18.2.07

The Sukkerfrees

Það eru ekki allir sem eru heima og borða brauð með súkkulaði klukkan 3 á djammnóttu. En súkkulaði påleggið frá thoms svíkur fáa.
Auglýsingarnar frá Thoms eru reyndar soldið tristar, ef að maður er Íslendingur. En ég er búin að vera of lengi í Danmörku þannig að mér finnst þær alveg drepfyndnar. Komst að því í kvöld að ég hef eytt of miklum tíma af ævinni hérna úti. Er fljótari að skrifa sms á dönsku en Íslensku. Það tekur mig korter að skrifa "góðan daginn" á íslensku. Geri aðrir betur.
Finnum okkar innri dana og horfum á þessar líka skemmtilegu sjónvarpsauglýsingar.

Versgú:


I lommen på dig

Drops

Tyggegummi

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir síðast Stína mín. Ég væri sko til í að fara á tónleika með Kim Larsen, hlýtur að vera meiriháttar. Kveðjur.
Amma Stína

Nafnlaus sagði...

Tónleikarnir voru æði og hann er alltaf sami töffarinn...

Veit ekki alveg með þessar auglýsingar, þær eru hallærilega fyndnar og ég skammast mín alltaf hálfpartinn fyrir hönd leikaranna sem eru í Gajol umbúðum!! en engu að síður drepfyndnar

Brekamamma