá í framan af súrefnisleysi þegar að ég loksins náði heim. Svo var líka heitt.
Reif fram D&G sólgleraugun og (sem eru orðin þokkalega last season by the way) fór með sálufélaganum og Stjána á kjúklingastað. Og það var étið. Tók því að fara út að hlaupa...
Þetta er ógeðslega leiðinlegt og langt blogg. Sá sem nennti að lesa allt fær að senda mér Heilsu tvennu frá lýsi, 2 karton af silfurlituðu extra (Ég á 3 pakka eftir og það gerist eitthvað hræðilegt þegar að þeir klárast, veit það.), nammi og litla, hvíta apple kvikindið...