13.2.07

Kvöldstund á Íslandi - Hent útaf Prikinu

Þegar að ég kem til Íslands þá þykir mér ótrúlega skemmtilegt að setjast inná gott kaffihús, með góðum vinkonum, slúðra og drekka kaffi. Oft er eini tíminn sem að við finnum til að hittast á kvöldin, eftir að ég er búin með heimsóknarkvóta dagsins og þær heimavinnuna.
Um ellefu leytið í kvöld ákváðum við Linda og Helga að henda okkur inná kaffihús og spjalla aðeins. Í þetta skiptið var Prikið fyrir valinu. Við löbbuðum inn, afgreiðslustúlkan brosti, bauð gott kvöld og við plöntuðum okkur í sæti á efri hæðinni. Sitjum þar í nokkrar mínútur og förum svo niður að ná í kaffi."Eruð þið með skilríki" spyr afgreiðslustúlkan. Ég rétti henni ökuskírteinið mitt, enda er ég orðin sjálfráða og 11 mánuðum betur. "Það er tuttugu ára aldurstakmark eftir klukkan níu á kvöldin" sagði afgreiðslustúlkan. Við urðum nú frekar hissa og sögðumst nú ekki ætla að fá neitt sterkara en kaffi, en það skipti víst ekki máli. Við máttum gjöra svo vel að yfirgefa staðinn. Strax.

Hvenær fullorðin?

Sjálfræðisaldurinn á Íslandi er 18 ár. Ekki erfitt að skilja þetta orð, maður ræður sér sjálfur. En þannig er það reyndar ekki alveg.
Þegar að maður verður 18 ára má maður taka lán, fá sér vísa, kaupa sígarettur, gifta sig og spila í spilakössum. Maður ræður sjálfur hvenær maður kemur inn á kvöldin og þarf ekki lengur að fylgja útivistareglunum. Skítt með það að maður megi ekki kaupa áfengi og megi ekki fara inná skemmtistaði. Skiptir mig engu máli.
Samkvæmt lögum mátti ég byrja að stunda kynlíf þegar að ég var 14 ára gömul, í mínu tilfelli var það mánuði áður en ég var tekin í fullorðinna manna tölu.
15 ára mátti dæma mig í fangelsi.
17 ára mátti barnið ég fara útí umferðina á stórhættulegu tæki og leggja líf mitt og annara í stórhættu.
18 ára má ég borða nammi á þriðjudögum og vaka til 5 á næturnar, ef ég vil. Má gifta mig en ekki drekka kampavín. Ég má kjósa.
18 ára og 11 mánaða má ég ekki sitja á kaffihúsi og drekka latte, en hey, ég má kjósa hverjir stjórna landinu.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er náttúrulega fáránlegt!!!
Kv. Jakó frænka

Nafnlaus sagði...

þarf ég að fara að lána þér skilríki mín svo að þú fáir nú einn kaffibolla á klakanum :)

Brekamamma

Inga Rós sagði...

Þetta er svo asnalegt - veit ekki hversu oft maður tönglast á þessu og ekkert gert í þessu, nema á nokkurra ára fresti kemur upp eitthvað prump frumvarp. Ahhh Ísland bezt í heimi.

Nafnlaus sagði...

Mér finnst þetta nú bara dónaskapur!!

Nafnlaus sagði...

það var frreeekar vandræðalega þegar við löbbuðum út! hahaha En við fengum okkar latte... nema bara inn á tómum stað.. en það er annað mál!